Glóðafeykir - 01.11.1971, Side 17

Glóðafeykir - 01.11.1971, Side 17
GLÓÐAFEYKIR 17 Giftnleysi. Grátlegt er þá góður svanni giftist drembilátum manni — og hleður niður glæpagjörnum, gorgeir fylltum vankabörnum. Bakkusarblót. Það er margur maðurinn marki slíku brenndur, að hugsa ekki um sóma sinn, sé hann orðinn kenndur. Þeir, sem Bakkus dýrka og dá og drekka í eigin banni, sínum níðast alltaf á innra og betra manni. Illkeypi. Það er æði margra mál, að menn gegn auð og valdi hafi löngum sína sál selt við rýru gjaldi. Grúsk. Ekki myndu allir því una — og telja gaman, en gömlum skræðum get ég í grúskað tímum saman. Dútl. Labba ég um Langasand, lífs míns rekafjcjrur, og dútla við að draga á land dýra viði og pjörur.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.