Fréttablaðið - 31.03.2016, Síða 74

Fréttablaðið - 31.03.2016, Síða 74
LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS BOÐAR TIL ÁRSFUNDAR FIMMTUDAGINN 7. APRÍL KL. 16 ÁRSFUNDUR LISTAHÁSKÓLANS 2016 Fundurinn verður haldinn í bókasafni skólans, Þverholti 11, 6. hæð. Á fundinum kynna stjórnendur skólans starfsemi hans og rekstur. Fyrirspurnir og umræður. Fundurinn er öllum opinn. Stjórn Listaháskóla Íslands TónlisT söngtónleikar HHHHH stabat mater eftir Pergolesi í flutningi Maríu Konráðsdóttur, Erlu Dóru Vogler og sólborgar Valdi- marsdóttur. Dómkirkjan Föstudaginn langa Mærin mæra mændi? Þessi undar- lega setning er úr þýðingu Matthíasar Jochumssonar á helgikvæðinu Stabat mater sem var ort á þrettándu öld. Mærin mæra er auðvitað María mey og ljóðið fjallar um það þegar hún „mændi“ á Krist á krossinum, harmi slegin. Það hefur verið tónsett af fjöl- mörgum tónskáldum, þar á meðal hér á landi. Að þessu sinni var tón- listin eftir Pergolesi og tónleikarnir fóru fram í hádeginu í Dómkirkjunni föstudaginn langa. En bíðum við. Það er lögbrot að halda tónleika fyrir klukkan þrjú á föstudaginn langa. Tónleikarnir voru því glæpsamlegir, ef svo má segja! Þrjú glæpakvendi stóðu að þeim, María Konráðsdóttir sópran, Erla Dóra Vogler mezzósópran og Sólborg Valdimarsdóttir píanóleikari. Það var María sem benti á staðreyndina um glæpinn áður en tónleikarnir hófust. Tónlistin var samin á átjándu öld. Undirspilið er hugsað fyrir lítinn hóp strengjaleikara ásamt organista. Óneitanlega var það þunnur þrett- ándi að aðeins væri boðið upp á píanóútsetningu. Sólborg lék þó af nákvæmni og festu, en hún hefði mátt móta betur hendingar og laglínur. Allar nóturnar voru á sínum stað, en það var ekki nógu mikil ljóðræna í þeim. Þetta gerði tónlistina nokkuð tilbreytingarlausa. Það voru of fá lit- brigði til að krydda sönginn og gera hann spennandi. Söngurinn sjálfur var samt fallegur í sjálfu sér. María hefur vissulega for- kunnarfagra rödd og allir langir tónar, sérstaklega á efsta sviðinu, voru unaðslegir áheyrnar. En stuttir tónar voru stundum dálítið loðnir. Hraðar tónastrófur hefðu mátt vera meitlaðri og skýrari, þá hefði söngurinn verið fullkominn. Þess verður að geta að María er enn í námi, hún stundar mastersnám við Listaháskólann í Berlín. Óhætt er að fullyrða að hún er ákaflega efnileg og það verður athyglisvert að fylgjast með henni er fram líða stundir. Erla Dóra var pottþéttari í sínu hlutverki. Rödd hennar er einnig frábær og söngurinn var jafnari og fókuseraðri en hjá Maríu. Hún söng af áhrifamikilli tilfinningu og ein- lægni, túlkunin var hástemmd og alvöruþrungin, en jafnframt gædd viðeigandi snerpu. Það var magnað að hlýða á hana. Jónas Sen niðursTaða: Sumpart góður en nokkuð litlaus flutningur á Stabat mater eftir Pergolesi. Glæpsamlegir tónleikar í Dómkirkjunni Á hádegistónleikum í Fríkirkjunni í dag flytur Alexandra Chernyshova sópransöngkona brot úr óperunni Skáldið og biskupsdóttirin, ásamt Guðrúnu Ásmundsdóttur sögu- manni, Ásgeiri Páli Ágústssyni barí- tonsöngvara og Magnúsi Ragnars- syni orgelleikara. Þær Alexandra og Guðrún eru höfundar óperunnar sem var frumflutt árið 2014. „Við leggjum áherslu á hina djúpu vináttu Hallgríms Péturssonar sálmaskálds og Ragnheiðar Brynj- ólfsdóttur biskupsdóttur. Þau voru sálufélagar þó að 28 ár skildu þau að í aldri,“ segir Alexandra. „Hann deildi með henni ljóðum sem hann sýndi ekki öðrum og hann var sá fyrsti sem hún sagði frá ást sinni á Daða og hamingjunni sem henni fylgdi. Meðal þess sem við Ásgeir Páll syngjum í dag er dúettinn Ó, veistu minn vinur.“ Alexandra segir Guðrúnu hafa unnið mikla heimildarvinnu við skrif handritsins, ásamt Ingu Huld Hákonardóttur sagnfræðingi. Meðal þess sem þar komi fram sé að Ragn- heiður hafi verið meðal þeirra fyrstu sem Hallgrímur gaf handrit að passíusálmunum. „Þá upplifði hún að hann var ekkert venjulegt skáld, heldur eitthvað miklu meira.“ Tónleikarnir tilheyra tónleika- röðinni Á ljúfum nótum. Þeir hefj- ast klukkan 12 og taka um hálfa klukkustund. Aðgangseyrir er 1.500 krónur. gun@frettabladid.is Syngja um sálufélagana Hallgrím og Ragnheiði biskupsdóttur „Það kveður við nýjan tón hjá mér á þessari sýningu. Undanfarin ár hef ég gefið frjálsri teikningu laus- an tauminn og verið þekkt fyrir verk sem ganga nálægt kynvitund kvenna á bersöglan hátt. Nú er ég að færa mig nær klassíkinni aftur og leita í hefðbundna módelteikningu eftir lifandi fyrirmynd. Með því að teikna mannslíkamann segir maður frá innri líðan, hvað það þýðir að vera manneskja,“ segir Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður sem opnar sýningu í dag á Skóla- vörðustíg 21. „Konurnar tíu sem reka Skúma- skot eru listamenn og hönnuðir. Þær buðu mér að vera með fyrstu sýninguna þar og mér þykir mjög vænt um það,“ segir Kristín kampa- kát. Tekur fram að til að skoða list hennar sé gengið í gegnum verslun- ina inn í ágætan sýningarsal með tveimur stórum gluggum sem snúi að Njálsgötu. Myndirnar í nýja salnum í Skúma- skoti eru allar unnar sem stúdíur af líkömum bæði karla og kvenna að sögn Kristínar. Hún kveðst hafa verið að teikna módel síðustu ár, bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur með öðrum listamönnum og kenn- urum og líka heima í vinnustofunni sinni. Hún segir það mikla ögrun fyrir listamann að sýna teikningar og vatnslitamyndir því þar geti hann ekki falið neitt. „Það eru engar flóttaleiðir færar því maður getur engu breytt í verkinu,“ útskýrir hún. Kristín segir vægi módelteikninga hafa minnkað í námi myndlistar- manna hér á landi í seinni tíð. Til dæmis sé ekki lögð áhersla á módel- teikningu í Listaháskóla Íslands. Því séu nokkrar kynslóðir listamanna að koma upp sem hafi lítil kynni af þeirri grein og henni finnst synd að þeir fari á mis við hana. „Ég get ekki ímyndað mér sjálf hvar ég stæði ef ég gæti ekki leitað í þann grunn sem módelteikningin er,“ segir hún. „Mannslíkaminn er svo mikið viðmið – og hann segir allt.“ Sýningin er opin á opnunartíma verslunarinnar og stendur til 17. apríl. Það eru engar flóttaleiðir færar Mannslíkaminn er Kristínu Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu yrkisefni bæði í teikningum og bláum gvassmyndum sem hún birtir í nýjum listasal Skúma- skots að Skólavörðustíg 21. Sýninguna opnar hún í dag klukkan 16. Hann deildi Með Henni ljóðuM SeM Hann Sýndi eKKi öðruM oG Hann var Sá fyrSti SeM Hún SaGði frá áSt Sinni á daða. Flytjendurnir Ásgeir Páll Ágústsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Alexandra og Magnús Ragnarsson. „Nú er ég að færa mig nær klassíkinni aftur og leita í módelteikningu eftir lifandi fyrirmynd,“ segir listakonan Kristín. FRéttAblAðið/SteFÁN Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is erla Dóra söng af áhrifamikilli tilfinn- ingu og einlægni að sögn dómarans. Með því að teiKna MannSlíKaMann SeGir Maður frá innri líðan, Hvað það þýðir að vera ManneSKja. 3 1 . M a r s 2 0 1 6 F i M M T u D a G u r38 M E n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð 3 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 8 8 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 E 9 -2 F B 0 1 8 E 9 -2 E 7 4 1 8 E 9 -2 D 3 8 1 8 E 9 -2 B F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.