Fréttablaðið - 13.04.2016, Blaðsíða 38
Leikhús
Góði dátinn svejk og hasek
vinur hans
HHHHH
karl Ágúst úlfsson
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir
Leikarar: Hannes Óli Ágústsson, Karl
Ágúst Úlfsson, Þórunn Lárusdóttir, Ey-
vindur Karlsson, Lárus Vilhjálmsson
Leikmynd og búningar: Guðrún
Öyahals
Tónlist: Eyvindur Karlsson
Lýsing: Hermann Björnsson
Hljóð: Guðjón Guðjónsson
Leikrit byggt á Góði dátinn Svejk eftir
Jaroslav Hasek og The Bad Bohemian
eftir Cecil Parrott
Síðastliðin sunnudag frumsýndi
Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði verk
um síðustu ár Jaroslavs Hasek og
hans undraverða sköpunarverk, góða
dátann Svejk.
Höfundarverk Haseks lifir enn
þá góðu lífi en skáldsagan er auðvi-
tað í miklu uppáhaldi hjá þjóðinni.
Textinn er tímalaus og umbúðalausu
skotin á allar þær birtingamyndir sem
yfirvaldið tekur sér vekja enn þá upp
kjánahroll og hlátur. Þetta kostulega
ófremdarástand kannast Íslendingar
við. Karl Ágúst Úlfsson skrifar leik-
handritið og tekur þá djörfu ákvörð-
un setja Hasek sjálfan inn sýninguna,
í eins konar hliðarverki við sögu
Svejks.
Hannes Óli Ágústsson fær það
flókna verkefni að leika hinn
umkomulausa, vitgranna og orð-
marga Josef Svejk. Samkvæmt nefnd
herlækna er Svejk opinber vanviti;
of heimskur til að sinna herstörfum,
of takmarkaður til að vera fangels-
aður en ekki nægilega geðveikur til
að dvelja á geðsjúkrahúsi. Hannes
Óli kemur þessum einfalda manni vel
til skila án þess að týna hans mann-
legu brestum, sakleysið uppmálað og
skilningsleysið algjört.
Karl Ágúst leikur Hasek sem barð-
ist við áfengissýki og fjármálaóreiðu
síðustu ár lífs síns en söguna um Svejk
kláraði hann ekki því hann dó fyrir
aldur fram. Í leik Karls Ágústs virkar
Hasek meira eins og sögumaður
frekar en heildstæð persóna, kóm-
íkin verður dramatíkinni yfirsterkari
og erfitt er að tengjast honum tilfinn-
ingaböndum.
Þórunn Lárusdóttir leikur fjölmörg
hlutverk en hið stærsta er eiginkona
Haseks, hin rússneska Shura. Þórunn
er fjölhæf leikkona sem getur brugðið
sér í allra kvikinda líki. Hún blómstrar
í kómísku senunum en henni fipast
í þeim dramatískari, kannski vegna
þess að handritið gefur aldrei til
kynna af hverju Shura styður Hasek
svona innilega. Einnig má setja spurn-
ingamerki við rússneska hreiminn
hennar. Í stað þess að undirstrika
hversu utanveltu hún var í Tékklandi
þá minnir hún á karakter úr ‘Allo
‘Allo! eða Allt í hers höndum eins og
það var þýtt hér um árið.
Fjórði meðlimur leikarahópsins
er Eyvindur Karlsson sem einnig sér
um tónlistina. Líkt og Þórunn bregður
hann sér í fjölmörg smærri hlutverk
en er eftirminnilegastur sem Lúkás
höfuðsmaður. Gítarhljómar, píanó-
tónar og blásturshljóðfæri byggja
hljóðheiminn, lögin eru ljúf en hefðu
mátt vera fjölbreyttari.
Ágústa Skúladóttir leikstýrir þess-
ari lágstemmdu sýningu ágætlega
en kómísku snerpuna og hraðann
vantar. Hluta ábyrgðarinnar má
varpa á handritið sem er hrein-
lega of langt. Hliðarsaga Haseks er
áhugaverð og færir mannlega harm-
leikinn inn í sýninguna en skortir
drifkraft og söngatriðin snarstöðva
alla framvindu. Karl Ágúst er snjall
textahöfundur, en spyrja má hvort
sönglögunum sé hreinlega ofaukið í
sýningunni. Fjórði veggurinn er brot-
inn með reglulegu millibili, stundum
hnyttilega en þó ekki með nægilega
markvissum hætt.
Umgjörð sýningarinnar er vel
úthugsuð og áferðarfögur en leik-
rými Gaflaraleikhússins er með því
skemmtilegra á stórhöfuðborgar-
svæðinu. Leikmynd og búningar
eru í hæfum höndum Guðrúnar
Öyahals en þrátt fyrir örlítið litleysi
þá eru margar sviðslausnirnar vel
útfærðar og hljóðfærin falleg skygg-
ing á heildarmyndinni. Lýsing Her-
manns Björnssonar er sömuleiðis
vel heppnuð.
Saga Svejks er tímalaus eins og
áður segir. Saga Haseks kannski
líka. Þrátt fyrir djarfa tilraun til að
blanda sögum þeirra tveggja saman
þá heppnast hún ekki nægilega vel.
Harmurinn er aldrei nægilega sláandi
og grínið ekki nægilega fyndið þrátt
fyrir ágætis frammistöðu leikaranna.
Sigríður Jónsdóttir
Niðurstaða: Bráðfyndin á köflum
en skortir þéttari umgerð.
Ljúfsár en langur gleðiharmleikur
H E I L S U R Ú M
A
R
G
H
!!!
1
30
41
6
#3
10 DAGA
AFSLÁTTUR Í50%
Á HVERJUM DEGI - Í TÍU DAGA - ER EIN TEGUND AF RÚMI Á 50% AFSLÆTTI
Í DAG ER ÞAÐ FONDNESS
FULLT VERÐ 172,668 Kr.
NÚ 86,334 Kr.
TILBOÐIÐ GILDIR MEÐAN BYRGÐIR ENDAST
KING KOIL FONDNESS
Queen Size (153X203 cm)
Friðbjörg Ingimarsdóttir annar höfunda að handbókinni Hugskot.
FréTTabLaðIð/anTon brInk
Þessi tími er Því
sérlega áhuga-
verður og ég er stolt af
Þjóðinni sem hefur vaknað
upp og er að hugsa málið.Hugskot, skamm,-fram- og víðsýni nefnist ný hand-bók fyrir alla sem vilja taka þátt í bar-áttunni fyrir betra
samfélagi. Höfundar eru þau Gunn-
ar Hersveinn og Friðbjörg Ingi-
marsdóttir og markmið þeirra með
verkinu er einkum að efla kunnáttu
og færni lesenda í að skyggnast inn í
eigið hugskot, beita gagnrýnni hugs-
un og að greina ímyndir, fordóma,
texta og skilaboð í samfélaginu.
Fjarlægðin skerpir
Friðbjörg segir að þau Gunnar hafi
bæði mikinn áhuga á þessu efni
en hvað hana varði þá hafi sitt-
hvað á starfsferlinum einkum verið
kveikjan að bókinni. „Ég var búin
að starfa bæði sem kennsluráð-
gjafi með nýbúamál og fjölmenn-
ingarmál fyrir Reykjavíkurborg og
grunnskóla, auk þess að hafa feng-
ist við kennslu í Danmörku. Þessi
reynsla vakti alls konar spurningar.
Spurningar varðandi allar þær
hindranir sem maður glímir við
þegar maður er nýr í landi eða að
taka á móti fólki sem kemur utan frá
og mér fannst vera mjög lærdóms-
ríkt ferli. Í mínu starfi lærði ég líka
mikið um hvað íslenskt samfélag
var eins leitt og staðnað og kynntist
því líka allhressilega hvernig for-
dómar og staðalímyndir virka og
hversu mannfjandsamlegir þeir geta
verið og hamlandi. En um leið varð
mér ljóst hversu elskulegir og opnir
margir landar okkar eru. En svo má
ekki gleyma að innflytjendur hafa
fordóma rétt eins og við. Það hafði
líka ótrúlega sterk áhrif á mig að
vera utan Íslands og að vera í Dan-
mörku að aðstoða innflytjendur.
Fjarlægðin og þessi reynsla skerpti
mjög sýn mína á Ísland og hvað við
stöndum fyrir.
Lykill að framförum
Við Gunnar höfum líka bæði
mikinn áhuga á mannréttindum
almennt og hvernig maður byggir
sig upp sem gagnrýninn borgari
sem er heilmikið lærdómsferli
fyrir hvert samfélag. Mér fannst á
þeim tíma sem ég var í Danmörku
að umræðan heima væri svona
tíu árum á eftir en það finnst mér
hafa breyst mikið. Ég þakka það
ekki síst samfélagsmiðlunum sem
hafa átt mikinn þátt í því að breyta
hvernig fólk hugsar. Fólk verður
gagnrýnna og áræðnara að taka
þátt í umræðunni. Hinn gagnrýni
borgari er þannig ekki aðeins sá sem
sparkar í girðingar heldur sá sem er
heiðarlegur borgari sem lætur sig
málin varða og tekur afstöðu og
veitir aðhald. Við verðum að hugsa
um mikilvægi þess að þingmenn
vinni í þágu almannahagsmuna en
ekki sérhagsmuna.
Hrunið hafði til að mynda gríðar-
lega mikil áhrif í þessum efnum og
það sem við stöndum frammi fyrir
í dag felur einnig í sér stór tækifæri
fyrir okkur sem samfélag. Margir
koma fram á völlinn og taka þátt
í samræðunni og það er í gegnum
Friðsamleg mótmæli eru ótrúlega mikilvæg
hugskot er ný handbók eftir gunnar hersvein og friðbjörgu ingimarsdóttur þar sem hvatt er til gagnrýn nar
hugsunar og ábyrgrar þátttöku í umræðunni um samfélagsmál sem brenna á mörgum þessa dagana.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
samræðuna sem við þroskumst.
Þessi tími er því sérlega áhuga-
verður og ég er stolt af þjóðinni sem
hefur vaknað upp og er að hugsa
málið. Það hefur enginn einn rétt
á sannleikanum en málið er að við
hugsum og eigum í opinni og gagn-
rýninni umræðu. Þar liggur lykillinn
að framförum.
Mótum samfélagið
Friðsamleg mótmæli á Austurvelli
eru ótrúlega mikilvæg vegna þess
að með því erum við að segja við
þá sem ráða, hvort sem þeir eru til
hægri eða vinstri, að við ætlum að
fylgjast vel með. Við viljum hafa
áhrif. En mér finnst friðsamleg
mótmæli líka felast í því að skrifa
góðar greinar, koma fram nýjum
vinklum, rekja upplýsingar og draga
þær fram í dagsljósið. Ekki öðru
fólki til háðungar heldur til þess að
við getum lært af því. Eitt það sorg-
legasta og versta sem við gerum
er þegar við erum farin að nota
gagnrýnina til háðungar og að tala
niður til fólks. Það er ekki vænlegt
til framfara fyrir samfélagið og eitt-
hvað sem við eigum að varast. Málið
er að menning mótar og er mótuð,
rétt eins og samfélagið og samfé-
lagið ætti að vera í mun meiri mæli
mótað af okkur, upplýstum almenn-
ingi, gagnrýnum en uppbyggilegum
borgurum.“
Endalaust
ENDALAUS
GSM
1817 365.is
1 3 . a p r í L 2 0 1 6 M i ð V i k u D a G u r22 M e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
menning
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
0
B
-4
E
2
0
1
9
0
B
-4
C
E
4
1
9
0
B
-4
B
A
8
1
9
0
B
-4
A
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K