Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 71
GLÓÐAFEYKIR
71
um tveim árum, er hann, innan við tvítugsaldur, var á Akureyri og
fékkst þá við verzlunarstörf hjá Stefáni föðurbróður sínum. Helgi
var fæddur á sjávarbakka, og sjóinn stundaði hann alla ævi. Hann
var ódeigur og farsæll; enda þótt löngum reri á litlu fari, dró hann
einatt drjúgan hlut, svo að entist honum til góðrar afkomu, enda
maðurinn hygginn og forsjáll og eyddi eigi fjármunum að óþörfu.
Helgi Guðmundsson var góður meðalmaður á hæð, frekar grann-
vaxinn, myndarlegur á velli, toginleitur og eigi smáfríður. Hann var
um margt sérkennilegur, greindur maður og hagmæltur nokkuð; lék
á orgel. Hann var hugsandi maður, alvörugefinn og eigi mannblend-
inn, fáskiptinn og hversdagsgæfur, en skapríkur og óvæginn, ef hon-
um þótti fyrir. Raungóður var hann og ræktarsamur og reyndist for-
eldrum sínum og systkinum góður sonur og bróðir. Hann dó ókvænt-
ur og barnlaus.
Jón Konráðsson, lireppstjóri og bóndi í Bæ á Höfðaströnd, lézt þ.
6. júní 1957. Hann var fæddur að Miðhúsum í Óslandshlíð 3. nóv.
1876. Foreldrar: Konráð hreppstj. og bóndi í Miðhúsum og síðar í
Bæ Jónsson, bónda í Miðhúsum, Jónssonar
talinn ríka, bónda í Gröf á Höfðaströnd,
Konráðssonar, og kona hans Ingibjörg Gunn-
laugsdóttir bónda á Hofstöðum, Þorsteins-
sonar, og konu lians Geirlaugar Eiríksdótt-
ur hónda Jónssonar.
Jón ólst upp með foreldrum sínum, fyrst
í Miðhúsum og síðan í Bæ frá 1889, þar sem
liann átti heima alla ævi síðan og löngum
við kenndur. Árið 1898 kvæntist hann Jó-
fríði Björnsdóttur bónda í Gröf, Jónssonai
bónda þar, Jónssonar, og konu hans Hólm-
fríðar Jónatansdóttur, síðast bónda á Reykj-
arhóli í Austur-Fljótum, Ógmundssonar. \rar Jófríður mikilhæf kona
og glæsileg. Tóku þau við búsforræði í Bæ aldamótaárið og bjuggu
þar við góðan kost og mikla rausn til 1930, er þau seldu jörð og bú
í hendur syni sínum. Jón stundaði löngum útgerð trá Bæjarklettum
jafnhliða búskapnum, og var einn af forgöngumönnum vélbátaút-
gerðar við Skagafjörð. Umsvif voru oft mikil í Bæ, mannmargt og
gestkvæmt, og öllum tekið af einstakri alúð.
Jófríður lézt rösku ári fyrr en maður hennar. Börn eignuðust þau
4 og komust 3 til aldurs: Konráð, starfsmaður lengi hjá S. I. S., lát-