Glóðafeykir - 01.11.1971, Blaðsíða 35
GLÓÐAFEYKIR
35
samkv. áliti landlæknis átti það að vera eina sjúkrahúsið fyrir hér-
aðið, og með því að allir sáu að það mundi verða dýrt, voru vestan-
menn tregir á mikil fjárframlög til sjúkraherbergis í Hofsósi. Þá orti
Pétur og kallaði „Spítalaskipið":
Kapteinn okkar sagði: „f vestur vendir skeið,
því vitja skal nú hafnar Króksaranna".
En 1. stýrimaður kaus þá æfur aðra leið —
í austurveg, til þeirra Fljótamanna.
Um málið urðu snarpar sennur milli oddvita (,,kapteins“) og sýslu-
nefndarmanns Haganeshrepps, sem var varaoddviti sýslunefndar („1.
stýrimaður“). Orti þá Árni Daníelsson, hreppstjóri á Sjávarborg:
Hér var inni heitt í kveld,
heldur minna um næði.
Stál og tinna auka eld,
ef þau finnast bæði.
Eitt sinn vantaði Árna Daníelsson, er fundur var settur. Hafði
hann farið á fund úti á Reykjaströnd. Lét hann af því, að allhvassí
hefði verið á þeim fundi. Þá orti oddviti:
Árni Dan. fór út á Strönd,
átti í harðri rimmu.
Deildi mjög um menn og lönd
við Meylendinga grimmu.
Er 2:efið var kaffihlé orti Pétur Hannesson:
o
Nokkuð mörgum sýnist, að nokkrum hér í dag
nokkuð séu ræðuhöld til ama,
svo fundarstjórinn okkar hefur fundið upp það lag
fundinum að slíta með það sama.
Eins og framangreindur kveðskapur ber með sér, er mikið af hon-
um eftir einn sýslunefndarmanninn, Pétur Hannesson. Kenndi
nokkurrar afbrýði hjá Jóni Bakkaskáldi vegna hylli Péturs hjá Leir-
gerði, og kveður hann nú til Péturs: