Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.03.2016, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 31.03.2016, Qupperneq 4
SEGLAGERÐIN ÆGIR Þar sem ferðalagið byrjar Korputorg 112 Reykjavík Sími 551 5600 utilegumadurinn.is FERÐAVAGNAR KAUPLEIGA GRÆNIR BÍLAR Opið mán-fös kl. 10-18 - lau-sun kl. 12-16 Þegar þú vilt gæði 20% Heimilin standa undir 20 prósentum af öllum heilbrigðis­ útgjöldum með beinni greiðsluþátttöku í heilbrigðiskerfinu. 3% Íslendinga sækja sér ekki nauðsynlega læknisþjónustu vegna kostnaðar. 25% Íslendinga í tekju­ lægsta hópnum hér á landi sækja sér ekki tann­ læknaþjónustu vegna kostnaðar. munur er á viðmiðunargjaldskrá Sjúkra­ trygginga og gjaldskrá tannlækna, en verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun hjá 25 tannlæknum í upphafi árs. 150-200% Heilbrigðismál Fyrirkomulag gjald- töku í heilbrigðiskerfinu veldur ójafnræði milli sjúklingahópa, er niðurstaða nýrrar skýrslu Alþýðu- sambands Íslands um kostnað sjúk- linga vegna heilbrigðisþjónustu. Í skýrslunni kemur fram að kostn- aðarþátttaka sjúklinga í heilbrigðis- kerfinu hefur á síðustu þremur ára- tugum nær tvöfaldast og að í dag standi heimilin undir um 20% af öllum heilbrigðisútgjöldum með beinni greiðsluþátttöku í heilbrigðis- kerfinu. Með auknum beinum útgjöldum sjúklinga segir ASÍ fylgja þá hættu að kostnaður verði hindrun á aðgengi að nauðsynlegri þjónustu fyrir ákveðna hópa sem auki misskipt- ingu, bæði fjárhagslega, félagslega og heilsufarslega. Kostnaður einstaklinga ráðist að verulegu leyti af því hvers konar þjónustu eða meðferð þeir þurfi og hvert þeir geti sótt hana. Þrjú pró- sent Íslendinga sækja sér ekki nauð- synlega þjónustu vegna kostnaðar samanborið við hálft prósent íbúa í nágrannalöndunum. Gagnrýnt er að sjálfsábyrgð sjúkratryggðra einstaklinga geti verið há sem birtist í því að ekkert þak sé á heildarkostnaði sjúklinga innan heilbrigðiskerfisins. Þannig geti alvarlega veikir einstaklingar þurft að greiða hundruð þúsunda úr eigin vasa. Margir langveikir hafi fastan heilbrigðiskostnað sem sé verulegur hluti af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum þeirra. Nefnd eru raunveruleg dæmi í skýrslunni um kostnað sjúklinga. ASÍ segir nauðsynlegt að boðað greiðsluþátttökukerfi taki á ójafn- ræði innan íslensks heilbrigðiskerfis. Horfa þurfi með heildstæðum hætti á allan kostnað sjúklinga innan heil- brigðiskerfisins hvort sem hann er tilkominn vegna læknisþjónustu, lyfja, rannsókna, þjálfunar, endur- hæfingar eða annarra þátta. Mikil- vægt sé að setja hámark á kostnaðar- þátttöku sjúklinga og að það hámark verði ekki fjármagnað með tilfærslu á kostnaði frá þeim sem greiða háan heilbrigðiskostnað til þeirra sem þurfa sjaldan á heilbrigðisþjónustu að halda. Til lengri tíma skuli líta til þess að þjónustan verði gjaldfrjáls. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis- ráðherra mun á næstunni leggja fram frumvarp sem boðar breyting- ar á kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu. Frumvarpið sagði hann í umræðuþætti um heilbrigðis- mál á RÚV ganga út á að jafna kostn- aðarbyrði sjúklinga. kristjanabjorg@frettabladid.is Þungur baggi á heimilunum Gjaldtaka í íslensku heilbrigðiskerfi er harðlega gagnrýnd í nýrri skýrslu ASÍ. Ekkert þak er á heildarkostn- aði sjúklinga og mikið ójafnræði er á milli sjúklingahópa eftir því hvaða meðferð þeir sækja. Margir lang- veikir hafi fastan heilbrigðiskostnað sem er verulegur hluti af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum þeirra. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra boðar breytingar. ASÍ segir þörf á róttækum breytingum til að leiðrétta ójafnræði sem er á milli sjúklingahópa. FréttAblAðið/SteFán Heilbrigðisráðherra leggur fram frumvarp um breytingar á kostnaðarþátt- töku sjúklinga á næstunni. viðskipti Búið er að gera kaup- tilboð í húsnæði Smárakirkju, sem áður hét Krossinn, og áfanga- heimilisins Krossgatna, sem bæði eru í Hlíðarsmára 5-7. Þetta segir Sigurbjörg Gunnarsdóttir, forstöðu- maður Smárakirkju. Hún segir ljóst að söfnuðurinn þurfi að flytja verði af viðskiptunum en engar ákvarð- anir hafi verið teknar um framtíð áfangaheimilisins. Í húsnæðinu eru 25 félagslegar íbúðir Smárakirkja og Krossgötur hafa óskað eftir því við Kópavogsbæ að fá að framselja lóðina að Hlíðarsmára til félagsins Kapex fyrir hönd félags- ins L1100 ehf. Jóhannes Hauksson er stjórnarformaður L1100 og sjóðs- stjóri Íslandssjóða, sem rekur meðal annars sjóði sem fjárfesta í húsnæði. Í umsögn fjármálastjóra Kópa- vogsbæjar til bæjarráðs segir að óheimilt sé að selja áfangaíbúðirnar nema með samþykki veðhafa og byggingaryfirvalda. Þá séu áform um að breyta notkun hússins. Á lóðinni er áhvílandi veðskuldabréf sem Kópavogsbær er í ábyrgð fyrir. Því telur fjármálastjóri bæjarins mikilvægt að krafa verði gerð um að skuldabréfin verði greidd upp. Bæjarráð frestaði afgreiðslu máls- ins á fundi sínum 23. mars. – ih Boðið í húsnæði Smárakirkju Akureyri Ákært hefur verið í tveim- ur málum eftir að átak lögreglunnar á Norðurlandi eystra og Akureyrar- bæjar hófs fyrir ári. Enn er fjöldi mála í meðferð hjá lögreglunni. Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri segir átakið hafa gengið vel. „Þetta samkomulag náði einungis til Akureyrar og þeirra sveitarfélaga sem Akureyri þjónustar með Félags- þjónustunni. Á þessu svæði frá 1. mars 2015 til og með 28. febrúar 2016 voru 16 skráð heimilisofbeldis- mál,“ segir Halla Bergþóra. „Alls voru 24 mál skráð á tíma- bilinu þar á undan og tíu mál á sama tíma 2013-2014. Fjölgunin frá tíu málum 2014 í 24 mál nú skýrist af einhverri fjölgun mála en einnig af skýrari reglum um skráningu.“ Halla Bergþóra bendir á að enn sé verið að skoða verklag en að reynslan af átakinu hafi verið góð og samstarfið við Félagsþjónustu Akureyrarkaupstaðar gengið vel. „Öll þessi mál eru skráð sem kærur í málaskrá en tvö mál hafa farið í ákæruferli og enn eru mál í með- ferð,“ segir hún. „Ekki hefur verið tekin ákvörðun um áframhald átaksins en reynslan af því hefur verið góð.“ Þegar skrifað var undir viljayfir- lýsinguna þann 25. febrúar í fyrra sagði lögreglustjóri þetta miklu máli skipta fyrir íbúa svæðisins. „Við viljum vernda almannahags- muni með því að ákæra í þessum málum og leiða þau til lykta,“ sagði lögreglustjórinn. – sa Átak gegn heimilisofbeldi hefur skilað tveimur ákærum Forstöðumaður Smárakirkju segir að viðræður standi enn yfir, ekkert hafi verið ákveðið. FréttAblAðið/SteFán 16 heimilisofbeldismál hafa verið skráð hjá lögreglunni. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um framtíð áfangaheimilisins, ef af sölu verður. stjórnsýslA Kærum Icelandair, Flugfélags Íslands og Mýflugs vegna breytinga á deiliskipulagi Hlíðarenda hefur verið vísað frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála. Flugfélögin þrjú kröfðust þess að deiliskipulagið frá desember 2014 yrði fellt úr gildi og vísuðu til ákvörðunar úrskurðarnefndarinnar um ógildingu deiliskipulags Reykja- víkurflugvallar sem gerði ráð fyrir því að leggja niður NA/SV flug- brautina. Úrskurðarnefndin segir hins vegar að ákvörðun borgar- yfirvalda um Hlíðarenda hafi verið tekin fyrir þann úrskurð. Taki borg- in nýja ákvörðun sé hægt að kæra hana en að kærufrestur vegna fyrri ákvörðunar hafi verið liðinn áður en kærurnar bárust. – gar Vísa kæru frá vegna Hlíðarenda áform á Hlíðarenda kynnt. FréttAblAðið/GVA stjórnsýslA Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra skipar í stöðu skólameistara við Borgarholtsskóla í stað Illuga Gunnarssonar, mennta- og menn- ingarmálaráðherra. Ástæðan er sú að einn umsækjenda um starfið, Ársæll Guðmundsson, er starfs- maður mennta- og menningarmála- ráðuneytisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Umsóknarfrestur um stöðu skóla- meistara Borgarholtsskóla rann út 2. febrúar síðastliðinn og bárust tíu umsóknir. Ráðgert er að skipa í embættið frá og með 1. apríl. – jhh Sigmundur leysir Illuga af 3 1 . m A r s 2 0 1 6 F i m m t u D A g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð 3 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 8 8 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 E 9 -4 3 7 0 1 8 E 9 -4 2 3 4 1 8 E 9 -4 0 F 8 1 8 E 9 -3 F B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.