Fréttablaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 12
Bandaríkin Bandaríska fréttastofan
Associated Press, AP, gerði á fjórða
áratug síðustu aldar formlegan
samning við nasistastjórn Hitlers í
Þýskalandi.
Samningurinn fól í sér að frétta-
stofan fékk sent efni beint frá áróð-
ursmálaráðuneyti Hitlers. Jafnframt
notaði fréttastofan ljósmyndir frá
áróðursráðuneytinu í fréttaflutningi
sínum vestra.
Þessi samningur gerði fréttastof-
unni kleift að starfa áfram í Þýska-
landi allt þar til Bandaríkin hófu
þátttöku í stríði bandamanna gegn
Þýskalandi árið 1941.
Breska dagblaðið The Guardian
skýrði frá þessu á vefsíðum sínum
og vitnar í rannsókn þýska sagn-
fræðingsins Harriet Scharnberg,
sem birt er í tímaritinu Zeithistor-
ische Forschungen.
AP var eina fréttastofan frá ensku-
mælandi landi sem átti í samstarfi
við nasistastjórnina í Þýskalandi
eftir árið 1935.
Scharnberg skýrir frá því að
AP-fréttastofan hafi þurft að lofa
nasistum því skriflega að birta ekki
neitt efni sem væri til þess fallið að
grafa undan styrk þýsku stjórnar-
innar, hvort heldur í Þýskalandi eða
erlendis.
Í yfirlýsingu frá AP er því alfarið
hafnað að fréttastofan hafi aðstoðað
nasistastjórnina vísvitandi: „Rétt
lýsing er sú að AP og aðrar erlendar
fréttastofur urðu fyrir miklum
þrýstingi frá nasistastjórninni allt
frá því að Hitler komst til valda árið
1932 og þangað til AP var rekin frá
Þýskalandi árið 1941. Yfirstjórn AP
veitti þessum þrýstingi viðnám en
vann að því að safna nákvæmum,
mikilvægum og óhlutdrægum
fréttum á myrkum og hættulegum
tímum.“ Sumar ljósmyndir AP-
fréttastofunnar voru engu að síður
notaðar í grímulausan haturs-
áróður nasistastjórnarinnar gegn
gyðingum.
Til dæmis var mynd AP-fréttastof-
unnar af Fiorello LaGuardia, þáver-
andi borgarstjóra New York, notuð
á forsíðu áróðursbæklings nasista
um gyðinga í Bandaríkjunum. Þá
eru myndskreytingar frá AP not-
aðar í nasistabæklingi, sem hét Der
Untermensch. Báðir bæklingarnir
fengu mikla útbreiðslu í Þýska-
landi og innihéldu ófagran áróður
um fólk sem nasistar vildu útrýma.
„Þótt samningurinn við AP hafi
gert Vesturlöndum kleift að gægjast
inn í kúgunarsamfélag sem annars
hefði hugsanlega verið algerlega
hulið sjónum fólks,“ segir í frásögn
The Guardian, „þá gerði samkomu-
lagið nasistum einnig kleift að
breiða yfir suma af glæpum sínum.“
Þeirri spurningu er velt upp,
hvernig tengslum AP við suma
harðstjóra nútímans sé háttað. Árið
2012 opnaði AP til dæmis skrifstofu
í Norður-Kóreu, fyrst vestrænna
fréttastofa. gudsteinn@frettabladid.is
Fréttastofan AP átti í
samstarfi við nasista
Þýskur sagnfræðingur hefur grafið upp samning, sem gerði bandarísku frétta-
stofunni kleift að starfa í Þýskalandi Hitlers allan fjórða áratug síðustu aldar.
Ljósmyndir frá AP voru notaðar í hatursáróðri nasista gegn gyðingum.
neytendur Rannsóknir alþjóðlegu
náttúruverndarsamtakanna Oceana
á tegundasvikum í sölu sjávarfangs
sýna áþekkar niðurstöður og rann-
sóknir Matís hér á landi. Rannsókn-
ir samtakanna í 21 fylki í Banda-
ríkjunum sýndu að af 1.200 sýnum
sem safnað var voru í 33 prósentum
tilfella aðrar fisktegundir í pakkn-
ingum en merkingar sögðu til um.
Oceana rannsakaði einnig hvernig
málin stæðu á veitingastöðum í
Brussel og í mötuneytum stofnana
Evrópusambandsins. Í Brussel var
um að ræða aðra tegund en fram
kom á matseðli í 31,8 prósenta til-
fella, segir í frétt Matís.
Í alþjóðlegri rannsókn sem Matís
er þátttakandi í, og er enn ólokið,
kom meðal annars fram að um 30
prósent allra sýna, sem tekin hafa
verið á veitingastöðum hérlendis,
innihéldu annan fisk en tilgreint var
á matseðli, eins og fram hefur komið
í fréttum Matís. Rannsóknin nær
til tegundagreiningar á fiski, hvort
fisktegund, samanber niðurstöður
erfðarannsókna, sé í samræmi við
það sem gefið er upp, og taka yfir
fjörutíu aðilar um alla Evrópu þátt.
Í frétt Matís segir að ljóst sé að
heilindi með sjávarfang sé mikið
efnahagslegt hagsmunamál fyrir
framleiðendur, seljendur, neytend-
ur og ekki síst þau lönd sem keppa
um markaðshlutdeild á alþjóð-
legum mörkuðum.
Matís tekur lýsandi dæmi: Þegar
ódýr hvítfiskur er seldur sem þorsk-
ur úr Norður-Atlantshafi getur verð-
munurinn verið mjög mikill og leitt
af sér lægra verð fyrir þorskinn og
þorskafurðir. Marine Stewardship
Council (MSC) hefur bent á að
hefðbundið verð fyrir brauðaðan
pangasíus, sem er eldisfiskur upp-
runninn í Víetnam, sé um fjórar
evrur [575 krónur] á hvert kíló en
verðið á þorski geti verið um 25
evrur [3.600] á hvert kíló. – shá
Tegundasvik í sölu á fiski
virðast útbreitt vandamál 1941
var AP-fréttastofan rekin frá
Þýskalandi þegar Banda-
ríkin hófu þátttöku í stríðinu
gegn nasistum.
Tegunda
svik
virðast
tíðkast
um allan
heim.
Minning Hammarskjolds heiðruð
Viktoría, krónprinsessa Svía, og Stefan Lofven forsætisráðherra hlustuðu á Ban Ki-moon, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, flytja ræðu til heiðurs
Dag Hammarskjold í ráðhúsinu í Stokkhólmi í gær. Hammarskjold var annar aðalritari Sameinuðu þjóðanna en lést þegar flugvél sem hann var far-
þegi í hrapaði nærri Sambíu hinn 18. september 1961. FréTTablaðið/EPa
Belgía Hryðjuverkamennirnir sem
gerðu árás á Zaventem-flugvöll og
Maelbeek-lestarstöðina í Brussel
höfðu leitað sér upplýsinga um
Charles Michel, forsætisráðherra
Belgíu, skrifstofu hans og heimili.
Upplýsingar þess efnis fundust
í fartölvu sem hafði verið fleygt í
ruslatunnu.
Óstaðfestar heimildir herma að
í tölvunni hafi fundist myndir af
skrifstofu forsætisráðherrans og
skipulagsteikningar.
Í tölvunni fundust einnig hinstu
skilaboð eins árásarmannsins, Bra-
hims el-Bakraoui, þar sem hann
kvartar yfir því að hafa verið hund-
eltur.
Belgísk yfirvöld hafa þá endan-
lega staðfest tölu látinna en 32 létust
í árásinni, 17 Belgar og 15 einstak-
lingar af öðrum þjóðernum. – srs
Fylgdust með
ráðherra
Forsætisráðherra indlands Narendra
Modi hitti Charles Michel í belgíu í gær.
NordiCPhoTos/aFP
Samgöngur Stór hluti þeirra ferða
sem Discover the World ætlaði að
bjóða upp á milli Egilsstaða og Gat-
wick í sumar hefur verið felldur
niður. Upphaflega stóð til að ferð-
irnar yrðu 35 en nú lítur út fyrir að
þær verði níu.
Clive Stacey, forstjóri og stofnandi
Discover the World, segir í samtali
við vefinn Túristi.is að upphaflega
planið hafi verið of bjartsýnt. „Eftir
á að hyggja hefðum við átt að bjóða
upp á styttri flugáætlun strax frá
upphafi þar sem hugmyndin um
beint flug til Egilsstaða hefur ekki
fengið eins mikinn hljómgrunn og
við áttum von á,“ segir hann. – jhh
Stór hluti ferða
fellur nður
FréTTablaðið/sTEFáN
3 1 . m a r S 2 0 1 6 F i m m t u d a g u r12 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
E
9
-5
2
4
0
1
8
E
9
-5
1
0
4
1
8
E
9
-4
F
C
8
1
8
E
9
-4
E
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K