Glóðafeykir - 01.12.1969, Qupperneq 59
GLOÐAFEYKIR
59
Sameining kaupfélaganna á Hofsósi
og Sauðárkróki
A s.l. árum hafa mörg íslenzk fyrirtæki lent í fjárhagslegum erfið-
leikum og það svo, að sum þeirra liafa orðið að leggja niður starf-
semi.
Orsakir þessa hafa verið margar og margvíslegar. Bæði stafar það
af miklum rekstrarfjárskorti vegna sífelldra gengisfellinga íslenzku
krónunnar, en fyrirgreiðsla með rekstrarfé hefur verið af skornum
skammti, svo og sumpart vegna hallareksturs ár eftir ár.
Kaupfélag Austur-Skagfirðinga hefur ekki farið varhluta af þess-
um erfiðleikum. Fór þess að gæta þegar á árinu 1967 og versnaði enn
til muna á árunum 1968 02: 1969.
Þetta varð til þess að fram komu óskir til stjórnar K. A. S. H. um
að athugaðir yrðu möguleikar á, að félagið sameinaðist Kaupfélagi
Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Margir viðræðufundir fóru síðan fram milli stjórna félaganna,
bæði hér heima í héraði, svo og með forráðamönnum S. I. S.
Samkvæmt samvinnulögunum þarf slík sameining sem þessi, að
ræðast fyrst á fulltrúafundi (aðalfundi eða aukafundi), og sé hún
samþykkt þar, þá er málinu vísað heim til einstakra deilda á félags-
svæðunum. Ef tillagan er samþykkt þar, þá er málið tekið fyrir aft-
ur á næsta aðalfundi til lokaákvörðunar. En á aðalfundi K. S. 20.
júní s.l. var samþykkt að vísa þessu máli til stjórnarinnar til endan-
legrar ákvörðunar.
Stjórnir beggja félaganna féllust svo endanlega á sameiningu þess-
ara tveggja kaupfélaga, og fór sameiningin fram á félagslegum grund-
velli, þ. e. a. s. að Kaupfélag Skagfirðinga yfirtekur inneignir og
skuldir á viðskiptareikningum K. A. S. H., stofnsjóð félagsmanna,
svo og aðrar eignir og skuldir félagsins, og miðast sameiningin við
15. ágúst 1969.
Þó var frá því gengið áður en þessi sameining fór frant, að stjórn
Kaupfélags Austur-Skagfirðinga seldi frystihús félagsins til Hrað-