Fréttablaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 8
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.volkswagen.is Við kynnum til leiks fjórðu kynslóð af vinsælasta atvinnubíl á Íslandi undanfarin ár. Enn meiri staðalbúnaður, aukið öryggi og öflugri vélar eru aðeins nokkur atriði sem gera hinn nýja Caddy svo aðlaðandi. Nú kemur Caddy líka í fimm og sjö manna fjölskylduútfærslu með nálgunarvara og loftpúðum fyrir ökumanns- og farþegarými. Nýr Volkswagen Caddy kostar frá 2.670.000 kr. (2.135.226 kr. án vsk) Glæsilegur vinnubíll www.volkswagen.is AtvinnubílarHEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu. Nýr Volkswagen Caddy Landspítalinn og Háskóli Íslands starfa sem samofin órofa heild og mynda saman öflugt háskólasjúkrahús. Í dægur- þrasi undangenginna missera um staðsetningu nýs Landspítala hefur mikilvægi þessa nána sambands skóla og spítala tíðum gleymst – eða alla vega fallið í skuggann fyrir öðrum hagsmunum þessarar risa- framkvæmdar. Þetta segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, spurður um kosti og galla staðsetningar nýs spítala út frá hagsmunum hans sem háskólasjúkrahúss, en eins og óþarft er að rekja þá hefur um langt árabil verið tekist á um hvar hagfelldast sé að nýr Landspítali standi. Nálægðin lykilatriði Jón Atli segir að uppbygging spítal- ans í Vatnsmýri sé afar mikilvæg háskólanum og kemur þá margt til. Ef standa á vörð um árangur liðinna ára og uppfylla væntingar um upp- byggingu háskólans til framtíðar þá sé nálægðin við Landspítalann lyk- ilatriði, og gildi þá einu hvort horft er til kennslu, vísindastarfs, starfs- þjálfunar eða nýsköpunar. Fyrst af öllu verði að hafa hugfast hversu háskólinn og Landspítalinn eru kyrfilega samofnir í gegnum fólkið sem þar starfar. Nemendur við heilbrigðisvísindasvið háskól- ans séu ríflega 2.000 talsins og aka- demískir starfsmenn þess um 300 – og þar af rúmlega 100 sem eru sameiginlegir starfsmenn háskólans og Landspítalans. Þá hafi verið nefnt í umræðunni hversu aðkallandi það sé að starf- semi spítalans sé ekki dreifð út um alla borg – Landspítalinn starfar jú á sautján stöðum í um 100 húsum. Þetta megi hæglega heimfæra upp á háskólann en sex heilbrigðisvís- indadeildir skólans starfa núna á þrettán stöðum í borginni. Stærsta kennslustofan „Ég hef oft sagt að Landspítalinn sé stærsti og mikilvægasti sam- starfsaðili Háskóla Íslands sem er þó í fjölbreyttu samstarfi við fjölda aðila innan lands sem utan. Land- spítalinn er í raun stærsta kennslu- stofa háskólans. Markmiðið er betri heilbrigðisþjónusta, bætt meðferð, umönnun og þjónusta við sjúklinga og aðstandendur. Samstarfið snýst um að tryggja gæði menntunar og þjálfunar heilbrigðisstarfsfólks og efla Landspítalann sem háskóla- sjúkrahús, og styrkja þannig stöðu hans í harðri samkeppni um hæft starfsfólk við bestu háskólasjúkra- hús í heimi,“ segir Jón Atli og bendir á mikilvægi vísindasamstarfsins og birtingarmynd þess sem er birting á ritrýndum vísindagreinum og fyrir tilstilli Landspítalans séu heilbrigð- isvísindi ein sterkasta vísindagrein háskólans á alþjóðlega vísu. Jón Atli tiltekur einnig nýsköp- un, þar sem hafi sýnt sig að sam- spil háskóla og spítala er mjög mikilvægt. Starfsmenn háskólans koma að stofnun tveggja til þriggja nýsköpunarfyrirtækja á ári og meiri hluti þeirra verður til í samstarfi við spítalann. Margt kemur til „Þetta er það sem blasir við, en það eru ekki bara heilbrigðisvísinda- greinarnar sem eru mikilvægar í þessu samstarfi – sálgæsla í guð- fræði, iðjuþjálfun, félagsráðgjöf, heilbrigðisverkfræði þar sem ekki síst er að finna möguleika í sam- hengi við heilsu og heilbrigði – en þá er fátt eitt nefnt,“ segir Jón Atli og tekur fram að ekki megi gleyma Vísindagörðum Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík þegar þekkingarsamfélagið á svæðinu er til umræðu, en fyrirtæki eins og Íslensk erfðagreining, sem sé mjög mikilvægur samstarfsaðili Háskóla Íslands, er hluti af Vísindagarða- svæðinu. Jón Atli nefnir einnig að til þess að Háskóli Íslands nái að halda áfram sókn sinni verði að fjármagna hann vel, og til samræmis við það sem gerist í löndunum í kringum okkur. Það er lykilatriði. Innviðauppbygg- ing verði að skoðast í því ljósi, og samnýting tækja og aðstöðu. Á sama tíma liggur fyrir að nýr Landspítali mun spara þjóðarbúinu stórfé þegar hann er risinn. „Miklu máli skiptir að viðhalda þeirri gerjun sem nálægð háskól- ans og spítalans skapar og mun efla Landspítalann sem háskólasjúkra- hús til heilla fyrir íslenskt samfélag – um það er ég sannfærður,“ segir Jón Atli. Nálægðin við spítalann afar mikilvæg Í dægurþrasi um hvar nýr Landspítali skuli standa hefur náið samband hans við Háskóla Íslands fallið í skuggann fyrir öðrum hags- munum. Þetta álítur háskólarektor sem segir nálægðina við spítalann lykilatriði við uppbyggingu háskólans til framtíðar. Rannsóknahús nýs Landspítala skiptir ekki síst máli í samstarfi HÍ og LSH. MyNd/SPITAL Ég hef oft sagt að Landspítalinn sé stærsti og mikilvægasti samstarfsaðili Háskóla Íslands sem er þó í fjöl- breyttu samstarfi við fjölda aðila innan lands sem utan. Landspítalinn er í raun stærsta kennslustofa háskólans. Jón Atli Benedikts- son, rektor Háskóla Íslands Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Sigmundur vill Vífilsstaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur reifað þá hugmynd að aðrir staðir kunni að vera heppilegri fyrir Landspítalann en Hringbraut. Nefndi hann Vífils- staði sem dæmi. „Með því er ekki verið að gera lítið úr vinnu þess fólks sem haldið hefur utan um verkefnið til þessa, unnið marga áfanga- sigra og þokað því áfram. Sú vinna verður forsenda byggingar hins nýja spítala hvort sem hann rís við Hringbraut eða annars staðar,“ sagði Sigmundur Davíð á vefsíðu sinni fyrr í mars. Sigmundur Davíð sagði að skipulag og byggingaráform hefðu oft breyst frá því að fyrst var tekin ákvörðun um spítalann. „Samt vindur verkefninu fram. Það eina sem enn er óbreytt er stað- setningin en það hlýtur að vera eðlilegt að meta þann þátt eins og alla hina um leið og við nýtum þá þekkingu sem byggst hefur upp og lögum okkur að þróuninni.“ 2.000 manns nema við heilbrigðis- vísindasvið Háskóla Íslands. 3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r8 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð 3 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 8 8 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 E 9 -6 A F 0 1 8 E 9 -6 9 B 4 1 8 E 9 -6 8 7 8 1 8 E 9 -6 7 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.