Fréttablaðið - 31.03.2016, Qupperneq 21
Kunningi minn sagði mér um daginn sögu af banka sem hann hafði og fjölskylda hans öll skipt við um margra
áratuga skeið. Bankinn reyndi eftir hrun
að hafa af honum húsið eins og mörgum
öðrum (tíu þúsund nauðungarsölur hafa
farið fram frá hruni, þrjár til fjórar á dag).
Bankinn hafði þó að þessu sinni ekki erindi
sem erfiði. Á lokafundinum með útibússtjór
anum, að lokinni undirskrift samnings sem
tryggði kunningja mínum áframhaldandi
eignarhald á húsi sínu, fékk hann útibús
stjóranum miða með frægri tilvitnun í John
F. Kennedy Bandaríkjaforseta líkt og til að
lýsa framgöngu bankans eins og hún horfði
við honum: „Mitt er mitt. Þitt er samnings
atriði.“ Útibússtjórinn leit á miðann og
sagði: „Enda var hann skotinn.“
Ýta og ýta
Donald Trump, kaupsýslumaðurinn sem
stefnir á að verða forsetaframbjóðandi repú
blikana í Bandaríkjunum í haust, birti fræga
bók um samningatækni 1987, The Art of
the Deal. Þar segir hann (í þýðingu minni):
„Aðferð mín við samningaborðið er sáraein
föld, hrein og bein. Ég stefni mjög hátt og
held áfram að ýta og ýta til að fá mitt fram.
Fyrir kemur að ég sem um minna en ég ætl
aði, en oftast fæ ég vilja mínum framgengt.“
Aðferð Trumps mætti kalla „Allt eða ekkert“
sem er annað vel þekkt dæmi um ósveigjan
leika í samningum. Hvorugur aðilinn getur
undir venjulegum kringumstæðum ætlazt til
að fá allt sitt fram. Sanngirni og sveigjanleiki
í samningum felast í að mætast á miðri leið.
Ganga á gerðar sættir
Eiga menn þá alltaf að reyna að mætast á
miðri leið? Nei. Setjum svo að samningur
hafi verið gerður og annar aðilinn biðji strax
um betri samning. Á hinn aðilinn þá að
setjast aftur að samningaborðinu? Ef Árni
og Bjarni sömdu um að skipta landareign
til helminga, á Árni þá að setjast niður strax
aftur með Bjarna til að semja við hann um
að skipta sínum hlut upp á nýtt? Nei, auð
vitað ekki eins og ráða má af tilvitnuninni
í Kennedy að framan. Þeir voru búnir að
semja. Upphafsstaðan skiptir máli. Í nýjum
samningum reyna sanngjarnir menn að
mætast á miðri leið, en ekki að nýloknum
samningum. Orð og undirskriftir skulu
standa. Annað heitir að ganga á gerðar
sættir.
Þjóðaratkvæði sem samningur
Því er þessi saga reifuð hér að sumir virðast
telja það vitna um óbilgirni og einstrenging
að krefjast þess að niðurstaða þjóðar
atkvæðagreiðslunnar um nýja stjórnarskrá
2012 sé virt. Hugsunin er þá sú að menn
þurfi að mætast á miðri leið. Þeir sem halda
þessari skoðun fram flaska á einföldu atriði:
þeim láist að gera greinarmun á nýjum
samningum og nýloknum samningum.
Tökum dæmi. Menn geta samið fyrir fram
um úrslit í knattspyrnuleik (það er að vísu
brot gegn gildandi reglum, en látum það
liggja milli hluta), en menn semja ekki um
úrslitin eftir á. Að loknum leik liggja úrslitin
fyrir og þeim verður ekki haggað. Líku máli
gegnir um kosningar. Menn og flokkar geta
gert með sér bandalög fyrir kosningar, en
um úrslitin verður ekki samið eftir á. Úrslitin
standa. Kosningar eru bindandi. Þær ber því
að skoða sem frágengna samninga, gerðar
sættir, enda gerist það næstum aldrei að
kosningaúrslitum sé breytt eftir á.
Þjóðaratkvæðagreiðslu má líkja við
bindandi samning um að niðurstaða hennar
skuli virt. Gildir þá einu hvort hún er kölluð
ráðgefandi eða bindandi þar eð þjóðin er
æðri þinginu. Sé atkvæðagreiðslan ráð
gefandi skv. lögum þarf e.t.v. ekki að hlíta
niðurstöðu hennar út í yztu æsar heldur
dugir að hlíta úrslitunum efnislega. Þann
skilning lagði meiri hluti stjórnskipunar og
eftirlitsnefndar Alþingis, sex nefndarmenn
af níu, í málið á síðasta kjörtímabili og
einsetti sér því að gera aðeins orðalags
breytingar á frumvarpi Stjórnlagaráðs að
nýrri stjórnarskrá en engar efnisbreytingar.
Forsagan var öllum ljós. Alþingi hafði heitið
þjóðinni nýrri stjórnarskrá í 70 ár án þess
að efna heitið. Hefði Alþingi ætlað að nýta
sér að atkvæðagreiðslan var ráðgefandi
frekar en bindandi hlaut þingið að ætla sér
að styrkja frumvarpið með almannahag að
leiðarljósi frekar en veikja það til að þóknast
sérhagsmunum. Ef Alþingi hyggst á hinn
bóginn skýla sér á bak við þá staðreynd að
atkvæðagreiðslan var ráðgefandi með því
að brjóta efnislega gegn úrslitum atkvæða
greiðslunnar, þá eru það svik: samningsrof.
Valgerður Bjarnadóttir, einn fulltrúinn
í stjórnarskrárnefnd Alþingis, lýsir vand
anum vel með einkunninni sem hún gefur
tillögum nefndarinnar í grein í Herðubreið:
„Útkoman er sú sem afturhaldsöflin geta
fallist á.“
Allt eða ekkert?
Þjóðar-
atkvæða-
greiðslu má
líkja við
bindandi
samning um
að niðurstaða
hennar skuli
virt. Gildir þá
einu hvort
hún er kölluð
ráðgefandi
eða bindandi
þar eð þjóðin
er æðri
þinginu.
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag
Si g m u n d u r D a v í ð Gunnlaugs
son forsætis
ráðherra ætlar
að setjast niður
með Kára Stef
ánssyni. Heil
b r i g ð i s k e r f i ð
verður eflaust til
umræðu þar. Eitt
af því sem ráð
herrann getur
áorkað strax er
að vinna í að
hans flokkur greiði atkvæði gegn
breytingum á áfengislöggjöfinni.
Kári tók nýlega undir and
mæli allra fagstétta sem vinna að
menntun og velferð barna varðandi
breytingar á áfengislöggjöfinni.
Þegar Kári stofnaði Velferðarsjóð
íslenskra barna árið 2000 var full
þörf á að hlúa betur að börnum á
Íslandi. Sjóðurinn hefur frá stofnun
styrkt um meira en 800 milljónir
króna margvísleg verkefni sem hlúa
að velferð og geðheilbrigði barna.
Enn er aðkallandi að sinna geðheil
brigðismálum barna betur, eins
og langir biðlistar segja til um. Nú
hefur allsherjar og menntamála
nefnd samþykkt frumvarpið um
breytt fyrirkomulag á sölu áfengis. Í
samþykkt nefndarinnar kemur fram
að heimilisofbeldi muni aukast með
breyttu fyrirkomulagi á sölu áfengis.
Undirritaður veit ekki til þess að
slík samþykkt máls með yfirlýsingu
um afleiðingar samþykktar hafi átt
sér stað áður á alþingi eða í þingum
landa sem við berum okkur saman
við. Heimilisofbeldi hefur marg
víslegar alvarlegar afleiðingar,
ekki síðst á geðheilbrigði barna. Í
miklum meirihluta tilfella eru börn
og barnshafandi konur fórnarlömb.
Eitt mikilvægasta viðfangsefni
samfélagsins er að efla geðheil
brigði barna. Það er málefni sem
stofnanir samfélagsins sem fjalla
um heilsu og almannaheill eru ein
huga um. Allar fagstéttir sem vinna
að menntunar og velferðarmálum
hafa bent á skaðann sem aukið
aðgengi að áfengi veldur. Samtök
foreldrafélaga og samtök barna og
ungmenna eru í hópi þeirra sem eru
andvíg sölu áfengis í matvöruversl
unum. Meira en 70 prósent kvenna
eru samkvæmt könnun Frétta
blaðsins andvíg því að selja áfengi
í verslunum.
Eitt helsta þrekvirki velferðar
kerfisins er árangurinn sem náðst
hefur í jafnrétti kynjanna en með
því að fara gegn vilja kvenna og
barna í þessu máli er stigið risa
skref afturábak í jafnréttismálum.
Hér er um að tefla stærra mál en
svo að það snúist bara um hver fær
að selja hvað. Aðgerða er þörf og
flokkur ráðherrans dugar til að fella
frumvarpið. Í leiðinni að tryggja að
heilbrigðiskerfið veiti fjármagn til
geðheilbrigðisþjónustu, frekar en
vinnu vegna afleiðingar aukinnar
áfengisneyslu.
Hvort ætlar forsætisráðherra
Íslands að standa með þjóðinni eða
forsvarsmönnum verslunarinnar í
þessu mikilvæga máli?
Forsætisráðherra
sest með Kára
Eitt helsta þrekvirki vel-
ferðarkerfisins er árangurinn
sem náðst hefur í jafnrétti
kynjanna en með því að fara
gegn vilja kvenna og barna í
þessu máli er stigið risaskref
afturábak í jafnréttismálum.
Ólafur Grétar
Gunnarsson
fjölskyldu- og
hjónaráðgjafi
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ðF i M M T u d a g u R 3 1 . M a R s 2 0 1 6
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
E
9
-5
C
2
0
1
8
E
9
-5
A
E
4
1
8
E
9
-5
9
A
8
1
8
E
9
-5
8
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K