Fréttablaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 76
vinir séu hollir hver fyrir annan.
Þetta eru orðin flókin sambönd og
kannski svolítið meiðandi og upp-
full af afbrýðisemi. Þessir vinir eru
að gera upp ýmis mál sem tengjast
meðal annars fyrrverandi kærustum
og vonbrigðum með að draumarnir
frá unglingsárunum hafi ekki ræst.“
Atli segir myndina nútímalega og
kallast vel á við þann tíma sem við
lifum á í dag. „Það sem mér finnst
mjög skemmtilegt við þessa mynd
er að hún er mjög „modern“. Þessar
týpur og þessi sambönd gætu ekki
hafa verið til á neinum öðrum tíma
en í upphafi 21. aldarinnar. Þetta
eru hvítir millistéttarkrakkar sem
eru að díla við svona fyrsta heims
vandamál. Ég held að íslensk ung-
menni og íslenskir hipsterar ættu
að geta tengt við þetta.“
Myndin var tekin fyrir rúmu einu
og hálfu ári og var Atli við tökur í
rúman mánuð. Hann segir tökurn-
ar hafa verið skemmtilegan tíma
og samheldni hafa ríkt í hópnum.
„Við bjuggum eiginlega öll saman
og vorum að skjóta saman og á
kvöldin fórum við og fengum okkur
að borða, fórum á barinn og vorum
að kíkja á það sem við höfðum verið
að gera yfir daginn. Það myndaðist
góð og vinaleg stemning á meðan á
þessu stóð og ég held að það sjáist í
myndinni. Ég held að það hafi skipt
máli að fá þennan fíling á settinu
til þess að láta þetta smitast inn í
myndina og fá þennan afslappaða
vinalega fíling.“
Atli er ekki leikari að mennt eða
aðalstarfi en hefur líkt og áður sagði
þó leikið í tveimur stuttmyndum
eftir sama leikstjóra en einnig fór
hann með hlutverk í vefþáttaröð-
inni Cloud of Ash sem leikstýrt var
af Steindóri Grétari Jónssyni.
Atli viðurkennir að það sér örlítið
skrýtið að sjá sjálfan sig á hvíta
tjaldinu þó það sé skemmtilegt líka.
„Það er ekki eins og að horfa í spegil
allavega. Þetta er eitthvert undar-
legt tilbrigði við mann sjálfan.
Maður þekkir sumt og annað ekki
í eigin fari.“ Engin frekari verkefni
liggja þó fyrir að svo stöddu en Atli
skýtur þó ekki loku fyrir að hann
taki að sér frekari hlutverk í fram-
tíðinni ef gott býðst. „Ég er allavega
í símaskránni ef einhver vill, ég er
alveg til í það.“
Sýningarnar þrjár verða í Bíói
Paradís 7.-9. apríl en upplýsingar
um tímasetningu og miðaverð má
nálgast á vefsíðunni Bioparadis.is.
gydaloa@frettabladid.is
Það sem mér finnst
mjög skemmtilegt
við Þessa mynd er að hún er
mjög „modern“. Þessar
týpur og Þessi sambönd
gætu ekki hafa verið til á
neinum öðrum tíma en í
upphafi 21. aldarinnar.
Frumsýningar
Gamanmynd, dramamynd
Aðalhluverk: Rolf Lassgård,
Zozan Akgün og Tobias Almborg.
Frumsýnd 1. apríl
IMDb 7,6/10
maður sem heitir ove
Hasar, vísindaskáldskapur
Aðalhlutverk: Mary Elizabeth
Winstead, John Goodman
og John Gallagher Jr.
Frumsýnd 1. apríl
IMDb 7,8/10
Rotten Tomatoes 90%
10 Cloverfield lane
Vísindaskáldskapur, ævintýri
Aðalhlutverk: Shailene Woodley,
Theo James, Zoe Kravitz, Miles
Teller, Naomi Watts, Ansel
Elgort, Maggie Q, Jeff Daniels og
Johnny Weston.
Frumsýnd 8. apríl
IMDb 6,1/10
Rotten Tomatoes 11%
the divergent series:
allegiant
Atli kynntist leikstjóra myndarinnar, Alexander Carson, þegar hann var búsettur í Montreal og hefur einnig farið með hlutverk
í tveimur stuttmyndum eftir hann. Mynd/northCountryCineMA
Efnt verður til þriggja sýn-inga á kanadísku indí-kvikmyndinni O, Brazen Age í Bíó Paradís í næstu viku.
Myndin var sýnd á kvikmynda-
hátíðinni RIFF síðastliðið haust
og hefur síðan þá ferðast um kvik-
myndahátíðir og er stefnan sett á
að myndin fari í almenna dreifingu
í haust. Leikstjóri myndarinnar er
hinn kanadíski Alexander Carson
en meðal þeirra sem leika í kvik-
myndinni er íslenski fjöllistamað-
urinn Atli Bollason sem fer með
hlutverk samnefnds flippskúnks í
myndinni.
„Það eru frekar margar persónur
og þetta er í rauninni ekki ein saga
heldur margar sem fléttast saman.
Þetta er saga af heilum vinahóp og
ég leik einn þessara vina. Hann er
svona frekar flippaður myndi ég
segja, hinir vinirnir ólust allir upp
saman í úthverfi Toronto en þeir
kynnast mér seinna á lífsleiðinni og
ég er svona einhver flippskúnkur,“
segir Atli. „Ég náði bara að tengja
mjög vel við það,“ segir hann hlæj-
andi þegar hann er spurður að því
hvort hann hafi átt í erfiðleikum
með það að tengjast persónu sinni
í myndinni. „Það hjálpaði kannski
að persónan heitir sama nafni og ég
þannig að það má vel vera að leik-
stjórinn hafi kannski byggt Atla í
myndinni á Atla Bolla,“ bætir hann
við dullarfullur.
Leikstjóranum kynntist Atli
þegar hann var búsettur í Mont-
real í Canada. „Þegar ég var þarna
úti þá lék ég í einhverri stuttmynd
sem hann gerði og síðan hittumst
við nokkrum árum síðar í Detroit
í Bandaríkjunum og skutum aðra
stuttmynd saman þannig að þetta
er í þriðja sinn sem við vinnum
saman.“ O, Brazen Age er fyrsta
mynd leikstjórans í fullri lengd en
hann hefur einnig gert stuttmyndir
og hlaut Golden Gate-verðlaunin
á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í San Francisco fyrir stuttmyndina
Numbers & Friends árið 2014. Einn-
ig hefur hann gert stuttmyndirnar
We Refuse to Be Cold og Braids.
O, Brazen Age er lýst sem þroska-
sögu og hugleiðingu um ljósmynd-
un, minningar og minjagrip sem
dregur upp mynd af vináttu og trú
á 21. öldinni. „Hún fjallar um vina-
hóp sem er búinn að vera til lengi en
það er ekki þar með sagt að þessir
Íslenskir hipsterar ættu að tengja
kanadíska kvikmyndin o, brazen age verður sýnd í bíói paradís í næstu viku. atli
bollason leikur þar flippskúnkinn atla og segir góða stemningu hafa verið á setti.
3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r40 m e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð
bíó
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
E
9
-4
3
7
0
1
8
E
9
-4
2
3
4
1
8
E
9
-4
0
F
8
1
8
E
9
-3
F
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K