Fréttablaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 84
Margrét stígur ófeimin á svið fyrir troðfullum sal af áhorfenda eins og ekkert sé.
Páskafríið hennar Margrétar Erlu Maack vatt heldur betur upp á sig þegar hún ákvað að
skella sér til New York í hvíldarferð
en endaði á að sýna á þremur bur-
lesque- og uppistandssýningum.
„New York hefur upp á svo margt að
bjóða og er svo miklu meira en bara
Times Square. Lower East Side er
uppáhaldshverfið mitt og þar er fullt
af svona skrítnu í gangi. Ég flutti til
New York árið 2007 til þess að læra
magadans eftir að ég vann í Happ-
drætti háskólans. Til þess að kynn-
ast fólkinu og menningunni þarf
maður bara að fara með opinn huga
og hanga eftir sýningu og kynnast
fólkinu,“ segir Margrét en hún hefur
verið virk í því að byggja sér upp
tengslanet erlendis til þess að fá fólk
til þess að koma til Íslands og sýna
listir sínar.
Þegar Margrét pantaði sér ferðina
til New York yfir páskana var það
ekki ætlunin að fara að sýna. „Vinir
mínir sem ég var að fara að heim-
sækja furðuðu sig á því að ég ætlaði
að vera í New York í tíu daga en ekki
koma neitt fram. Ég sendi nokkra
tölvupósta áður en ég fór út og á end-
anum fékk ég þrjú gigg. Tvö þeirra
voru á Slipper Room sem er uppá-
haldsstaðurinn minn í heiminum.
Fyrra kvöldið var meiri uppistands-
sýning þar sem ég var annað tveggja
kabarettatriða, en það seinna var ég
með í burlesque-sýningu þar sem ég
var meðal annars með hnífakast og
brjóstaballett. Þriðja sýningin var
svo á House of Yes.“ Sýningarnar
gengu svo vel að Margréti var boðið
að koma aftur út að sýna í júní.
„Þetta er mjög góð afsökun til þess
að fara aftur til New York.“
Atriðin hennar Margrétar voru
þó ekki öll með sínu hefðbundna
sniði en í eitt skiptið var hún beðin
um að íslenska upp atriðið sitt. „Á
einni sýningu sem kallast Glitter
Gutter var ég beðin um að koma
með íslenskt tvist við mitt venjulega
atriði. Ég málaði mig eins og Björk
og gerði blöðrustripp við
It's Oh So Quiet og svo
var hnífakastið við
Army of Me en
það vakti mjög
mikla lukku.“
M a r -
grét segir
a ð þ a ð
sé margt
hægt að
l æ r a a f
atvinnu-
f ó l k i n u
í N e w
York. „Ég sá
hvernig þau
byggja svona
upp og hversu
stórt þetta getur
orðið með fáu fólki.
Það var mjög gott að geta
mætt bara og gert mitt atriði og
fylgst svo með í staðinn fyrir að vera
að stússast í öllu. Þarna voru engin
tæknirennsli og það var gaman að sjá
hvað kynnarnir eru ógeðslega góðir
í að halda uppi orkunni og hjálpa til
með allt tímavesen ef eitthvað þann-
ig kemur upp. Þetta er mikil vinna
sem fer í svona sýningar.“
Margrét hefur tileinkað sér maga-
dans og burlesque og hefur vakið
mikla athygli hér á landi. „Þessi bur-
lesque-sena, ásamt drag-, spuna- og
uppistandssýningum er á hraðri
uppleið hér á landi. Þetta helst allt
saman í hendur. Loksins er orðið
nóg framboð af afþreyingu sem er
ekki leikhús eða tónleikar. Þetta er
ótrúlega skemmtileg sena og ég er að
vonast til að fá einhverja til að koma
til landsins í sumar eða haust.“
gunnhildur@frettabladid.is
Sýndi
brjóstaballett
og hnífakast
í New York
um páskana
Margrét Erla Maack sló heldur betur í gegn
í New York á dögunum með burlesque-sýn-
ingunni sinni en henni hefur verið boðið að
fara aftur út að sýna í júní. Hún segir íslenskt
menningarlíf vera að vakna til lífsins og
loksins sé margt annað í boði til afþreyingar
í Reykjavík en leikhús og tónleikar.
BurlEsquE
sENaN,
ásaMt drag-,
spuNa- og
uppi-
staNds-
sýNiNg-
uM, Er á
hraðri
upplEið
hér á
laNdi.
ÞEtta
hElst
allt saMaN
í hENdur.
Kim Kardashian og eiginmaður
hennar, Kanye West, hafa nú loksins
flutt inn í eigið heimili í Bel-Air í Los
Angeles eftir að hafa búið heima hjá
mömmu Kim, Kris Jenner, í tæp þrjú
ár. Húsið í Bel-Air verður þó aðeins
tímabundinn griðastaður þar sem
þau ætla sér að selja það og flytja í
annað hús sem þau eru að gera upp
um þessar mundir.
Húsið keyptu þau upprunalega á
11 milljónir dollara og hófust strax
handa við að gera það allt upp, nán-
ast frá grunni. Það er nú á sölu á 20
milljónir.
Kim hefur verið ófeimin við að tjá
sig um að hún sé orðin löngu þreytt
á að búa heima hjá móður sinni en
henni finnst alltof mikil læti á því
heimili. Kim og Kanye keyptu húsið
upprunalega áður en hún varð ólétt
að sínu fyrsta barni, North West. Því
er ljóst að það er nóg búið að ganga
á í lífi þeirra í millitíðinni.
Kanye og Kim flytja loksins út frá Kris
Kanye og Kim eru loksins flutt inn í sitt eigið hús en þó aðeins tímabundið.
Margrét að
sýna listir
sínar á
Slipper
Room í
New York.
Ekki nóg með það að Kanye
markaðssetti sína þriðju fatalínu
í samstarfi við Adidas í byrjun
febrúar heldur gaf hann einnig út
breiðskífuna The Life of Pablo á
sama tíma. Tidal, sem er eina tón-
listarveitan sem hægt er að nálgast
plötuna á, gaf það út fyrr í vikunni
að hlustað hefði verið á plötuna
250.000 sinnum fyrstu tíu dagana
eftir að hún kom út sem verður að
teljast ótrúlegur árangur. Kim hefur
einnig verið að gera það mjög gott
þrátt fyrir að hún hafi ekki verið
með nein stór verkefni á þessu ári. Í
fyrra gaf hún út sitt annað app sem
var lengi vel eitt það vinsælasta í
heiminum.
allt í BlóMa
hjá KiMYE
Karen Walken
Dries Van Noten
Fendi
Karen Walker
sól, sól skín
á mig
Sólgleraugu
3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r48 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
E
9
-5
2
4
0
1
8
E
9
-5
1
0
4
1
8
E
9
-4
F
C
8
1
8
E
9
-4
E
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K