Fréttablaðið - 13.04.2016, Blaðsíða 18
Skjóðan
Fimmtudagur 14. apríl
Vestmannaeyjabær Breyting á upp-
gjörsdegi vegna ársreiknings 2015.
Landsbankinn Aðalfundur.
Föstudagur 15. apríl
Hagstofa ÍsLands Samræmd vísi-
tala neysluverðs í mars 2016.
Fiskafli mars 2016.
VinnumáLastofnun Atvinnuleysis-
tölur Vinnumálastofnunar.
Mánudagur 18. apríl
fÍ fasteignaféLag Aðalfundur FÍ
fasteignafélags slhf.
Þriðjudagur 19. apríl
Þjóðskrá ÍsLands Vísitala íbúða-
verðs á höfuðborgarsvæðinu.
Miðvikudagur 20. apríl
Hagstofa ÍsLands
Vísitala byggingarkostnaðar fyrir maí
2016.
Mánaðarleg launavísitala í mars 2016.
Greiðslujöfnunarvísitala í maí 2016.
Vísitala kaupmáttar launa í mars 2016.
Vísitala lífeyrisskuldbindinga í mars
2016.
Fjármálastöðugleiki 2016/1.
Þjóðskrá ÍsLands Vísitala leiguverðs
á höfuðborgarsvæðinu.
Mánudagur 25. apríl
Hagstofa ÍsLands Kjötframleiðsla í
mars 2016.
mareL Uppgjör fyrsta ársfjórðungs.
Á döfinni
Markaðurinn
ÚtgáfuféLag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Umsjón jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is
Ábyrgðarmaður kristín Þorsteinsdóttir | Forsíðumynd anton brink
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Vikan sem leið
Verðbólga í Bretlandi mældist 0,5
prósent í mars samkvæmt tölum
frá hagstofu Bretlands. Verðbólga
hækkaði um 0,2 prósent milli
mánaða. Verðbólga hefur ekki verið
hærri síðan í desember árið 2014,
en er áfram langt undir tveggja pró-
senta verðbólgumarkmiði Englands-
banka. Forsvarsmenn bankans eiga
von á að verðbólga haldist undir
einu prósenti í ár.
0,5
prósenta verðbólga
Gunnar Bragi Sveinsson veitti styrki
úr utanríkisráðuneytinu að upp-
hæð 950 þúsund krónur á síðasta
degi sínum sem utanríkisráðherra.
Alls styrkti hann fjögur félög
vitandi að seinna um daginn yrði
hann gerður að sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra í nýrri ríkis-
stjórn. Enginn hinna ráðherranna
úthlutaði skúffufé sínu í síðustu
viku.
950
þúsund króna styrkur
Hrávöruverð á olíu hækkaði í gær og mældist þá
það hæsta á árinu. Fram undan er fundur hjá helstu
hagsmunaaðilum í olíuiðnaðinum á sunnudaginn.
Brent-hráolía hækkaði um 1,4 prósent í gærmorgun
og kostaði þá 43,53 dollara.
43,53
dollarar á tunnu
mönnum Hættir tiL að gera mis-
tök í hita leiksins. Stundum er gott
að telja upp að tíu áður en rokið
er áfram. Íslenska þjóðin er núna
í hita leiksins og ætti kannski að
telja upp að tíu.
er Það Í Þágu bestu hagsmuna
þjóðarinnar að rjúka í kosningar
á þessu ári? Er einhver tilbúinn
í kosningar? Líkast til er hvorki
stjórnarandstaðan né ríkis-
stjórnarflokkarnir, möguleg ný
framboð eða þjóðin sjálf tilbúin í
kosningar núna. Það er spurning
hvort réttlætanlegt sé að leggja í
mikil átök til að flýta kosningum
um nokkra mánuði.
staða ÞjóðarbÚsins er þokka-
leg núna. Jafnvægi er nokkuð gott
og atvinnuleysi hverfandi. Ef frá
eru taldir himinháir vextir er
ekki sjáanleg nein bein ógn við
heimilin í landinu að svo stöddu.
Lífeyrissjóðirnir skila góðri
ávöxtun. Staða fyrirtækja hefur
batnað þó að hátt vaxtaumhverfi
og launahækkanir valdi vanda hjá
sumum minni fyrirtækjum. Ef við
tækjum púlsinn á þjóðarbúinu
myndi heilsan mælast yfir meðal-
lagi góð.
Í póLitÍsku hamfaraveðri síðustu
viku báru tveir menn af. Forseti
Íslands hafði trausta hönd á stýri
og fjármálaráðherra hélt ró sinni,
en naut vitanlega samanburðarins
við fyrrverandi forsætisráðherra.
undanfari hinnar viðburðaríku
viku var Facebook-færsla frá eigin-
konu forsætisráðherra um miðjan
mars. Hefðu hlutirnir þróast
öðruvísi ef færslan hefði byrjað
„Eiginmaður minn var spurður út
í spurningar sem tengjast félagi á
mínum vegum. Hann brást rangt
við og gekk út úr sjónvarpsvið-
tali …“?
stundum getur Verið gott að
telja upp að tíu. Væri ekki betra að
ljúka kjörtímabilinu og kjósa til
Alþingis eftir ár?
Þá Verður Bjarni Benediktsson
búinn að leggja öll spil á borðið og
skýra sitt mál. Hann verður búinn
að endurnýja umboð sitt eða Sjálf-
stæðisflokkurinn búinn að velja
sér nýjan formann.
samfyLkingin verður búin
að útkljá leiðtogamál sín og
undirbúa sig fyrir kosningar.
framsóknarfLokkurinn verður
búinn að finna sér nýjan leiðtoga
og mögulega endurreisa trúverð-
ugleika gagnvart kjósendum.
pÍratar verða búnir að manna
framboðslista sína, en það er
ekkert áhlaupaverk að manna vel
lista hjá framboði sem er líklegt til
að fá fleiri en einn kjörinn fulltrúa
í öllum kjördæmum landsins.
Steingrímur J. Sigfússon verður
búinn að tilkynna brottför úr
stjórnmálunum og mögulega
Ögmundur líka þannig að Katrín
Jakobsdóttir þarf ekki að burðast
með pólitísk lík í skottinu inn í
kosningar.
Verði kosið á þessu ári er mjög
líklegt að flest eða öll stjórnmála-
öfl landsins verði illa undirbúin.
Slíkt er ávísun á skammlífa ríkis-
stjórn og pólitísk upplausn, sem
fylgir tíðum kosningum, er ekki í
þágu þjóðarinnar.
Betra að telja upp að tíu
Dagur Sigurðsson vakti mikla athygli þegar Þjóðverjar urðu meistarar á EM í byrjun árs. Fréttablaðið/EVa björk
„Það spurðist svolítið út að ég hefði
verið með puttana í viðskiptum
heima. Við erum að fagna fimm
ára afmæli Kex sem ég átti þátt í að
stofna. Svo hef ég verið með putt-
ana í alls kyns rekstri alveg síðan ég
opnaði Kofa Tómasar frænda í gamla
daga,“ segir Dagur Sigurðsson, lands-
liðsþjálfari Þýskalands í handbolta.
Hann segist á undanförnum árum
hafa átt þátt í rekstri nokkurra félaga.
Í dag sé hann með Lárusi Sigurðssyni,
bróður sínum, í Bílanausti, og þá eigi
hann lítið startup-fyrirtæki í Berlín
sem heldur úti snjallforritinu Cup-
podium.
Dagur segir að fréttir af rekstri
hans hafi spurst út á svipuðum tíma
og Þýskaland varð Evrópumeistari
í handboltanum og áhuginn strax
orðið mikill. „Það voru einhver fyrir-
tæki sem fóru strax af stað og vildu
fá að vita hver mín nálgun væri á
þennan bissness og íþróttaheiminn
og hvað væri hægt að nota á hverjum
stað til að komast hratt og örugglega
í mark.“
Dagur hefur nú þegar meðal
annars haldið fyrirlestur fyrir alla
stjórnendur Deutsche Telekom (þar
sem um 200 manns voru mættir til að
hlýða á hann), Deutsche Credit bank
og fleiri. Á mánudag heldur hann svo
fyrirlestur á vegum Þýsk-íslenska
viðskiptaráðsins á Hilton Reykjavík
Nordica. En hann ætlar að stoppa
stutt við hér á landi. „Ég verð nú bara
í tvo til þrjá daga. Maður er enn þá
í starfi sem þjálfari og maður verður
víst að sinna því líka,“ segir hann.
Dagur byrjaði snemma að reyna
fyrir sér í viðskiptum. „Ég var í
Verzlunarskólanum og alltaf notaði
maður fríin í það að vinna, annað-
hvort í bókabúðinni hjá afa eða
íþróttaversluninni hjá frænda. Sparta
á Laugaveginum var svona lítil og sæt
íþróttavöruverslun. Hjá Bókaverslun
Lárusar Blöndal fékk maður að vinna
í kringum jól og í öðrum fríum. Þann-
ig að ég var fljótt kominn með putt-
ana í bissness,“ segir Dagur.
Árangur Dags með þýska hand-
boltalandsliðið hefur vakið mikla
athygli þar í landi, einkum eftir að
titillinn á EM 2016 var í höfn. Meðal
annars hringdi Angela Merkel,
kanslari Þýskalands, í Dag til að óska
honum til hamingju.
jonhakon@frettabladid.is
Kennir Þjóðverjum
leiðtogahæfni
Dagur Sigurðsson hefur staðið í ströngu við að halda fyrirlestra fyrir Þjóðverja
frá því að hann varð Evrópumeistari í handbolta. Kemur til Íslands í næstu viku.
Það voru einhver
fyrirtæki sem fóru
strax af stað og vildu fá að
vita hver mín nálgun væri á
þennan bissness og íþrótta-
heiminn og hvað væri hægt
að nota á hverjum stað.
Dagur Sigurðsson handboltaþjálfari
SMIÐIR - VERKAMENN - MÚRARAR
HANDAFL EHF s. 777 2 333
Erum með vana smiði,
verkamenn, múrara og pípara
sem eru klárir í mikla vinnu.
1 3 . a p r Í L 2 0 1 6 m i ð V i k u d a g u r2 Markaðurinn
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
0
B
-7
F
8
0
1
9
0
B
-7
E
4
4
1
9
0
B
-7
D
0
8
1
9
0
B
-7
B
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K