Fréttablaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 82
Dagskráin fyrir Eistnaflug í Nes-
kaupstað þetta árið hefur loksins
litið dagsins ljós og er greinilegt
að um er að ræða stærstu og glæsi-
legustu hátíðina til þessa. Stefán
Magnússon, umsjónarmaður
hátíðarinnar, segir að Eistnaflug
stækki ört með hverju árinu og
sífellt fleiri hljómsveitir sæki eftir
að vera með.
„Við höfum aldrei verið með jafn
stórar og dýrar hljómsveitir. Það er
auðveldara fyrir okkur að komast
í hljómsveitir enda höfum við
verið að stækka ört. Við höldum
í hefðirnar og í grunninn er þetta
öskurrokkarahátíð en við höfum
alltaf endað á smá diskói og þetta
árið fengum við Pál Óskar til þess
að loka hátíðinni, það er töluvert
betra en að ég sé að spila tónlistina
hans á tölvunni minni fyrir mann-
skapinn.“
Meðal þeirra sem hafa tilkynnt
komu sína er sænska þungarokk-
hljómsveitin Opeth, Agent Fresco,
HAM, Úlfur Úlfur og margir fleiri
erlendir og íslenskir tónlistar-
menn. „Við eigum von á töluvert
fleira fólki í ár heldur en í fyrra, en
þá voru tæplega 3.000 manns. Það
er auðvitað svo gott að vera í Nes-
kaupstað og í kringum hátíðina er
bærinn alveg undirlagður og allir
taka þátt og hjálpast að. Þetta er
alvöru stemning og það hafa allir
gaman af þessu.“
Eistnaflug hefur verið haldið
árlega í Neskaupstað frá því árið
2005 en þá byrjaði það sem eins
dags tónlistarveisla. Seinustu ár
hefur þetta hins vegar vaxið og er
orðið að fjögurra daga tónlistarhá-
tíð og ómissandi partur af sumrinu
hjá mörgum. – gj
Eistnaflugið stækkar með hverju árinu
Það er alltaf góð stemning á Eistnaflugi í Neskaupstað.
MyNd/GuðNý Lára ThorarENsEN
Kvikmyndin Þrestir hefur farið sannkallaða sigur-för um kvikmyndahátíðir víðsvegar um heiminn
þar sem hún hefur sópað að sér
alþjóðlegum verðlaunum. Myndin
hefur samtals hlotið 16 verðlaun,
nú síðast tók hún aðalverðlaunin
á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í Prag. Það voru þriðju verðlaunin
sem myndin hreppti í þessum mán-
uði en hún hlaut einnig aðalverð-
launin á Spirit of Fire hátíðinni sem
fram fór í Síberíu og dómaraverð-
launin í Mamers í Frakklandi.
Þrestir hefur meðal annars
hlotið verðlaun fyrir bestu mynd-
ina, bestu kvikmyndatökuna og
besta handritið, auk þess sem
Atli Óskar Fjalarsson, aðalleikari
myndarinnar, hlaut verðlaun fyrir
besta leik í aðalhlutverki á Les Arcs
kvikmynda hátíðinni sem fór fram
í Frakklandi í fyrra. Myndin hefur
einnig unnið verðlaun utan Evr-
ópu en hún hefur hlotið verðlaun í
Bandaríkjunum, Kanada og hreppti
einnig tvenn verðlaun á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í São Paulo í
Brasilíu: fyrir bestu kvikmyndina í
fullri lengd og fyrir besta handritið.
draumasamstarfsfólk
Rúnar Rúnarsson, leikstjóri og
handritshöfundur myndarinnar,
segir að velgengnin hjálpi mikið
til við dreifingu á myndinni og auk
þess að ganga á milli kvikmyndahá-
tíða sé hún nú kominn í almenna
sölu hér og þar um heiminn. „Þetta
er mikið tækifæri til að veita heim-
inum aðgengi að sögunum okkar,“
segir Rúnar, en myndin gerist á
Íslandi og segir afar íslenska sögu
um ungan dreng sem verður að
flytja frá Reykjavík til föður síns á
Vestfjörðum þar sem hann verður
að takast á við breyttar aðstæður í
gamla heimabænum sínum. Þó er
augljóst á velgengni myndarinnar
að sagan á fullt erindi út fyrir land-
steinana og að um góða landkynn-
ingu er að ræða.
Einlægur þakkar Rúnar velgengni
myndarinnar samstarfsfólki sínu.
„Að kvikmynd kemur fjöldinn allur
af fólki og ég hef alltaf verið hepp-
inn með samstarfsfólk. Þegar maður
er með gott fólk í kringum sig þá
geta undarlegustu hlutir gerst.“
Í aðalhlutverkum eru auk Atla
Óskars þeir Ingvar E. Sigurðsson,
Pálmi Gestsson og króatíski leikar-
inn Rade Serbedzija sem á að baki
langan leikferil og hefur komið fram
í fjölda kvikmynda, þar á meðal
Hollywood-myndum eins og Miss-
ion Impossible II, Eyes Wide Shut og
Batman Begins. Kjartan Sveinsson,
fyrrverandi hljómborðsleikari Sigur
Rósar, sér um að semja tónlistina í
myndinni og því er hér um mikið
einvalalið að ræða.
sköpun erfið á ferðalagi
Rúnar segir það vera erfitt að finna
tíma til að vinna að næsta verkefni
þegar hann þarf sífellt að ferðast á
milli kvikmyndahátíða. „Það er ekki
mikill tími til að skapa þegar maður
situr í flugvél,“ segir Rúnar og hlær.
Hann er þó með nokkur járn í eld-
inum, til dæmis segir hann að leikin
kvikmynd í fullri lengd sé í bígerð og
auk hennar annað leikið efni sem er
að vísu ekki langt komið. Í burðar-
liðnum er einnig gamalt drauma-
verkefni sem Rúnar minnist á fremur
dularfullur. Það mun vera heimildar-
mynd sem hann vill annars ekki tjá
sig neitt frekar um, enda sé það verk-
efni víst á algjöru byrjunarstigi.
Þegar litið er á velgengni Þrasta er
því nokkuð spennandi að bíða næstu
verkefna
frá þess-
um mikla
a f r e k s -
leikstjóra
og alls ekki
ólíklegt að
hann þurfi að
sækja nokkur
verðlaun í viðbót
á kvikmyndahátíðum
úti í heimi.
stefanthor@frettabladid.is
Sigurganga Þrasta
Kvikmynd leikstjórans Rúnars Rúnarssonar, Þrestir, hefur átt góðu
gengi að fagna síðan hún kom út á síðasta ári. Myndin hefur
hlotið frábærar viðtökur hjá gagnrýnendum úti um allan
heim og auk þess unnið til fjölda verðlauna á kvik-
myndahátíðum. Rúnar leikstýrir og skrifar handritið
en segir þó að samstarfsfólkið sé það sem mestu máli
skiptir í velgengni myndarinnar.
rúnar rúnarsson, leikstjóri og handritshöfundur Þrasta. FréTTabLaðið/ViLhELM
Að kvikmynd kEmuR
fjöldinn AlluR Af
fólki og ég hEf AlltAf vERið
hEppinn mEð SAmStARfS-
fólk. ÞEgAR mAðuR ER mEð
gott fólk í kRingum Sig Þá
gEtA undARlEguStu hlutiR
gERSt.
atli Óskar Fjalarsson í hlut
verki sínu sem ari í Þröstum.
MyNd/sTiLLa
3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r46 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð
Lífið
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
E
9
-6
6
0
0
1
8
E
9
-6
4
C
4
1
8
E
9
-6
3
8
8
1
8
E
9
-6
2
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K