Fréttablaðið - 31.03.2016, Page 28
3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X X
Skósafnið sem Jóhann Gunnlaugsson notar mest þessa dagana. Í efri röð (f.v.): Loake, Red Wing, Chippewa og Clarks. Í neðri
röð (f.v.): Alden, Wolverine og Clarks. MYND/ANTON BRINK
„Góðir skór verðar fallegri með árunum meðan skór sem eru verri að gæðum verða
oft sjoppulegir,“ segir Jóhann Gunnlaugsson skóáhugamaður. MYNDIR/ANTON BRINK
Jóhann lagi mikið á sig fyrir þessa skó,
Alden Indy Boots 403.
Loake Burford úr 1880 Collection frá
Loake Shoemakers.
1000 mile Watson
frá Wolverine.
Skóáhuginn hefur fylgt Jóhanni
Gunnlaugssyni, 35 ára gömlum
tæknimanni hjá Öskju, í mörg ár
og virðist bara aukast með árun-
um. Hann segist lítið fyrir skó og
fatnað sem hefur tímabundinn líf-
tíma og er háður tískusveiflum.
Frekar kýs hann dýrari og vand-
aðri vörur sem endist lengi.
Hversu mikið er Hægt að
leggja á sig fyrir góða skó?
Fyrir nokkrum árum sá ég skó í
gamalli bíómynd sem ég kolféll
fyrir. Ég gat ekki hætt að hugsa
um þá og fann þá á netinu eftir
smá leit. Ég bauð konunni til New
York í „borgarferð“ um haustið og
keypti skóna sem eru Alden Indy
Boot og sjá má hér til hliðar.
Hvað Heillar mest
við vandaða skó?
Það er eitthvað við það að hand-
fjatla góðan og vel smíðaðan grip.
Mér finnst sorglegt hvernig gott
handverk er farið að víkja í aukn-
um mæli fyrir ódýrari framleiðslu.
Í flestum tilvikum gerum við
bestu kaupin þegar við fjárfestum
í vandaðri vöru þrátt fyrir að hún
sé dýrari, því hún endist lengur.
Góðir og vandaðir leðurskór kosta
eins og tvö pör af vinsælum striga-
skóm. Flestir eru þó ekki lengur en
eitt ár í sömu strigaskónum meðan
góðir leður skór eru að detta í að
vera „tilgengnir“ á þeim tíma.
Hvernig skór eru í
mestu uppáHaldi?
Ég er mest
fyrir klassísk
„workboots“
þó fíngerðari
skór heilli einn-
ig, líkt og klassískir Oxford-
skór. Allir skórnir mínir voru
upphaflega hannaðir fyrir tugum
ára en eru algerlega tímalausir í
útliti. Ég er ekki mikið fyrir fatn-
að eða skó sem hafa tímabundinn
líftíma háðan tískusveiflum.
kallar íslenskt veðurfar
á ákveðna skó?
Vegna veðurfarsins hér nota ég
mikið uppháa og harðgerari skó
sem þola meira. Ég nota t.d. mjög
mikið grófbotna Iron Ranger frá
Red Wing sem eru albestu vetrar-
skór sem ég hef átt. Þeir hafa verið
í mestu uppáhaldi hjá mér, þá helst
vegna notagildis frekar en fagur-
fræðinnar.
Hversu mörg skópör
eru í gangi?
Ég er með 6-8 pör í notkun hverju
sinni. Stundum fær maður nóg af
skóm í bili, pakkar þeim og hvílir.
Sumir skór henta ekki öllum árs-
tíðum eins og önnur klæði og því
ber að gefa þeim hvíld af og til.
Hvernig Hugsar
þú um skóna
þína?
Ég pússa þá reglu-
lega og strýk svo
yfir með rökum
klút. Ef saltblettirnir
eru þrálátir þá nota
ég milda leðursápu
en það borgar sig að
fara varlega í þeim
efnum enda oft mikið af náttúr-
legum olíum og vaxi í leðrinu. Svo
þarf að rífa reimarnar úr og maka
næringu eða olíu, hvort sem á við.
Láta þá standa yfir nóttina og
pússa svo upp með góðum
mjúkum bursta.
tekur ekki
tíma að
ganga skó til?
Góðir skór verða fallegri með
árunum meðan skór sem eru verri
að gæðum verða oft sjoppulegir.
Þegar leðrið mýkist og skórn-
ir mótast þá eru þeir orðnir að
þínum, ekki fyrr. Það þarf að vera
smá hundur í þeim svo þeir nái að
sýna sitt besta.
eru einHver sérstök
skókaup fyrirHuguð?
Næst eru það Alden Blucher í
Shell Cordonvan leðri frá banda-
ríska skóframleiðandanum Alden.
Þeir hafa verið í sigtinu í talsverð-
an tíma og nú verður af því.
það þarf smá Hund
Grunnurinn að skóáhuga Jóhanns Gunnlaugssonar er áhugi á
góðu handverki og klassískri hönnun. Enda kýs hann helst að
klæðast vönduðum og dýrum skóm því þeir endast miklu lengur.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin BelladonnaStærðir 38-58
Nýjar vörur í hverri viku
Lógó með adressulínu
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt)
Lindon/Modest buxur
Kvart- og síðbuxur
Margir litir
Stærðir 36-50
Verð 8.980
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Netverslun á tiskuhus.is
Flott föt,
fyrir flottar konur
F ó l k ∙ k y n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
E
9
-5
C
2
0
1
8
E
9
-5
A
E
4
1
8
E
9
-5
9
A
8
1
8
E
9
-5
8
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K