Glóðafeykir - 01.12.1969, Qupperneq 60
60
GLÓÐAFEYKIR
frystihússins h.f., Hofsósi, en það félag hafði verið myndað á breið-
um grundvelli af íbúum Hofsóss og nærsveita, til reksturs þessa
frystihúss.
Jafnframt var gerður samningur við Hraðfrystihúsið h.f., um slát-
uraðstöðu og frystingu á sláturafurðum vegna þeirra er slátrað hafa
í Hofsósi á undanförnum árum, svo ekki ylli þessi ráðstöfun veru-
legri röskun á högum þeirra er við K. A. S. H. höfðu skipt og lagt
þar inn sláturfé á hverju hausti.
Þessir menn áttu sæti í stjórnum félaganna, þegar sameiningin
fórfram: í stjórn K. A. S. H., Þorsteinn Hjálmarsson, Hofsósi, fonn.,
Kristján Jónsson, Óslandi, Jón Þorsteinsson, Mýrakoti, Stefán Gests-
son, Arnarstöðum, og Níels Hermannsson. Hofsósi, en í stjórn Kaup-
félags Skagfirðinga þeir Tobías Sigurjónsson, Geldingaholti, form.,
Gísli Magnússon, Eyliildarholti, Jóhann Salberg Guðmundsson.
Sauðárkróki, Björn Sigtryggsson, Framnesi, og Jón Eiríksson. Djúpa-
dal.
Samkvæmt samþykkt er gerð var á aðalfundi Kaupfélags Skagfirð-
inga 1965, var samþykkt að fjölga í stjóm félagsins úr 5 í 7. Þó var
sá fyrirvari gerður. að forsenda fyrir fjölgun stjórnarnefndarmanna
væri sú, að félagssvæði K. S. stækkaði eða að sameining yrði gerð
við önnur kaupfélög. Af þessu leiðir, að búast má við að á næsta
aðalfundi K. S. á komandi vori, verði þessi heimild notuð og fjölg-
að þar með í stjórninni í 7 stjórnarnefndarmenn.
HRT.