Fréttablaðið - 13.04.2016, Blaðsíða 46
„Ég er bara hæstánægður,“ segir
Aðalsteinn Magnússon, gítarleikari
sveitarinnar Auðnar, um viðbrögð
sín við þessum stóra sigri. Þetta var í
sjöunda sinn sem keppnin Wacken
Metal Battle er haldin hér á landi en
hún hefur verið haldin allt frá árinu
2009. Alls tóku sex bönd þátt þetta
árið auk þess sem Dimma og In the
Company of Men, sem sigraði í fyrra,
tróðu upp sem gestahljómsveitir.
Keppnin er haldin um nánast
allan heim, eða í um 40 löndum, og í
henni er barist um tækifæri til að fá
að spila á Wacken Open Air hátíð-
inni auk stúdíótíma og peninga-
verðlauna. Á þessari samkomu er
þungmálmi gert hátt undir höfði og
eru herlegheitin haldin í smábænum
Wacken í Þýskalandi í ágúst ár hvert
og hefur svo verið síðan 1990. Þang-
að flykkjast um 80.000 gestir árlega
auk þess sem þar koma fram allar
helstu metalsveitir heimsins, en í ár
eru t.d. staðfest böndin Iron Maiden
og Twisted Sister – en líklegt er að
fleiri sveitir verði tilkynntar þegar
nær dregur hátíðahöldunum.
„Þetta er stærsta metalhátíðin í
heiminum, þannig að þetta er svaka
„exposure“ fyrir lítið band, fyrst og
fremst er þetta aðgangur að erlend-
um blaðamönnum, prómóterum
og útsendurum erlendra plötufyrir-
tækja,“ útskýrir Aðalsteinn. Það er
ljóst að þessi samkunda er gríðar-
lega mikilvæg metal-senunni og gæti
hæglega orðið skotpallur fyrir metn-
aðarfulla íslenska hljómsveit að taka
þátt í svona stórum viðburði. „Við
nennum ekkert að spila endalaust á
Íslandi,“ segir Aðalsteinn hlæjandi
og það er augljóst að Auðn ætlar sér
að nýta þetta stóra tækifæri til fulls.
Auðn hefur verið starfandi síðan
2010 og spilar sveitin melódísk-
an black metal. Hljómsveitin
er skipuð þeim Aðalsteini
Magnússyni og Andra Birni
Birgissyni sem báðir spila á
gítar, Hjalta Sveinssyni söngv-
ara, Hjálmari Gylfasyni á bassa
og Sigurði Kjartani Pálssyni sem
ber trommur. Auðn gaf út plötuna
Auðn árið 2014 og hægt er að kaupa
og streyma henni á Bandcamp-síðu
sveitarinnar. Platan hefur fengið afar
góðar viðtökur.
„Við erum á fullu að semja efni
fyrir næstu plötu og við stefnum á að
gefa hana út á þessu ári. En annars
er allt brjálað að gera hjá okkur,
við verðum að spila á Eistnaflugi í
sumar, komum fram í London 20.
maí og verðum svo á Blastfest í Nor-
egi í febrúar.“ Í London koma þeir
fram á sérstöku kynningarkvöldi
í tengslum við Eistnaflug ásamt
hljómsveitunum Zhrine og Severed.
Það er því ljóst að næstu misseri
verða ákaflega spennandi hjá Auðn
og verður fróðlegt að fylgjast með
því hvað gerist í framhaldinu.
stefanthor@frettabladid.is
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Þú finnur nýja Taxfree sófabæklinginn
á www.husgagnahollin.is
www.husgagnahollin.is
558 1100
Allir sófar á taxfree tilboði*
* Taxfree tilboðið gildir bara á sófum og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
PASO DOBLE
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga.Grátt eða brúnt slitsterkt áklæði.Stærð: 300 × 100/150 × 95 cm
298.379 kr. 369.990 kr.
SÓFAR
TAXFREE
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
Ísafirði
Skeiði 1 www.husgagnahollin.is
* Taxfree tilboðið gildir bara á sóf
um og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður viðis
aukaskatt af söluverði. Afslátturinn
er alfarið á kostnað Húsgagnahall
arinnar og gildir til 29. apríl 2016
Allir sófar á taxfree tilboði*
SÓFAR
TAXFREE
PASO DOBLE
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga.
Grátt eða brúnt slitsterkt áklæði.
Stærð: 300 × 100/150 × 95 cm
298.379 kr.
369.990 kr.
CLEVELAND
Hornsófi með tungu. Hægri eða vinstri
tunga. Dökk eða ljósgrátt slitsterkt
áklæði. Stærð: 308 × 140/203 × 81 cm
153.218 kr.
189.990 kr.
DEVON
Nettur og litríkur
svefnsófi. Margir
litir. Stærð:
151 x 86 x 82 cm
112.895 kr.
139.990 kr.
Koma fram á stærstu
metal-hátíð í heimi
Hljómsveitin Auðn bar sigur úr býtum í Wacken Metal Battle
keppninni sem var haldin í Hlégarði síðastliðinn föstudag. Sigur-
inn tryggir sveitinni rétt til að koma fram á þungarokkshátíðinni
Wacken Open Air sem er sú stærsta sinnar gerðar í heiminum.
Hjalti Sveinsson, Andri Björn Birgisson og Aðalsteinn Magnússon, liðsmenn hljómsveitarinnar Auðnar, sem kemur fram á
Wacken Open Air hátíðinni í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sigurvegarar
WacKen Metal Battle
2009 Beneath
2010 Wistaria
2011 Atrum
2012 Gone
Postal
2013 Oph
idian I
2014
Hlé varð á
keppni þetta
árið
2015 In The
Company Of Men
þetta er SvaKa „expoSure“ fyrir
lítið Band, fyrSt og freMSt
er þetta aðgangur að
erlenduM BlaðaMönnuM,
próMóteruM og útSend-
uruM erlendra plötufyrir-
tæKja.
Endalaust
ENDALAUS
GSM
1817 365.is
1 3 . a p r í l 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r30 l í f I Ð ∙ f r É T T a B l a Ð I Ð
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
0
B
-5
C
F
0
1
9
0
B
-5
B
B
4
1
9
0
B
-5
A
7
8
1
9
0
B
-5
9
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K