Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 78
78
GLÓÐAFEYKIR
andliti, svipfarið markað skýrleik og festu. Hann var höfðinglegur
og virðulegur í framgöngu, fágætlega formfastur, jafnt í luigsun og
orði sem athöfn. Hann var rammíslenzkur í anda, unni þjóð og sögu
og gömlum og góðum erfðavenjum. Ættrækinn var hann, trygglund-
aður og vinfastur; kirkjuvinur og kristindóms. Hann var gagnmerk-
ur og góður sonur skagfirzkrar ættbyggðar.
Vigfús Magnússon, járnsmiður á Sauðárkróki, lézt þ. 24.apríl 1958.
Hann var fæddur á Selnesi á Skaga 8. apríl 1881. Foreldrar: Magnús
bóndi á Selnesi Björnsson á Auðólfsstöðum, síðar bónda í Eyhildar-
holti (drukknaði í Holtskvísl 1853), ölafssonar, og kona hans Ingi-
björg Vigfúsdóttir trésmiðs Reykdals, Vigfússonar Reykdals prests,
og konu hans Júlíönu Maríu Sveinsdóttur frá Ljótshólum í Svína-
dal. Var Magnús á Selnesi, faðir Vigfúsar, hálfbróðir — samfeðra —
Rögnvalds svslunefndarm. o<> bónda í Rétt-
arholti og séra Olafs, prests á Ríp.
Vigfús óx upp með foreldrum sínum á
Selnesi unz faðir lians lézt árið 1899. Eftir
það mun hann hafa verið með móður sinni,
en hún bjó ekkja á Selnesi til 1905. Nokkr-
um árum síðar fluttu þau mæðgin til Sauð-
árkróks. Þar átti Vigfús heima æ síðan og
stundaði jafnan járnsmíðar, meðan heilsa
hrökk til. Móðir hans dó 1944.
Kona Vigfúsar var Sesselja Stefánsdóttir.
Þau skildu eftir skannna sarnbúð. Dóttur
áttu þau eina barna.
Vigfús Magnússon var mikill maður á vöxt og karhnenni að burð-
um, myndarmaður, hvar sem á var litið. Hann var greindur vel, sem
hann og átti kyn til, óhlutdeilinn og ekki vílsamur, Jjótt einmani
væri á efri árurn. Hann var traustur maður og lundheill, drengur
oóður, vinsæll <><> vel metinn af öllum.
Pálmi P. Sighvats, sjómaður á Sauðárkróki, lézt þ. 14. júlí 1958.
Hann var fæddur á Sauðárkróki 4. okt. 1904 og átti þar heima alla
ævi. Foreldrar: Pétur, úrsmiður og símstöðvarstjóri, Sighvatsson
Borgfirðings, fræðimanns á Höfða í Dýrafirði, Grímssonar, og kona
hans Rósa Daníelsdóttir bónda á Skáldstöðum í Eyjafirði, Daníels-
sonar.
Pálmi fæddist upp með foreldrum sínum þar á Sauðárkróki.