Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 52

Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 52
52 GLÓÐAFEYKIR Guðmundur bjó jafnan góðu búi. Hann var starfsmaður mikill og gerði umbætur á jörðum sínum, sléttaði túnin og girti. Er eigi of- sagt, að hann var frábær maður að elju og vinnuþoli. Arið 1915 gekk Guðmundur að eiga Öntiu Jónsdóttur bónda í Asgeirsbrekku, Stafni í Deildardal og síðast á Sviðningi, Andrésson- ar bónda á Syðri-Bægisá í Öxnadal, Tómassonar, og konu hans Ast- þrúðar Jónsdóttur bónda Árnasonar, en kona Jóns var Ingiriður Siourðardóttir. Var Anna 2,áfuð kona 0? mæt, vinnusöm 02 dugjeff. O O O ’ o 00 Af börnum þeirra hjóna komust upp tveir synir: Hafþór, dr. jur., kv. Solveigu Kolbeinsdóttur, og Guðmundur, byggingameistari, kv. Önnu Guðmundsdóttur, báðir í Reykjavík. Anna lifir mann sinn, háöldruð.* Guðmundur Benjamínsson var meðalmaður á velli, vel vaxinn og afrendur af afli. Eigi mátti hann teljast andlitsfríður, en svipgóð- ur, stillilegur, hægur og prúður í viðmóti, fátalaður oftast og eigi hlutsamur. „Hann var höfðingi heim að sækja, en hlédrægur og heimakær, fráleitur því að láta á sér bera en vildi vinna btii sínu allt, er hann vann. Guðmundur var orðheldinn og traustur sæmdar- maður, sem ekki mátti vamm sitt vita í neinu.“ Pétur Runólfsson, bóndi að Efra-Ási í Hjaltadal, lézt þ. 2. febrúar 1962. Hann var fæddur að Böðvarsdal í Vopnafirði 13. jan. 1906, sonur Runólfs bónda þar Hannessonar og konu hans Kristbjargar Pétursdóttur. — Pétur mun hafa alizt upp með foreldrum sínum austur þar í Vopna- firði. Haustið 1928 réðst hann til náms í Hólaskóla og lauk búfræðiprófi 1930. Iient- ist hér vestra eftir það. „Hann var ágætur námsmaður og mikill starfsmaður. Kapp- semi og atorka var honum í blóð borin. Hann hóf búnað í Efra-Ási, hálflendunni, 1923, að kalla eignalaus, og bjó þar unz dag- ar voru uppi. Hann var umbótamaður og setti markið hátt. Hann reisti girðingar, byggði bæ sinn úr steinsteypu, ræktaði tún úr óræktarlandi og reyndi oftsinnis korn- rækt. Allt með góðum árangri. Vann að búi sínti alhugað og undi sér bezt þar heima. Átti ágætt sauðfé og fóðraði það með ágætum." Pétur Runólfsson Anna er nú (1971) látin fyrir nokkrum árum.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.