Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 41
GLÓÐAFEYKIR
41
Sigtryggur Guðjónsson, bóndi á Ytri-Hofdölum, andaðist þ. 17.
marz 1961. Hann var fæddur að Brekkukoti í Hjaltadal 16. sept.
1876, sonur Guðjóns Jónssonar og Margrétar Jónsdóttui. Þau voru
ógift, en fáum árum eftir að Sigtryggur
fæddist giftist móðir hans Sigfúsi Bergmann
Jónssyni. Fluttist hann með móður sinni og
stjúpa að Krakavöllum í Flókadal og ólst
þar upp fram um fermingaraldur. Eftir það
gerðist hann vinnumaður á Þrasastöðum í
Stíflu og var þar fram yfir tvítugt. Þar
kvæntist hann Gunnlaugu Gunnlaugsdótt-
ur frá Mjóafelli í Stíflu. Fluttust þau ungu
hjónin að Tungu í sömu sveit, hann í vist,
hún í húsmennsku. Allt lék í lyndi, þótt
eigi væri stofnað til búrekstrar um sinn.
En skjót eru sköp á stundum. Þau hjónin
eignuðust eina dóttur. Móðirin, Gunnlaug, varð eigi heil eftir það
og andaðist skömmu síðar. Og skammt varð í milli, unz dóttirin lézt.
Eftir þetta áfall undi Sigtryggur eigi lengi þar í átthögum. Arið
1909 tekur hann sig upp og flytur að Læk í Viðvíkursveit. 1913 fer
hann ráðsmaður að Ytri-Hofdölum. 1916 kvænist hann síðari konu
sinni, ekkjunni á Hofdölum, Guðrúnu Bergsdóttur bónda á Þrasa-
stöðum í Stíflu, Jónssonar, og konu hans Katrínar Þorfinnsdóttur
Jonssonar frá Gröf á Höfðaströnd. Bjó Guðrún þá á Ytri-Hofdölum
ekkja eftir fyrri mann sinn, Magnús Gunnlaugsson, er látizt hafði
1912 (22. sept.). Var Guðrún á Hofdölum víðkunnur skörungur,
hamhleypa til allra verka og óskyldra, smiður á tré og járn, hlóð
veggi, reisti hús, sló fergin í tjörnum, þar sem vatn tók undir hend-
ur, stundaði vefnað og hannyrðir, ef í milli varð um vetur — og allt
rneð ágætum. Hún sat í hreppsnefnd \hðvíkurhrepps um skeið, ein
hin fyrsta, ef ekki allra fyrsta kona íslenzk, er gegnt hefur því trún-
aðarstarfi.
Sigtryggur settist í bú með konu sinni og bjuggu þau á Ytri-Hof-
dölum, stundum í tvíbýli, til 1945, er þau fólu jörð og bú fóstursyni
sínum og dóttursyni Guðrúnar, Hólmsteini Sigurðssyni, og konu
hans, sonardóttur og nöfnu Guðrúnar, og voru eftir það í skjóli
þeirra, meðan entist heilsa og líf. Þau eignuðust ekki börn saman,
en ólu upp tvo dóttursonu Guðrúnar. Börn Guðrúnar af fyrra hjóna-
bandi voru 9, er til aldurs komust.
Sigtryggur missti konu sína 29. febrúar 1956 (f. 14. okt. 1867).
Sigtryggur Guðjónsson