Fréttablaðið - 31.03.2016, Síða 76

Fréttablaðið - 31.03.2016, Síða 76
vinir séu hollir hver fyrir annan. Þetta eru orðin flókin sambönd og kannski svolítið meiðandi og upp- full af afbrýðisemi. Þessir vinir eru að gera upp ýmis mál sem tengjast meðal annars fyrrverandi kærustum og vonbrigðum með að draumarnir frá unglingsárunum hafi ekki ræst.“ Atli segir myndina nútímalega og kallast vel á við þann tíma sem við lifum á í dag. „Það sem mér finnst mjög skemmtilegt við þessa mynd er að hún er mjög „modern“. Þessar týpur og þessi sambönd gætu ekki hafa verið til á neinum öðrum tíma en í upphafi 21. aldarinnar. Þetta eru hvítir millistéttarkrakkar sem eru að díla við svona fyrsta heims vandamál. Ég held að íslensk ung- menni og íslenskir hipsterar ættu að geta tengt við þetta.“ Myndin var tekin fyrir rúmu einu og hálfu ári og var Atli við tökur í rúman mánuð. Hann segir tökurn- ar hafa verið skemmtilegan tíma og samheldni hafa ríkt í hópnum. „Við bjuggum eiginlega öll saman og vorum að skjóta saman og á kvöldin fórum við og fengum okkur að borða, fórum á barinn og vorum að kíkja á það sem við höfðum verið að gera yfir daginn. Það myndaðist góð og vinaleg stemning á meðan á þessu stóð og ég held að það sjáist í myndinni. Ég held að það hafi skipt máli að fá þennan fíling á settinu til þess að láta þetta smitast inn í myndina og fá þennan afslappaða vinalega fíling.“ Atli er ekki leikari að mennt eða aðalstarfi en hefur líkt og áður sagði þó leikið í tveimur stuttmyndum eftir sama leikstjóra en einnig fór hann með hlutverk í vefþáttaröð- inni Cloud of Ash sem leikstýrt var af Steindóri Grétari Jónssyni. Atli viðurkennir að það sér örlítið skrýtið að sjá sjálfan sig á hvíta tjaldinu þó það sé skemmtilegt líka. „Það er ekki eins og að horfa í spegil allavega. Þetta er eitthvert undar- legt tilbrigði við mann sjálfan. Maður þekkir sumt og annað ekki í eigin fari.“ Engin frekari verkefni liggja þó fyrir að svo stöddu en Atli skýtur þó ekki loku fyrir að hann taki að sér frekari hlutverk í fram- tíðinni ef gott býðst. „Ég er allavega í símaskránni ef einhver vill, ég er alveg til í það.“ Sýningarnar þrjár verða í Bíói Paradís 7.-9. apríl en upplýsingar um tímasetningu og miðaverð má nálgast á vefsíðunni Bioparadis.is. gydaloa@frettabladid.is Það sem mér finnst mjög skemmtilegt við Þessa mynd er að hún er mjög „modern“. Þessar týpur og Þessi sambönd gætu ekki hafa verið til á neinum öðrum tíma en í upphafi 21. aldarinnar. Frumsýningar Gamanmynd, dramamynd Aðalhluverk: Rolf Lassgård, Zozan Akgün og Tobias Almborg. Frumsýnd 1. apríl IMDb 7,6/10 maður sem heitir ove Hasar, vísindaskáldskapur Aðalhlutverk: Mary Elizabeth Winstead, John Goodman og John Gallagher Jr. Frumsýnd 1. apríl IMDb 7,8/10 Rotten Tomatoes 90% 10 Cloverfield lane Vísindaskáldskapur, ævintýri Aðalhlutverk: Shailene Woodley, Theo James, Zoe Kravitz, Miles Teller, Naomi Watts, Ansel Elgort, Maggie Q, Jeff Daniels og Johnny Weston. Frumsýnd 8. apríl IMDb 6,1/10 Rotten Tomatoes 11% the divergent series: allegiant Atli kynntist leikstjóra myndarinnar, Alexander Carson, þegar hann var búsettur í Montreal og hefur einnig farið með hlutverk í tveimur stuttmyndum eftir hann. Mynd/northCountryCineMA Efnt verður til þriggja sýn-inga á kanadísku indí-kvikmyndinni O, Brazen Age í Bíó Paradís í næstu viku. Myndin var sýnd á kvikmynda- hátíðinni RIFF síðastliðið haust og hefur síðan þá ferðast um kvik- myndahátíðir og er stefnan sett á að myndin fari í almenna dreifingu í haust. Leikstjóri myndarinnar er hinn kanadíski Alexander Carson en meðal þeirra sem leika í kvik- myndinni er íslenski fjöllistamað- urinn Atli Bollason sem fer með hlutverk samnefnds flippskúnks í myndinni. „Það eru frekar margar persónur og þetta er í rauninni ekki ein saga heldur margar sem fléttast saman. Þetta er saga af heilum vinahóp og ég leik einn þessara vina. Hann er svona frekar flippaður myndi ég segja, hinir vinirnir ólust allir upp saman í úthverfi Toronto en þeir kynnast mér seinna á lífsleiðinni og ég er svona einhver flippskúnkur,“ segir Atli. „Ég náði bara að tengja mjög vel við það,“ segir hann hlæj- andi þegar hann er spurður að því hvort hann hafi átt í erfiðleikum með það að tengjast persónu sinni í myndinni. „Það hjálpaði kannski að persónan heitir sama nafni og ég þannig að það má vel vera að leik- stjórinn hafi kannski byggt Atla í myndinni á Atla Bolla,“ bætir hann við dullarfullur. Leikstjóranum kynntist Atli þegar hann var búsettur í Mont- real í Canada. „Þegar ég var þarna úti þá lék ég í einhverri stuttmynd sem hann gerði og síðan hittumst við nokkrum árum síðar í Detroit í Bandaríkjunum og skutum aðra stuttmynd saman þannig að þetta er í þriðja sinn sem við vinnum saman.“ O, Brazen Age er fyrsta mynd leikstjórans í fullri lengd en hann hefur einnig gert stuttmyndir og hlaut Golden Gate-verðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í San Francisco fyrir stuttmyndina Numbers & Friends árið 2014. Einn- ig hefur hann gert stuttmyndirnar We Refuse to Be Cold og Braids. O, Brazen Age er lýst sem þroska- sögu og hugleiðingu um ljósmynd- un, minningar og minjagrip sem dregur upp mynd af vináttu og trú á 21. öldinni. „Hún fjallar um vina- hóp sem er búinn að vera til lengi en það er ekki þar með sagt að þessir Íslenskir hipsterar ættu að tengja kanadíska kvikmyndin o, brazen age verður sýnd í bíói paradís í næstu viku. atli bollason leikur þar flippskúnkinn atla og segir góða stemningu hafa verið á setti. 3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r40 m e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð bíó 3 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 8 8 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 E 9 -4 3 7 0 1 8 E 9 -4 2 3 4 1 8 E 9 -4 0 F 8 1 8 E 9 -3 F B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.