Fréttablaðið - 31.03.2016, Qupperneq 20
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Björgvin
Guðmundsson
viðskipta
fræðingur
Í tillögum um endurskoðun almannatrygginga er gert ráð fyrir því, að grunnlífeyrir verði skertur á ný vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Lengi
vel var samstaða um það, að ekki mætti hreyfa
við grunnlífeyri almannatrygginga. Hann væri
heilagur. Og þannig er þetta í Noregi. Þar fá allir
grunnlífeyri án tillits til tekna. Á krepputímanum
hér var talið nauðsynlegt vegna fjárhagserfiðleika
að skerða grunnlífeyri. Félag eldri borgara í Rvk
og LEB mótmæltu þessu og kröfðust þess, að þessi
skerðing yrði afnumin. Við því var orðið 2013
eftir þingkosningarnar. Það er því furðulegt, að nú
skuli strax eiga að byrja að skerða grunnlífeyri á ný
vegna lífeyrissjóða.
Ég tel tillögurnar um endurskoðun almanna-
trygginga meingallaðar. Stærsti gallinn er sá, að
það er engin kjarabót fyrir lægst launuðu lífeyris-
þegana, þá sem eingöngu hafa tekjur frá TR. Þeir
fá enga hækkun. Þó er það viðurkennt, að ekki sé
unnt að lifa af hinum lága lífeyri. Annar stór galli
er sá, að skerðingarhlutfallið, 45%, er alltof hátt
eins og Landssamband eldri borgara hefur bent
á. Í Noregi er engin skerðing og í Danmörku 30%
eftir frítekjumark. Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sendi eldri borgurum bréf
fyrir síðustu kosningar og lofaði að afnema allar
tekjutengingar almannatrygginga. Samkvæmt því
átti að afnema alveg skerðingu lífeyris aldraðra hjá
TR vegna lífeyrissjóða. Það hefði legið beint við að
efna þetta loforð við endurskoðun almannatrygg-
inga. En þvert á móti er ný skerðing tekin upp á
grunnlífeyri.
Samkvæmt tillögum um TR eru öll frítekjumörk
felld niður. Af því og háu skerðingarhlutfalli leiðir,
að skerðing lífeyris aldraðra hjá TR vegna atvinnu-
tekna eykst og erfiðara fyrir eldri borgara að vinna,
ef þeir hafa heilsu til. Skerðing vegna greiðslna úr
lífeyrissjóði minnkar lítið þrátt fyrir loforð um að
afnema hana alveg.
Grunnlífeyrir skertur á ný
vegna lífeyrissjóða!
Lengi vel var
samstaða um
það, að ekki
mætti hreyfa
við grunnlíf
eyri almanna
trygginga.
Hann væri
heilagur. Og
þannig er
þetta í Noregi.
Þar fá allir
grunnlífeyri
án tillits til
tekna.
Seguldrifinn
blandari
Þrír ráðherrar í ríkisstjórninni eru á lista skatt-rannsóknarstjóra yfir eigendur aflandsfélaga. Mál eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-sonar forsætisráðherra sem á félag á Bresku Jómfrúaeyjum hefur verið í brennidepli frá því
hún upplýsti um eign sína í þarsíðustu viku. Á þriðjudag
kom það svo í ljós að Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra og Ólöf Nordal innanríkisráðherra eru tengd
félögum í skattaskjólum. Bjarni átti 40 milljóna króna
hlut í félagi sem staðsett var á Seychelles-eyjum, en hélt
að það væri skráð í Lúxemborg. Ólöf og eiginmaður
hennar voru hins vegar með umboð fyrir félag sem
stofnað var í nafni þeirra hjóna á Bresku Jómfrúaeyjum
sem þau tóku aldrei yfir.
Það er ekki ólöglegt að vera ríkur á Íslandi. Meira að
segja getur það verið mun heppilegra en hitt, að stjórn-
málamenn séu fjárhagslega sjálfstæðir.
En þorri Íslendinga á bágt með að tengja við þörfina
á því að vera með sérfræðinga sem búa til félög á fjar-
lægum eyjum til að halda utan um milljóna fjárfest-
ingar. Og þrátt fyrir að ekkert bendi til þess að það hafi
verið nokkuð ólöglegt við þessa gjörninga, þá snúast
þeir samt sem áður um skattaskjól, þar sem peningar
sem verða til hér á landi eru færðir til og geymdir annars
staðar, þar sem íslenskt samfélag fær ekki notið þeirra.
Mál ráðherranna þriggja eru pólitískt óheppileg.
Það er óheppilegt að Bjarni hafi sagt í viðtali fyrir um
ári að hann hefði ekki átt neinar eignir eða viðskipti í
skattaskjólum. Það er óheppilegt að eiginkona Sig-
mundar ákveði að geyma fjármuni sína erlendis þegar
aðrir Íslendingar búa við höft og geta ekki verið með
erlendan sparnað. Og það er óheppilegt að ráðherrar
hafi yfirhöfuð átt eða eigi félög í skattaskjólum á sama
tíma og alþjóðasamfélagið, sem Ísland tilheyrir, berst
gegn tilvist þeirra. Afar óheppilegt, en ekki ólöglegt.
En málin eru eðlisólík innbyrðis. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Bjarna og Ólöfu er í þeirra tilvikum um að
ræða tíu ára gömul félög sem hafa ekki verið starfandi
frá því þau settust í ráðherrastól. Í félagi eiginkonu
Sigmundar eru hins vegar háar fjárhæðir sem ákveðið
hefur verið að geyma erlendis eftir að hann tók að sér
að vera helsti talsmaður alls sem íslenskt er, sér í lagi
íslensku krónunnar.
Stjórnarandstaðan á Alþingi krefst þess að stjórnin
víki og hyggst leggja fram þingsályktunartillögu um
þingrof. Hún telur traust milli þings og þjóðar horfið –
almenningur verði að fá að segja hug sinn í kosningum.
Slík þingsályktunartillaga myndi varla hafa nokkrar
beinar afleiðingar yrði hún samþykkt, enda er það
aðeins á færi forseta Íslands ásamt forsætisráðherra að
rjúfa þing formlega. Samþykkt slíkrar tillögu myndi þó
líkast til hafa pólitískar afleiðingar og væntanlega vera
undanfari vantrauststillögu á hendur forsætisráðherra.
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar telja enga hættu steðja
að stjórninni og standa keikir, enda með ríflegan meiri-
hluta að baki sér. Líklegt verður að telja að stjórnin
muni standa þetta af sér eins og önnur mál sem hingað
til hafa komið upp. Það breytir því þó ekki að trúverðug-
leiki þeirra hefur beðið hnekki.
Traustið
Það er
óheppilegt að
ráðherrar hafi
yfirhöfuð átt
eða eigi félög í
skattaskjól
um á sama
tíma og
alþjóðasam
félagið, sem
Ísland til
heyrir, berst
gegn tilvist
þeirra.
Flókið heimilisbókhald
Sigurður Ingi Jóhannsson, land-
búnaðar- og sjávarútvegsráð-
herra, sagði í fréttatíma Stöðvar
2 í gær að það væri flókið að eiga
peninga á Íslandi. Þetta sagði
hann í samhengi við eignir eigin-
konu forsætisráðherra í skatta-
skjóli. Hann ætti reyndar að
hlusta betur á kollega sinn í fjár-
málaráðuneytinu sem er búinn að
sýna fram á að enn erfiðara er að
eiga fjármagn í útlöndum en hann
týndi heilu eignarhaldsfélagi, hélt
að það væri í Mið-Evrópu en það
reyndist vera á miðju Indlands-
hafi. Birgitta Jónsdóttir, þing-
flokksformaður Pírata, orðaði
þetta reyndar best á Facebook í
gær: „Held að flestir upplifi að það
sé flókið að eiga ekki peninga.“
Rússnesk rúlletta
Verði tillaga um þingrof að veru-
leika mun hún vafalaust bitna á
öllum flokkum. Stjórnarflokk-
arnir ganga óvinsælir til kosninga
án þess að klára mikilvæg mál líkt
og afnám hafta og fá ekki að leggja
fram hin reglulegu kosninga-
fjárlög. Píratar mælast stærstir
en eru ekki tilbúnir til kosninga.
Innviðir þeirra eru slæmir og
framboð þeirra mun einkennast
af óvinsælum lukkuriddurum þar
sem hver höndin er uppi á móti
annarri. Síðan þarf ekki að hafa
mörg orð um fylgi hinna stjórnar-
andstöðuflokkanna. Hinar
óvæntu kosningar yrðu því lítið
annað en rússnesk rúlletta.
stefanrafn@frettabladid.is
3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r20 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð
SKOÐUN
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
E
9
-4
D
5
0
1
8
E
9
-4
C
1
4
1
8
E
9
-4
A
D
8
1
8
E
9
-4
9
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K