Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2014, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2014, Síða 11
Fréttir 11Vikublað 7.–9. október 2014 Eru allir að róa í sömu átt? Innri markaðssetning fyrirtækja Miðvikudaginn 8. október kl. 9–11 í sal Arion banka, Borgartúni 19 Fundarstjóri: Dr. Friðrik Larsen, formaður stjórnar ÍMARK. Fyrirlesarar: Ragnheiður Dögg Agnarsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingsþjónustu og samskiptasviðs TM. Ragnheiður hefur starfað hjá TM frá árinu 2006. Hún er með BA próf í sálfræði og MA-gráðu í mannauðsstjórnun frá HÍ. Titill fyrirlestrar: „Þetta er allt einn misskilingur — hvernig samþætting innri og ytri samskipta getur komið í veg fyrir misræmi milli markaðsskilaboða og upplifunar starfsmanna og viðskiptavina.“ Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins. Brynjar hóf störf hjá Póstinum árið 2013. Hann útskrifaðist frá HÍ með MA í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum. Titill fyrirlestrar: „Saman förum við á toppinn — innri markaðsmál Póstsins, með sérstaka áherslu á nýja innanhússtefnu er nefnist P18 í daglegu tali.“ Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, viðskiptastjóri og ráðgjafi á Hvíta húsinu síðastliðinn áratug. Hún er með BA-gráðu í sálfræði frá HÍ og er markþjálfi frá HR og Coach University. Titill fyrirlestrar: „Innri markaðsmál: Hver hefur tíma fyrir það?“ Skráning á imark.is I nga Dóra Sigfúsdóttir, eigandi Rannsókna og greiningar, seg- ir að arðgreiðslurnar hafi farið út úr félaginu og til hennar en að hún hafi svo notað fjármunina til að kosta frekari rannsóknir og skrif um þau gögn sem fyrirtækið hefur aflað með vinnu sinni. „Þetta er non-profit félag. Við höf- um starfað frá árinu 1999 og við höfum haft það markmið alveg frá upphafi að greiða okkur hófleg laun. Ég hef til dæmis aldrei greitt mér laun. Hafi skapast hagnaður þá höfum við nýtt hann til að kafa dýpra í gögnin sem við vinnum með. Þetta höfum við náð að gera í einhver skipti. Við höfum kostað skrif á doktorsritgerðum, birtingar í erlendum fræðitímaritum og annað slíkt. Þetta er eitthvað sem við höfum ekki getað greitt með þeim fjármunum sem við höfum fengið fyrir vinnuna okkar. Þetta eru því ekki peningar sem við höf- um nýtt í einhver efnisleg gæði. Við höfum birt úr þessum gögn- um núna 70 vísindagreinar og það hafa verið skrifaðar upp úr þeim 7 doktorsritgerðir og það eru aðrar þrjár á leiðinni,“ segir Inga Dóra. Hún segir því að félagið hafi sannarlega greitt út arð en ekki í hefðbundnum skilningi. „Þannig að jú vissulega: Við höf- um greitt út arð en ekki í þesum hefðbundna materíalíska tilgangi sem venjuleg fyrirtæki gera.“ Blaðamaður: En þú ert eini hluthafi félagsins. Arðurinn renn- ur náttúrulega bara til þín?“ Inga Dóra: „Jú, en svo er bara spurningin hvernig maður ver honum. Ef þú talar við fólkið mitt þá geturðu fengið þetta allt saman staðfest. Hvernig ég ver honum. Þú getur til dæmis talað við Álfge- ir Kristjánsson sem lauk doktors- ritgerðinni sinni við Karolinska fyrir nokkru. Hann var til dæmis styrktur af mér.“ Álfgeir lauk dokt- orsgráðu frá Karolinska Institute í Stokkhólmi árið 2010 og er í dag aðstoðarprófessor í West Virginia- háskólanum í Bandaríkjunum. Blaðamaður: „Hefur þú sem sagt notað arðinn sem þú hefur greitt út úr félaginu til þín til að styrkja eitt og annað? Hvernig hef- ur þú gert það.“ Inga Dóra: „Hvernig gerir maður það? Maður styrkir kollega sína og greiðir fyrir tímann sem fer í að skrifa greinar.“ Blaðamaður: „Hefur þú varið öllum arðinum í það?“ Inga Dóra: „Já.“ Hún segir að hún geti sýnt fram á það að arðurinn sem tek- inn hefur verið út úr félaginu hafi verið notaður í slíkt rannsóknar- starf. Hún segir að fjármögnun Rannsókna og greiningar komi aðeins að 20 prósenta leyti í gegn- um samninginn við menntamála- ráðuneytið. 80 prósent af fjár- mögnuninni komi annars staðar frá. Aðspurð af hverju hún hafi ekki bara látið fyrirtækið sjálft styrkja einstaklingana sem hún styrkti til rannsóknarstarfa í stað þess að taka arðinn út úr félaginu segir Inga Dóra að hún þurfi að ráðfæra sig við bókarann sinn til að fá svar við þessu. Segist hafa notað arðgreiðslur í styrki sex milljóna arð úr félaginu árið 2009 vegna rekstrarársins á undan en þá hafði verið 7,6 milljóna hagn- aður á rekstrinum. Þrátt fyrir þann hagnað og þá arðgreiðslu lýsti stjórn félagsins yfir vonbrigðum með það í skýrslu sinni að hafa ekki feng- ið styrk frá fjárlaganefnd það árið: „Félagið óskaði eftir stuðningi Fjár- laganefndar til rannsókna en var synjað. Félagið vinnur hinsvegar nú með sveitarfélögum sem í búa um 80% landsmanna og hefur þannig áhrif á stefnumótun og aðgerðir í málefnum ungs fólks og fjölskyldna þeirra víðast hvar á landinu.“ Þegar þarna var komið sögu lá hins vegar fyrir að 12,35 milljón- ir voru greiddar út í formi arðs á tímabilinu 2006 til 2009 en á sama tímabili hafði félagið fengið ríkis- styrki upp á 11,5 milljónir. n Fjalla um flúormengun frá íslenskum álverum Al Jazeera ræðir við áhyggjufulla íslenska bændur F réttastöðin Al Jazeera fjallar um mengun frá álverum á Ís- landi en rætt er við bændur í nágrenni álversins á Reyðar- firði sem og Grundartanga. Nokkuð hefur verið fjallað um flúormengun undanfarið en Sigurður Baldursson bóndi á Sléttu í Reyðarfirði hefur ítrekað lýst yfir áhyggjum af að illa geti farið verði ekki gerð bót á. Með- al annars er rætt við Sigurð í grein Al Jazeera. Eftir umfjöllun í sumar um flúor- mengun sendi eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar frá sér yfirlýsingu þess efnis að al- menningi stafaði ekki hætta af menguninni. Í þeirri yfirlýsingu var ekki minnst á áhrif mengunarinn- ar á sauðfé og aðra grasbíta sem eru þekkt. Skapaðist því nokkur um- ræða um þau málefni. Upplýsinga- fulltrúi Alcoa Fjarðaáls sendi síðan frá sér yfirlýsingu í kjölfarið þar sem hann vildi árétta að flúor gæti ekki safnast upp í vöðvum dýra heldur einungis beinum. Árið 2013 kom út skýrsla sem sýndi að dýr nærri álverinu á Grundartanga væru með óvenju mikið tannlos, tannleysi, tannkýli og bólgur sem að hluta til mætti rekja til flúormengunar. asgeir@dv.is Álver Norðuráls á Grundartanga Álver Alcoa á Reyðarfirði Mikið var fjallað um flúor­ mengun í sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.