Fréttablaðið - 31.03.2016, Qupperneq 24
Alzheimerssjúkdómurinn er framsækinn og óaftur-kræfur heilasjúkdómur sem
smám saman veikir hugarstarf
fólks, þangað til það getur ekki
lengur sjálft framkvæmt einföldustu
athafnir daglegs lífs. Áður en fyrstu
einkenni koma fram í hegðun hefur
sjúkdómurinn þó dreift úr sér í heil-
anum í mörg ár eða jafnvel áratugi.
Ýmsir þættir, bæði erfðafræðilegir
og lífsstílstengdir, geta aukið eða
minnkað líkurnar á að fólk greinist
með Alzheimerssjúkdóm, en stærsti
áhættuþátturinn er þó aldur. Miklar
breytingar eru að verða á aldurs-
samsetningu vestrænna þjóða og
af þessum sökum er búist við að
heildarfjöldi Alzheimerssjúklinga
muni aukast um 110% frá árinu
2010 til ársins 2050.
Þessi framtíðarspá veldur
mörgum áhyggjum og skrifuðu
109 vísindamenn frá 36 löndum
undir áskorun til forystumanna
G8 ríkjanna árið 2013, um að gera
forvarnir fyrir heilabilun að einu af
forgangsverkefnunum í heilbrigðis-
þjónustu. Þessir vísindamenn töldu
að í um það bil helmingi tilfella sé
Alzheimerssjúkdómur til kominn
af völdum þekktra áhættuþátta og
með því að gera átak í að minnka
þessa áhættuþætti mætti fækka
sjúkdómstilfellum um fimmtung
fyrir árið 2025. Aðrir hafa reiknað
út að 10-15% minnkun á nokkrum
áhættuþáttum Alzheimerssjúk-
dómsins, geti haft í för með sér
fækkun sjúkdómstilfella um 1,1 til
3 milljónir á heimsvísu.
Í grófum dráttum má skipta sjúk-
dómsferli Alzheimerssjúkdóms í
þrennt, þ.e. upplifaða minnisskerð-
ingu, væga vitræna skerðingu og
heilabilun, eftir stigvaxandi alvar-
leika sjúkdómsins. Fólkið sem er
lengst komið í sjúkdómsferlinu og
er komið á stig heilabilunar, á oft
kost á dagþjálfun á endurhæfingar-
deildum fyrir aldraða. Engin sér-
hæfð endurhæfing er þó í boði fyrir
fólk með upplifað minnistap eða
væga vitræna skerðingu. Hér er því
mikið rúm til endurbóta.
Einungis greining en engin
meðferð
Í fyrsta lagi mætti beina forvörnum
að fólki á miðjum aldri sem sumt
er byrjað að þróa með sér heilabil-
unarsjúkdóm án þess að finna fyrir
verulegum einkennum. Þetta mætti
gera með markvissum aðgerðum
sem miða að því að minnka reyking-
ar, auka hreyfingu, hvetja til holls
mataræðis, minnka sykursýki og
meðhöndla háþrýsting. Í öðru lagi
mætti bjóða fólki með allra fyrstu
einkenni Alzheimerssjúkdóms, en
er ennþá vel starfhæft í daglegu lífi,
upp á endurhæfingu sem miðar
að því að halda því sem lengst frá
heilabilunarstiginu, t.d. með mark-
vissri hreyfingu, hugrænni þjálfun,
félagslegri virkni o.s.frv. Eins og
staðan er í dag fær fólk á allra fyrstu
stigum Alzheimerssjúkdómsins
einungis greiningu en enga með-
ferð, að undanskildum lyfjum sem í
sumum tilfellum geta hægt á fram-
gangi sjúkdómsins í takmarkaðan
tíma. Það er dapurleg staða að fá
greiningu um allra fyrstu stig heila-
bilunarsjúkdóms en engin úrræði til
að spyrna við fótum.
Við lesum daglega í fjölmiðlum
um aðþrengt heilbrigðiskerfi þar
sem starfsfólk er á harðahlaupum
við að halda öllu gangandi, oft á
tíðum við óviðunandi aðstæður.
Miðað við mannfjöldaspár mun
álagið í fyrirsjáanlegri framtíð
að öllum líkindum aukast ennþá
meira ef ekkert verður að gert. Við
þekkjum öll einstaklinga sem hafa
náð háum aldri án þess að hugrænni
færni þeirri hraki svo neinu nemi.
Við vitum líka að hægt er að gera
ýmislegt til að stuðla að því að sem
flest okkar geti lifað lengi við góða
heilsu og heilbrigt hugarstarf. Með
því að fara í markvissar forvarnir
getum við sparað peninga og aukið
lífsgæði einstaklinga í samfélagi
okkar og létt álagi af heilbrigðiskerfi
framtíðarinnar.
Lengri útgáfu þessarar greinar má
finna á heilahreysti.is
Gefum heilanum gaum:
Forvarnir fyrir
Alzheimerssjúkdóm
Fyrir nokkru átti ég orðaskipti við formann Umhverfis- og skipulagsnefndar í Reykjavík
um það hvort til væri borðleggjandi
húsnæðisstefna í borginni. Lærifeður
mínir í skipulagsfræðum fyrir margt
löngu fóru ekki í grafgötur með það
hvað stefna þyrfti að innihalda til
þess að geta staðið undir nafni. Þar
sem ákveðin stefna í húsnæðismál-
um skiptir miklu fyrir alla borgarbúa
er kannski rétt að rifja þessi atriði
upp, svona til þess að forðast mis-
skilning.
Þau helstu atriði sem hér um
ræðir eru einkum fjögur. Í fyrsta lagi
þarf það sem stefnan nær til að vera
mælanlegt – t.d. fjöldi íbúða; fer-
metrar eða rúmmetrar. Í öðru lagi
þarf stefnan að vera framkvæmanleg
og gera þarf grein fyrir fjármögnun.
Í þriðja lagi þarf stefnan að vera
tímasett svo að hægt sé að fylgjast
með framvindu hennar – t.d. 1.000
íbúðir á ári næstu 5 ár. Í fjórða lagi
þarf svo einhver að vera ábyrgur fyrir
framkvæmd viðkomandi stefnu. Til
viðbótar má bæta því við að nú er
almennt talin kurteisi við almenn-
ing að meta bæði jákvæð og neikvæð
áhrif af viðkomandi stefnu áður en
hún kemur til framkvæmda.
Í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-
2030, bls. 164 er að finna stefnu
borgarinnar í húsnæðismálum sem
ber heitið „Húsnæði fyrir alla“. Þar
segir m.a. í markmiðum að: „Leitast
verði við að tryggja fjölbreytt fram-
boð húsagerða og búsetukosta fyrir
alla félagshópa.“ Þessu er fylgt eftir
með ýmsum almennum yfirlýs-
ingum um af hverju skuli taka mið
og m.a. sagt að: „Húsnæðisstefnan
byggist á markmiðum um sjálfbæra
þróun og hagkvæma uppbyggingu
borgarinnar.“ Auðvitað er öllum
frjálst að trúa hverju sem er, en sam-
kvæmt því sem hér hefur verið sagt
að ofan er þetta of óljóst til þess að
hægt sé að kalla þetta stefnu. Til að
vekja engar óraunhæfar væntingar
hjá fólki ætti því að velja þessu eitt-
hvert annað nafn.
Nú kann vel að vera að einhverjir
Íslendingar telji okkur ekki þurfa að
vanda stefnumörkun og ákvarðana-
töku, eftir því sem þekkingu á þessu
sviði fleygir fram og við getum haldið
áfram með okkar „framtíðarsýnir“ og
að skipa helstu hagsmunaaðila eða
vini í nefndir til þess að ráða fram
úr flóknum málum. Biflían er líka
full af sögum um fólk sem sá sýnir
(e: visions) og talaði tungum og
hvers vegna ættum við þá að færa
okkur í nyt þekktar aðferðir sam-
tímans og kenningar um ákvarðanir
(e. decision theory) við stefnumótun
og nútíma skipulag ef við getum
komist upp með annað?
Kynni sér fræðin
Þeir sem bjóða sig fram til þess að
móta stefnu og taka ákvarðanir
fyrir okkur hin gerðu hins vegar rétt
í að kynna sér þessi fræði og nota
þau við úrlausn mála. Ef það hefði
verið gert vissum við Reykvíkingar
t.d. hvaða stefna réð því að ákveðið
var að skipuleggja turn fyrir inn-
siglingarvitann í Reykjavík og hver
bar ábyrgð á að framfylgja þeirri
stefnu sem kostaði okkur borgar-
búa marga milljónatugi að ekki sé
minnst á aðrar hremmingar sem við
Reykvíkingar stöndum frammi fyrir
á þessu sviði.
Íslenskir stjórnmálaflokkar fá
umtalsvert fé úr sameiginlegum sjóð-
um landsmanna til þess að standa
forsvaranlega að stefnumörkun
og ákvörðunum og allar líkur eru
á að ungt, vel menntað fólk, geri
kröfu um að tiltæk þekking verði
notuð við framtíðarstefnumótun
og skipulag. Ef við sem þjóð ætlum
okkur eitthvað í framtíðinni held
ég að við þurfum að geta orðað það
skýrar en að tala óljóst um einhverja
þokubakka eða sýnir á sjóndeildar-
hringnum. Þetta vita aðrar þjóðir,
eins og t.d. Bandaríkjamenn sem
aldrei hefði tekist að koma manni á
tunglið ef þeir hefðu ekki notað til-
tæka aðferðafræði samtímans.
Það skiptir kjósendur vaxandi
máli að fá eitthvað annað en
almennt orðagjálfur frá stjórnmála-
mönnum um einhverjar „framtíðar-
sýnir“ til þess að kjósendur geti bæði
valið á milli einstaklinga og flokka og
kallað þá til ábyrgðar sem móta við-
komandi stefnu og eiga að framfylgja
henni.
Stefnur og sýnir
Fyrirhugaður er mikill vöxtur í laxeldi á Íslandi á komandi árum. Samtals hefur verið sótt
um framleiðsluleyfi á um 100-120
þúsund tonnum af laxi. Gróflega má
því áætla að um 50 milljónir frjórra
norskra laxa verði á sundi í sjókvíum
við strendur Íslands ef af þessum
áformum verður. Því miður er það
þannig, þrátt fyrir besta búnað og
ítarlegar verklagsreglur, að laxar
sleppa úr kvíum. Veiðimálastofnun
hefur bent á að samkvæmt norskum
rannsóknum megi áætla að það
sleppi einn lax úr sjókvíum fyrir hvert
framleitt tonn af laxi. Ef fyrrgreindar
áætlanir ganga eftir gætu því um 100-
120 þúsund laxar sloppið úr sjókvíum
á hverju ári.
Til þess að setja þessar tölur í sam-
hengi þá veiðast að meðaltali um
50.000 villtir laxar á Íslandi árlega.
Miðað við algengt veiðihlutfall, sem
er um 60%, ganga þá um 83.000 laxar
í íslenskar ár á hverju sumri. Hrygn-
ingarstofninn er þá um 33-50.000
fiskar. Samkvæmt þessu eru allar líkur
á að fleiri frjóir laxar af norskum eldis-
uppruna sleppi úr sjókvíum á hverju
ári heldur en sem nemur stofnstærð
íslenska laxastofnsins og um þrefalt
fleiri að meðaltali en stærð hrygn-
ingarstofnsins. Ekki þarf að fjölyrða
um afleiðingar þessa fyrir íslenska
laxastofna.
Skýrar sannanir um afleiðingar
liggja fyrir
Ný skýrsla Norsk institutt for natur-
forskning (NINA) sýnir hrollvekjandi
afleiðingar af stórfelldu laxeldi fyrir
stofna villtra laxa í Noregi. Í nýlegri
skýrslu stofnunarinnar kom fram að
af 125 stofnum villtra laxa sem voru
rannsakaðir var þriðjungur með
milda erfðamengun og þriðjungur
með alvarlega eða mjög alvarlega
erfðamengun. Áhrif erfðablöndunar
eru háð hlutfalli innblöndunar en ef
um mikla og langvarandi innblöndun
er að ræða er hún óafturkræf. Norski
eldislaxinn er erfðafræðilega frá-
brugðinn íslenska laxastofninum,
hraðvaxta, verður seint kynþroska
og er aðlagaður að eldi en ekki því að
þrífast í íslenskri náttúru. Afleiðingin
af erfðablöndun verður hnignun og
útrýming þeirra villtu stofna sem fyrir
eru.
Áætlanir um eldi
í Ísafjarðardjúpi
Þrjár ár renna í Ísafjarðardjúp sem
skila um 150-500 laxa meðalveiði
hver. Ætlunin er að framleiða á svæð-
inu 6.800 tonn af laxi á hverju ári.
Engar líkur eru á því að þessar ár sem
hafa ekki stærri stofna en raun ber
vitni þoli nábýli við sjókvíaeldi sem
inniheldur 2,8 milljónir eldislaxa. LV
hefur bent atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytinu á nauðsyn þess að
friða Ísafjarðardjúp fyrir eldi norskra
laxa en ráðuneytið sýnir því miður
ekki þá umhverfisábyrgð að verða
við beiðni sambandsins um friðun.
Ólöglegt er að valda
erfðamengun
Íslensk lög kveða á um bann gegn
blöndun laxastofna. Óheimilt er
með öllu að flytja laxastofna milli
veiðivatna og ekki má nota inn-
flutta stofna til fiskræktar. Að okkar
mati jafngildir jafn umfangsmikið
sjókvíaeldi og nú er fyrirhugað því að
sleppa norskum laxi beint í íslenskar
laxveiðiár.
Mörg þeirra fyrirtækja sem eru að
hasla sér völl í þessum iðnaði hér-
lendis hafa sótt sér hlutafé til norskra
laxeldisfyrirtækja, þeirra sömu og
hafa valdið því að ástand villtra laxa-
stofna í Noregi er með þeim hætti að
einungis um þriðjungur þeirra er án
erfðamengunar. Norsk stjórnvöld eru
nú að marka þá stefnu að laxeldið taki
meira tillit til umhverfisins og eldið
fari í vaxandi mæli fram í lokuðum
kerfum. Með þeirri aðferð er hvorki
laxalús eða strokulaxar vandamál
lengur. Hingað sækja því norsku fyrir-
tækin í ókeypis eldisleyfi þar sem allt
er gert upp á gamla mátann með til-
heyrandi skaðlegum áhrifum á villta
laxastofna.
Við viljum með þessari grein hvetja
alla þá sem vilja verja íslenskar lax-
veiðiár að berjast með öllum tiltæk-
um ráðum gegn þessari hættu sem
nú steðjar að óspilltum, villtum laxa-
stofnum og einstakri náttúru Íslands.
Verjum íslenska
laxastofna
Þeir sem bjóða sig fram til
þess að móta stefnu og taka
ákvarðanir fyrir okkur hin
gerðu hins vegar rétt í að
kynna sér þessi fræði og nota
þau við úrlausn mála.
Eins og staðan er í dag fær
fólk á allra fyrstu stigum
Alzheimerssjúkdómsins
einungis greiningu en enga
meðferð, að undanskildum
lyfjum sem í sumum tilfellum
geta hægt á framgangi sjúk-
dómsins í takmarkaðan tíma.
Afleiðingin af erfða-
blöndun verður hnignun
og útrýming þeirra villtu
stofna sem fyrir eru.
Brynhildur
Jónsdóttir
M.Sc. í sálfræði,
Sálfræði
þjónustu LSH,
Landakoti
Gestur Ólafsson
arkitekt og
skipulags
fræðingur
Jón Helgi
Björnsson
formaður
Landssambands
veiðifélaga
Viktor
Guðmundsson
formaður
Landssambands
stangaveiðifélaga
Aðalfundur
Bílgreinasambandsins 2016
Fimmtudaginn 14. apríl kl. 14:00
á Grand Hótel Reykjavík
Fundur hefst á málstofu.
Að henni lokinni taka við venjubundin aðalfundarstörf.
Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Við skorum á félagsmenn að mæta !
3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
E
9
-7
4
D
0
1
8
E
9
-7
3
9
4
1
8
E
9
-7
2
5
8
1
8
E
9
-7
1
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K