Fréttablaðið - 31.03.2016, Qupperneq 42
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Bryndís Hauksdóttir| bryndis@365.is | s. 512-5434
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
Húsið er mikil bæjarprýði í dag.
aðalstræti 32 áður en framkvæmdir hófust (efst t.v.), meðan á framkvæmdum stóð (neðst t.v.) og loks eins og það lítur út í dag (t.h.).
„Þetta er hús sem afi og amma
áttu en þau keyptu það árið 1929.
Amma bjó í húsinu til ársins 2002
og ég tók við því eftir að hún féll
frá,“ segir Kristinn um húsið við
Aðalstræti 32 á Akureyri sem
hefur tekið stakkaskiptum síðast
liðin ár og er nú orðið hin mesta
bæjarprýði.
Hann segir aldur hússins að
eins á reiki og ekki nákvæmlega
vitað hvenær fyrsti hluti þess var
byggður. „Hússins er ekki getið í
fasteignaskrá fyrr en 1898 þegar
það var portbyggt. Þá voru hækk
aðir veggir, sett ris og skipt um
glugga og klæðningu. Bygging
ar fóru ekki á skrá fyrr en þær
voru meira virði en 500 krónur
og þarna hefur sá múr líklega
verið rofinn,“ útskýrir Kristinn
en einhverjar heimildir benda til
að húsið hafi verið risið árið 1857
og jafnvel fyrir árið 1840.
Mikil en skemmtileg vinna
Þegar Kristinn tók við húsinu lá
fyrir að vinnan yrði ærin. „Húsið
hafði verið klætt að utan með as
besti til að þétta það. Fyrsta
verkið var því að taka asbestið
af sem þýddi geimfaragalla og
tilheyrandi græjur,“ segir Krist
inn glettinn. Klæðningin undir
asbestinu var sums staðar orðin
fúin að neðan, öll fótstykki voru
farin og grindin einnig fúin að
hluta. „Þó minnst í elsta hlutan
um en meira í viðbyggingunum,“
lýsir Kristinn sem fékk Húsafrið
un til liðs við sig og fékk þar ráð
leggingar um hvernig best væri
að standa að málum. „Niður
staðan var sú að ég fékk góðan
smið í vinnu, Rúnar Búason, sem
hefur unnið fyrir Þjóðminjasafn
ið meðal annars við endurbygg
ingu á húsum,“ segir hann.
Gert var við grindina eins og
hægt var en öðrum hlutum henn
ar var skipt út. „Allt var þetta
tappað saman og gert á gamla
mátann enda reyndum við að
vera trúir því sem við höfðum
í höndunum,“ segir Kristinn en
sett var ný klæðning utan á húsið
og nýir gluggar.
Útihurðin komin á sinn stað
Margt var endurnýtt úr húsinu.
Til dæmis er sagan af útidyra
hurðinni skemmtileg. „Útidyra
hurðinni, sem hafði verið í húsinu
til ársins 1940, hafði verið skipt
út fyrir nýmóðins hurð. Henni
var hins vegar ekki hent held
ur var hún notuð sem hurð milli
fjóssins og verkstæðisins. Þessa
hurð tókum við, gerðum upp og
settum á sinn upprunalega stað.“
Kristinn segir afskaplega
gaman að gera upp svona gam
alt hús og honum hafi aldrei
fallist hendur. „Ég áttaði mig á
áður en við byrjuðum að þetta
yrði gríðar lega mikil vinna. Mér
fannst afskaplega skemmtilegt
að byrja að rífa og sjá úr hverju
húsið var gert og velta fyrir mér
upprunanum,“ segir Kristinn
sem telur að húsið hafi uppruna
lega verið smíðað upp úr efniviði
úr öðru húsi. „Við réðum það af
þiljum sem aldrei voru sýnilegar
í þessu húsi að viðirnir eru feiki
gamlir og hafa vafalaust verið að
fluttir.“
Kristinn vann sjálfur mikið í
húsinu. Hann er rafiðnfræðingur
en segist alinn upp á smíðaverk
stæði. „Líklega er það eitthvað
genetískt að vilja smíða því báðir
afar mínir og pabbi voru smiðir,“
segir hann.
Flytja inn í sumar
Þó Kristinn hafi strax vitað að
hann langaði til að gera húsið upp
hafði hann engin sérstök plön um
hvað síðan ætti að gera við það.
„Ég sá fyrir mér að ég gæti notað
það sem sumarbústað sem ég
gæti gengið í á hálftíma,“ segir
hann glaðlega en í vetur tóku
hann og eiginkona hans, Edda S.
Friðgeirsdóttir, ákvörðun um að
flytja í húsið. „Það er afskaplega
gott að vera þarna,“ segir Krist
inn sem stefnir á flutninga í byrj
un sumars. solveig@365.is
Ég áttaði mig á áður en við byrjuðum að þetta
yrði gríðarlega mikil vinna. mér fannst afskaplega
skemmtilegt að byrja að rífa og sjá úr hverju húsið
var gert og velta fyrir mér upprunanum.
Kristinn Björnsson
Þessi skemmtilega hannaði eld-
húskrókur kemur í ljós þegar geng-
ið er upp stiga í þessu fallega
húsi í Minneapolis í Bandaríkjun-
um. Þarna er fagurfræðin höfð að
leiðar ljósi um leið og allir kost-
ir hússins eru nýttir. Eldhúsborðið
stendur við glugga þar sem hægt
er að horfa út í garð. Stigahand-
riðið er nýtt sem hillueining sem
gefur pláss fyrir bækur, blöð eða
skrautmuni. Horft er frá eldhúsi.
Einstaklega skemmtileg hönn-
un. Þetta hús var nýlega endur-
hannað af Fiddlehead Interior De-
sign í Bandaríkjunum og gert upp
af Streeter & Ass ociates en á síðu
þeirra má skoða fallega hönnuð
íbúðarhús.
Hillur í handriði
HÚSnæði og ViðHald
31. mars 20162
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
E
9
-9
C
5
0
1
8
E
9
-9
B
1
4
1
8
E
9
-9
9
D
8
1
8
E
9
-9
8
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K