Málfregnir - 01.12.2001, Síða 4

Málfregnir - 01.12.2001, Síða 4
vægum sviðum mannlífsins, svo sem í at- vinnurekstri, tækni og vísindum. Mikilvægur þáttur í málstjóm og málrækt er miðlun tungumálsins til nýrra þjóðfélags- þegna, frá einni kynslóð til annarrar, hvort sem er á heimili, í skóla eða annars staðar í þjóðfélaginu og einnig til innflytjenda. Islensk málrækt snýst því ekki bara um sjálft form íslenskrar tungu og rækt við það, heldur eru hér einnig á ferðinni spumingar sem snúast um málpólitík, almennt um mál- efni íslensku og annarra tungumála í menn- ingarlegu, stjómmálalegu og efnahagslegu samhengi. Þessir þættir tengjast íslenskum stjómmálum á margan hátt enda hafa stjóm- málamenn jafnan haft skilning og áhuga á þessum þáttum, t.d. í tengslum við mennta- stefnu. I ljósi þessara málræktarfræða má segja að vandi málræktar hér á landi sem annars staðar sé tvíþættur: formvandi og umdœmis- vandi. Formvandinn snýst um val á staðli og formi hans, hvað sé talið rétt og rangt, við- eigandi eða ekki. Hvað telst góð og gild ís- lenska og hvað ekki? Hinn vandinn er spumingin um stöðu tungumála hvers gagn- vart öðru, í okkar tilviki auðvitað íslensku gagnvart öðmm tungum. Þetta er spuming um notkunarsvið sem kalla má umdæmis- vanda. Ég er ekki í vafa um að meginvandi ís- lenskrar málræktar á þeirri öld, sem nú er nýbyrjuð, verður þessi umdæmisvandi. Þetta er spumingin um sambúð íslensku við aðrar tungur, fyrst og fremst ensku. Hugsan- legt er að málstjórn í víðum skilningi verði eitt af mikilvægustu viðfangsefnum í stjóm- málum framtíðarinnar á Islandi. Formvandinn Formvandinn hér á landi er (eða a.m.k. var þar til fyrir fáeinum misserum) afskaplega einfaldur viðfangs. Við eigum (eða höfum átt) í sáralitlum erfiðleikum með að koma okkur saman um það hvað sé rétt og rangt í íslensku máli. Þær smáskærur, sem annað slagið eiga sér stað um hvort leyfa eigi hitt eða þetta tökuorð eða hvort segja eigi mér langar eða mig langar, em smávægilegar gárur á afskaplega lygnu vatnsglasi og hreinn hégómi miðað við það sem margar aðrar þjóðir þurfa að fást við. Ekki þarf lengra að líta en til Noregs til að láta sannfærast um það. Formvandi norskunnar, álitamálin um það hvað sé góður staðall, sem allir geta sætt sig við, er margfalt stærri en okkar vandi. Einsleitni íslenskunnar, bæði söguleg og samtímaleg, er einstakt happ sem Islend- ingar eiga að nýta sér til þess einbeita sér að því að horfast í augu við hinn raunverulega vanda sem blasir við málrækt á nýbyrjaðri öld, vandann um notkunarsvið íslensku. Nokkuð bólar á því að menntamenn séu að hnýta í þá hefð sem hér hefur ríkt og tala um hreintungustefnu sem einhvers konar kúgun- artæki gegn þeim sem minna mega sín. Ég tel að almenningur í landinu taki ekki mikið mark á slíku. Gera má ráð fyrir að almenn- ingur og stjómmálamenn, sem starfa í um- boði hans, átti sig á mikilvægi þess að við- halda hinum íslenska málstaðli og spoma gegn of miklum breytingum á honum. Ritstaðlar Athygli málvísindamanna hefur á síðustu árum beinst í auknum mæli að þeim al- mennu lögmálum sem gilda um málstöðlun. Um þetta gilda ákveðin lögmál og málstaðl- ar verða til við vissar aðstæður. Bókmenntir ráða miklu um þróun mál- staðla. Handhæg viðmiðun í enskri málsögu er t.d. að miða fomensku við Bjólfskviðu, miðensku við Chaucer og nútímaensku við Shakespeare. Bókmenntirnar skapa reglur og venjur sem fylgt er, eins og hinn íslenska sagnastíl. Islenska varð ritmál fyrr en marg- ar aðrar Evróputungur nútímans og sam- hengið í málþróuninni, hin mikla íhaldssemi og einsleitni miðað við frændtungumar, á rætur að rekja til bókmenntanna fyrst og fremst. Þáttur fombókmenntanna í mótun og viðhaldi íslenskrar tungu á síðari öldum verður seint ofmetinn. Mál fombókmennt- anna er fyrirmyndin að staðli íslensks nú- 4

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.