Glóðafeykir - 01.12.1969, Side 46

Glóðafeykir - 01.12.1969, Side 46
46 GLÓÐAFEYKIR Vísnaþáttur Haraldur Hjdlmarsson er fæddur að Hofi á Höfðaströnd 20. desem- ber 1909, sonur Hjálmars bónda þar Þorgilssonar á Kambi í Deild- ardal og konu hans Guðrúnar Magnúsdóttur hreppstjóra á Sleitu- stöðum. Fluttist ungur að Kambi og ólst þar upp. Búfræðingur frá Hólum 1932. Lauk námi í Sam- vinnuskólanum nokkru síðar. Stundaði verzlunarstörf á Siglu- firði, í Reykjavík og hjá Kaup- fél. Skagfirðinga á Sauðárkróki. Síðustu árin allmörg starfsmaður Útvegsbanka íslands í Reykjavík. Hann er ókvæntur. Haraldtir Hjálmarsson er kunnur hagyrðingur. Honurn er óvenju létt um að varpa fram stökum, hvernig sem á stendur, oft bráðsnjöllum, og virðist hreint ekkert hafa fyrir því. Vís- urnar detta honum ósjálfrátt af Haraldur Hjálmarsson. munni. Mun hann fæstar liafa fest á blað — og er það skaði. \h's- ur á hann á víð og dreif í blöðum svo og nokkur kvæði og stökur í Skagfirzkum ljóðum. Vísur þær, sem hér fara á eftir, sendi hann Glóðafeyki samkvæmt beiðni. — G. M. Tungan. Milli tanna laus og létt leikur tunga vökur, þegar hún er að ríma rétt rammíslenzkar stökur.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.