Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2014, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2014, Síða 4
Vikublað 7.–9. október 20144 Fréttir Fyrirlestur á ensku: Christof Leuze Hvernig lífið heldur áfram eftir dauðann séð með augum Gralsboðskaparins Miðvikudagur, 8. október 2014 • kl. 20:00 Aðgangseyrir: 500 kr. Í Norræna húsinu , Sturlugötu 5, 101 Reykjavík Fyrirlestur á ensku: Christopher Vasey Dauðinn sem fæðing inn í handanheima séð með augum Gralsboðskaparins Fimmtudagur, 9. október 2014 • kl. 20:00 Aðgangseyrir: 500 kr. Í Norræna húsinu, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík Skipuleggjandi: GRAL-NORDEN • www.gral-norden.net Sími: 842 2552 Mail: vasey-leuze@gral-norden.net 503 kærðir fyrir hraðakstur Heildarfjöldi hraðakstursbrota í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á tímabilinu 16. maí til 15. september var 503 brot. Þetta kemur fram í tilkynn­ ingu frá lögreglunni. Þar segir að á þessu tímabili hafi staðið yfir átaksverkefni lög­ reglu og vegagerðarinnar er varð­ ar sérstakt umferðareftirlit. Innan ramma þess verkefnis eru skráð 383 hraðakstursbrot af framan­ greindum brotafjölda. Utan verk­ efnisins eru því 120 brot kærð vegna hraðaksturs. Hraðast ók ökumaður á mótorhjóli, sem mældist á 206 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 90 kíló­ metrar á klukkustund. Næstmesti hraði mældist 167 kílómetrar á klukkustund þar sem hámarks­ hraði er einnig 90 kílómetrar. Var þar á ferðinni ökumaður bif­ reiðar. Ofangreind brot féllu bæði undir sérstaka umferðareftirlitið að sögn lögreglu. Stálu dekkjum Tuttugu jeppadekkjum og fjór­ um fólksbíladekkjum var stolið úr gámi á lóð Járnkarlsins í Þor­ lákshöfn um helgina. Í dagbók lögreglunnar á Selfossi kemur fram að langflest dekkin hafi ver­ ið á felgum og sum hver mjög lítið notuð. Ljóst er að tjónið er töluvert, eða hálf önnur milljón króna. Þeir sem geta veitt upplýs­ ingar um þetta innbrot og hvar dekkin er hugsanlega að finna eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 480­1010. Þá kemur fram í dagók lögreglu að fyrir hádegi á föstudag hafi verið brotist inn í sumarbústað í landi Heiðarbæjar í Þingvallasveit. Í ljós kom að flatskjá hafði verið stolið og einhverju fleiru. Þrátt fyrir leit fundust þjófarnir ekki. Stærsta safn hugverka- þjófnaðar í heimi.is Vefsíðan solarmovie.is býður upp á allar nýjustu kvikmyndirnar og þættina E itt stærsta safn hugverkaþjófn­ aðar í heimi er með íslenskt lén en vefsíðan solarmovie.is býð­ ur fólki að horfa á allar nýjustu kvikmyndirnar úr Hollywood auk þeirra sjónvarpsþátta sem sýndir eru ytra endurgjaldslaust. Samkvæmt skráningarskírteini Solarmovie hjá ISNIC, sem sér um skráningu léna undir landsléninu .is, var lénið keypt og skráð þann 16. júlí síðastliðinn af dönsku fyrirtæki sem heitir Danske Erker S.A. en það er skráð í Belís í Mið­Ameríku. Vefsíð­ an var áður með landslén frá Sómalíu en nú er því léni beint á nýja íslenska landslénið. Vefsíðan er þyrnir í augum stærstu kvikmynda­ og þáttaframleiðenda í heimi en milljónir manna heimsækja Solarmovie í hverri viku. Vefsíðan virkar þannig að þeir sem vilja til að mynda horfa á kvikmyndina Transformers eða Game of Thrones­ þættina geta farið inn á solarmovie.is og leitað að kvikmyndinni eða þáttun­ um. Þegar leitandi hefur fundið það sem hann vill horfa á finnur síðan alla hlekki sem til eru fyrir sjóræningjaút­ gáfuna og hafa notendur síðunnar gef­ ið hlekkjunum stjörnur eftir til dæm­ is gæðum. Þannig geta notendur alltaf komist í sjóræningjaútgáfu kvikmynda og þátta í bestu mögulegu gæðum. Fjöldi íslenskra kvikmynda í boði Fjölda íslenskra kvikmynda er að finna á síðunni en eftir stutta leit blaða­ manns komu í ljós tugir titla á borð við Mýrina, Kaldaljós, Rokland, Gaura­ gang og Gnarr. SMÁÍS, samtök myndréttarhafa á Íslandi, eru ekki lengur starfrækt en stjórn þess óskaði eftir því að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta í ágúst á þessu ári. Þar af leiðandi er enginn talsmaður myndréttarhafa hér landi eins og staðan er núna. DV heyrði í nokkrum sem koma að höfundarréttarmálum á Íslandi en þeir voru allir sammála um að ISNIC hlyti á endanum að bera ábyrgð á því að hafa selt lén sem augljóslega er not­ að með glæpsamlegum hætti; „Viljum við að Ísland verði einhver útópía fyrir svona síður? Það eru til miklu ljótari síður á netinu og ég er ekki viss um að svör ISNIC væru þau sömu ef um væri að ræða til dæmis barnaklámsíðu,“ sagði einn viðmælenda DV. Langsótt að loka léninu „Það er allur gangur á því til hvers lén eru notuð,“ segir Jens Pétur Jensen, framkvæmdastjóri ISNIC. „Í þessu til­ viki þá er þetta lén notað til að benda á þennan vefþjón sem hýsir þetta efni. Það er rosalega langsótt og á útleið sú aðferðafræði að ætla að loka léni til að loka fyrir efni á internetinu. Menn voru kannski aðeins upp á hælana hérna fyrir nokkrum árum og töldu að þeir væru búnir að finna einhverja afskaplega auðvelda leið til að loka fyrir efni á netinu en svo átta menn sig á, þegar þeir eru bún­ ir að læra smávegis, að það er ekkert fengið með því að loka léni og jafnvel skaðinn orðinn meiri. Ef þú lokar léni þá poppar þetta bara upp jafnharðan einhvers staðar annars staðar en um leið þá missir þú tengingu við þann sem er að bjóða upp á þjónustuna. Segjum að skráningarupplýsingar þessa léns séu réttar hjá okkur þá náum við sambandi við þennan að­ ila. Það er grundvallaratriði til þess að geta byrjað að mótmæla eða fá þá til þess að haga sér betur. Ef þú eyðilegg­ ur þessa tengingu við viðkomandi þá ertu kannski búinn að eyðileggja fyrir þeim sem eru að reyna að stöðva þetta. Þegar öllu er á botninn hvolft þá þarftu alltaf að komast í samband við þann sem á efnið og heldur úti þjónustunni og þú verður með góðu eða illu að fá hann til þess eða þvinga hann til þess að hætta að birta þetta efni,“ segir Jens Pétur sem tekur fram að það sé ekki í verkahring ISNIC. „Getur aldrei orðið í verkahring ISNIC, einfaldlega vegna þess að við erum ekki aðilar að málinu. Það sem við gerum samt sem áður er að við höldum léninu úti, birtum skrán­ ingarupplýsingar og tengjum fólk sem fer inn á solarmovie.is í vafranum sínum við vefþjóninn þar sem þetta efni er hýst. Það er það sem við ger­ um. Ef við hættum að gera þetta þá gerir það bara einhver annar,“ segir Jens Pétur. Öruggari á Íslandi „Það er álíka gáfulegt að loka léni og að loka símanúmeri hjá glæpamanni. Hann fær sér nýtt símanúmer og ekki nóg með það heldur nærð þú ekki í hann því þú veist ekki númerið hans.“ En af hverju ætli síður á borð við Solarmovie leiti í íslensk lén? „Í fyrsta lagi þá hafa þeir senni­ lega fundið það út að þetta nafn væri laust undir .is, það er það fyrsta sem mér dettur í hug. Í öðru lagi þá er jafn­ vel auðveldara að fá léni lokað ef það er .com en .is. Það er vegna þess að eigendur og höfundar að efni sem er bandarískt eru búnir að gera samn­ ing við fullt af hýsingaraðilum þar sem það er nánast orðið sjálfvirkt að fá léni lokað,“ segir Jens Pétur sem er ekki sammála þeirri aðferðafræði. „Að sjálfsögðu virkar hún ekki því ef hún virkaði þá væri ekkert ólöglegt efni á internetinu lengur.“ Stjórnarskrárvarinn réttur „Svo er annað sem menn verða að passa sig á og hafa í huga að það er stjórnarskrárvarinn réttur að skrá lén, þetta er partur af tjáningarfrelsinu. Það getur vel verið að höfundarréttar­ eigendur séu sárir út í það að þeir skuli alltaf geta birt þetta efni undir þessu léni en viðkomandi er kannski með tölvupóst á þessu léni líka. Eigum við þá að loka tölvupóstinum hans? Það er svo margt sem manni mislíkar á internetinu en það speglar mannkynið. Ef lénin ein og sér væru lausnin á þessu þá væri þetta vanda­ mál ekki til,“ segir Jens Pétur og bætir við að ISNIC hafi aldrei þurft að loka léni af þessum ástæðum. „Til þess að ISNIC væri þvingað til þess að loka léni þá þyrfti að koma með úrskurð frá dómara. Það hefur aldrei gerst. Það hefur oft verið reynt en aldrei tekist,“ segir Jens Pétur sem tekur fram að fyrirtækið fari í einu og öllu eftir þeim lögum og reglum sem gilda á Íslandi. n Atli Már Gylfason atli@dv.is Jens Pétur Framkvæmdastjóri og einn eigenda ISNIC. Íslenskar kvikmyndir Eftir stutta leit blaðamanns komu í ljós fjölmargir íslenskir titlar sem hægt er að sjá ólöglega í gegnum vefsíðuna solarmovie.is „Það er álíka gáfulegt að loka léni og að loka símanúmeri hjá glæpamanni Hross í oss Íslenska kvik- myndin Hross í oss eða Of Horses and Men er meðal þeirra þúsunda titla sem í boði eru á solarmovie.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.