Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 68
GLÖÐAFEYKIR
68
þeirra hjóna ern 6 á lífi: Gunnar, bóndi í Syðra-Vallholti, Ins'ibjörg,
húsfr. í Reykjavík, Astriður, skrifstofumær í Reykjavík, Erla, starfar
við Alþjóðabankann í Washington, Ásgeir, húsm. í Vallholti og
Sigurður, starfar við Rannsóknarst. fiskiðnaðarins í Reykjavík.
Gunnar í Vallholti var hár maður og orannvaxinn, lítið einn lot-
inn í herðum, holdskarpur, höfðinglegur ásýndum, vel gefinn og
vakti hvarvetna athygli. Kom þar og til sjaldgæft lunderni, sem mót-
aði manninn, persónufar hans og alla framkomu. Hann var gæddur
meiri bjartsýni, meira lífsfjöri og lífstrú, meiri leikandi glaðværð og
kátínu en menn eiga að venjast. Hvar sem fleiri voru saman, lék
hann jafnan á als oddi, var allra manna ljúfastur, allra mamia glað-
astur, „söna: mest af öllum, dausaði mest af öllum." Þessu einstaka
ljúflyndi og eðlisfjöri hélt hann óskertu alla ævi. Þvílíkir menn eru
fágætir. Þeir eru salt jarðar. Þeir varpa frá sér geislum gleði og hlvju.
Því var eigi kyn þótt Gunnar í Syðra-Vallholti væri hverjum manni
vinsælli. „Öllum vildi hann gott gera.“
Hegranesmenn i fjárrekstri. — Ljósm. Stefán Pedersen.