Fréttablaðið - 31.03.2016, Page 36

Fréttablaðið - 31.03.2016, Page 36
Útgefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSjónarmaðUr aUglýSinga Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429 ÁbyrgðarmaðUr Svanur Valgeirsson Veffang visir.is Jóhann Vilhjálmsson, Jói byssu- smiður, eins og hann er kallaður, er núverandi formaður klúbbsins. Hann segir að um tuttugu manns séu virkir félagar í klúbbnum en margir sem koma að honum. Á þriðjudagskvöldum er fundað og þá eru öllum velkomið að kíkja í heimsókn. „Ólafur Gunnarsson var formaður fyrstu árin, enda er hann mikill kadilakkaðdáandi eins og Einar. Þessi klúbbur er tengd- ur ameríska Cadillac-klúbbnum sem heitir CLC eða Cadillac La- Salle Club en hann er með deildir um allan heim. Klúbburinn er ekki mjög formlegur hér á landi, engin félagsgjöld og yfirleitt eru kosn- ingar rússneskar,“ útskýrir Jói. Eðalbílar frá gullöldinni Bílarnir eru geymdir í Cadillac- kjallara í Faxafeni þar sem klúbburinn er til húsa. Þar hafa verið haldin blúskvöld og ýmsir skemmtikraftar troðið upp. „Það eru hátt í tuttugu flottir kadilakk- ar í kjallaranum núna. Við geym- um þá inni á vetrum en förum með þá út á vorin. Fyrirhuguð er vor- ferð hjá okkur í maí,“ segir Jói og bætir við að kjallarinn sé eins og félagsmiðstöð. „Við hittumst einu sinni í viku, menn dytta að bílun- um og rabba saman. Elsti bíllinn er frá árinu 1962. Þetta eru eðal- bílar frá gullöldinni. Um 1976 kom bensínkreppa og þá hættu Kanarn- ir að framleiða þessa stóru dreka og fóru í eyðslugrennri bíla. Kadil- akkinn er áhugamál hjá okkur og sumir eiga fleiri en einn bíl. Það er hobbí að vinna í bílunum, enda er miklu auðveldara að gera við gamla bíla en þessa nýju tölvu- stýrðu. Áður fyrr unnu menn við- gerðir í höndunum og mín kynslóð fékkst mikið við að fixa bíla sem er ekki hægt lengur. Þessir bílar eru ekki mikið keyrðir og eiginlega ekkert í snjó. Þess vegna eru þeir enn til. Sumir þeirra hafa verið lengi á Íslandi en aðrir voru flutt- ir inn á meðan dollarinn var ódýr. Það voru ekki margir Íslendingar sem áttu kadilakk, einna helst for- stjórar stórfyrirtækja,“ segir Jói. Ekið um á skýi Cadillac-klúbburinn fór í vorferð á Blönduós í fyrra sem var vel heppnuð, að sögn Jóa. Síðan var landsmót á Skógum. „Við erum alltaf við Hörpu á menningar- nótt í Reykjavík með bílana. Þeir eru líka vinsælir fyrir brúðkaup, myndatökur, auglýsingar og annan fagnað. Sumrin eru tíminn okkar,“ segir Jói og bendir á að margt ungt fólk hafi aldrei séð svona dreka áður. „Ég sá þá á mínum yngri árum á götun- um en svona bílar sjást ekki leng- ur. Það er mjög gott að keyra þessa bíla þótt þeir séu komnir til ára sinna, það er í raun engu líkt. Mér finnst ég aka á skýi þegar ég fer á rúntinn,“ segir hann einlægur. Allir eru bílarnir sjálfskiptir. Eldri bílarnir eru með sjálfskiptinguna í stýrinu. Jói segir að framleiðendur Cad- illac hafi alltaf verið framarlega í þróun og hönnun. „Nýjungar í bílahönnun komu oft frá þeim,“ segir hann. Þegar Jói er spurð- ur hvort auðvelt sé að fá varahluti svarar hann að netið hafi gjör- breytt þeirri stöðu. „Ég byði nú ekki í það ef ekki væri eBay. Fyrir tuttugu árum fékk maður viftureim í alla bíla á bensínstöðv- um. Svo er ekki lengur.“ Smíðar byssur og hnífa Í síðustu viku var upphafskvöld Blúshátíðar í Reykjavík haldið í Cadillac-kjallaranum. Þar voru um áttatíu gestir, bæði innlendir og frá Bandaríkjunum. „Það eru allir velkomnir að kíkja til okkar á þriðjudagskvöldum. Við erum stundum með kaffi og vöfflur eða pitsur svo það er alltaf eitthvað um að vera.“ Fyrir utan að vera forfallinn kadilakk-aðdáandi er Jói öflug- ur veiðimaður. Hann smíðar bæði byssur og veiðihnífa. Hægt er að skoða hnífana á heimasíðunni icelandicknives.com. Þá hefur Jói farið með hópa til Póllands í veiðiferðir árlega. „Það eru mjög skemmtilegar ferðir,“ segir hann. Cadillac-klúbburinn er með Face book-síðuna Islenski Cadillac klubburinn. elin@365.is  Strákadraumar í bílakjallara Cadillac-klúbburinn á Íslandi var stofnaður af rithöfundunum Einari Kárasyni og Ólafi Gunnarssyni árið 2005 en þeir félagar fóru í bílferð á kadilakk eftir Route 66 í Bandaríkjunum. Þeir gáfu út bók um ferðina og á næstunni verður frumsýnd kvikmynd um hana. jóhann Vilhjálms- son er svolítið blús- legur þar sem hann situr um borð í eðal- vagni af gerðinni Cadillac. jóhann, róbert  og maggi í texas á  10 ára afmæli íslenska  Cadillac-klúbbsins. jóhann Vilhjálmsson ásamt stofnfélögum í Cadillac-klúbbnum, Svenna í Plús film, Steina í Svissinum, einari Kárasyni og ólafi gunnarssyni. Þeir eru flottir, kadilakkarnir. Þessi fremsti er Cadillac fleetwood brougham d’elegance  árgerð 1976. myndir/bjÖrn blÖndal malbiK Kynningarblað 31. mars 20162 3 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 8 8 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 E 9 -9 2 7 0 1 8 E 9 -9 1 3 4 1 8 E 9 -8 F F 8 1 8 E 9 -8 E B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.