Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 77
GLÓÐAFEYKIR
77
ari við Gagnfræðaskólann á Akureyri og síðan Menntaskólann þar
og gegndi því starfi til 1953, er hann var skipaður ráðunautur ríkis-
ins í áfengisvarnamálum og hvarf til Reykjavíkur. Stundaði fram-
haldsnám, einkum í sagnfræði, við erlenda háskóla árið 1922—1923.
Var góður og mikilhæfur kennari. Hafði í áratugi mikil afskipti at
bindindismálum og var einn af aðsópsmestu áhrifamönnum bind-
indissamtakanna. Gegndi margvíslegum og mikilvægum trúnaðar-
störfunr á þeirra vegum; var stórtemplar um hríð, umboðsmaður
Hástúkunnar og hvað eftir annað fulltrúi Stórstúkunnar og ríkis-
stjórnarinnar á hástúkuþingum og öðrum alþjóðlegum bindindis-
mannaþingum erlendis.
Brynleifur hafði unr skeið nrikinn áhuga á stjórnmálunr, bauð sig
þrívegis fram til þingnrennsku, en náði ekki kosningu. Hann fékkst
og allnrikið við blaðamennsku, var ritstjóri Islendings og síðan
Templars unr lrríð.
Þau 35 ár, sem Brynleifur hafði bólfestu á Akureyri, konr hann
víða við. Hann var unr skeið fonrraður skólanefndar, fornr. stjórnar
Anrtsbókasafnsins, sóknarnefndarformaður, fornr. Stúdentafél. Ak-
ureyrar mörg ár; bæjarfulltrúi tvö kjörtímabil og forseti bæjarstjórn-
ar 1938—1939. Enn fleiri trúnaðarstörfum gegndi hann nörður þar,
þótt hér verði eigi talin.
í Brynleifi Tobíassyni nrunu í öndverðu lrafa togazt á bóndinn og
fræðimaðurinn. Atvikin höguðu því hins vegar svo, að kennsla við
mikilsháttar menntastofnun varð ævistarf hans. En fræðahneigðin
varð ekki drepin í drónra. Hann lagði jafnan stund á nrargvísleg
fræði íslenzk og ritaði margt í þeirri grein, ritið Hver er maðurinn?
í tveinr bindunr, er út komu 1944, brautryðjandaverk; ennfremur
Alþingismannatal 1845—1930 og Sögu þjóðhátíðarinnar 1874 (1958).
Hann sat í útgáfunefnd Skagfirzkra fræða frá 1938 til dauðadags,
og sanrdi söguritið Heim að Hólum. Hann ritaði íslenzkt mál með
ágætunr, lrvort tveggja í senn, kjarnyrt og alþýðlegt.
Brynleifur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigurlaug Hall-
grímsdóttir stýrimanns á Akureyri, Sigurðssonar, og konu lrans Guð-
rúnar Sigurðardóttur. Þau giftust haustið 1920. Sigurlaug lézt 1922,
eftir tæpra tveggja ára sambúð þeirra hjóna. Sonur þeirra er Sig-
laugur, kennari í Hveragerði. Árið 1952 kvæntist Brynleifur Guð-
rúnu Guðnadóttur bónda í Skarði á Landi, Jónssonar, og konu hans
Guðnýjar Vigfúsdóttur. Létust þau bæði hjónin í sömu andrá að
kalla. Þau áttu ekki börn.
Brynleifur Tobíasson var vænn maður á vöxt, fölleitur, fríður í