Málfregnir - 01.12.2001, Síða 5

Málfregnir - 01.12.2001, Síða 5
tímamáls. í rauninni má segja að Snorri Sturluson og Halldór Kiljan Laxness hafi skrifað á sama tungumáli. Opinberri stjómsýslu og lagasetningu fylgir stöðlun tungumáls en trúarbrögð og trúarstofnanir geta gegnt svipuðu hlutverki og ríki. Notkun tungumáls í trúarritum hefur það í för með sér að til verður fyrirmynd eða viðmiðun, með öðrum orðum staðall, sem heldur saman samfélögum og hópum mál- lýskna sem miða sig við staðalinn. Sjálfstætt ríki eins og Island krefst opin- bers ritmálsstaðals. Fáum virðist detta ann- að í hug en að opinbert mál hér á landi eigi að vera og verði íslenska. En þó mæla sumir með því að enska verði í auknum mæli not- uð í vísindum og atvinnulífi, jafnvel að ís- land eigi að verða eitthvað sem þeir kalla tvítyngt svæði. Islenskan fyrr og síðar Innviðir þess ritstaðals, sem Islendingar búa við, eru, eins og áður sagði, frá 12. og 13. öld svo að íslenska er með elstu lifandi rit- málum heimsins. I umræðu um íslenska málrækt og málstefnu er oft vitnað til þessa samhengis og í nefndaráliti um íslenska málrækt frá 1986 er það beinlínis talið eitt af markmiðum málræktar að viðhalda sam- henginu í þróun málsins. Þótt þetta samhengi sé mikilvægt er varla raunhæft að ætlast til þess að íslensk mál- stefna gangi út frá þessu varðveislusjónar- miði einu. Ekki er hægt að krefjast þess að heilt málsamfélag hafi það sem sitt æðsta markmið að varðveita menningararf sinn jafnvel þótt hann sé gríðarlega merkilegur. Málrækt nýrrar aldar hlýtur að sækja rök- semdir víðar. Frá sjónarmiði einstaklings er tungumálið tæki til tjáningar og samskipta við aðra. Málvitund einstaklinga, ekki síður en per- sónuleiki þeirra, mótast umfram allt í upp- eldinu og málið, sem bamið temur sér, mót- ast af því máli sem foreldrar, vinir og vanda- menn tala. Málið verður hluti af sjálfsmynd einstaklingsins. Bamið, sem lærir móður- mál sitt, veit ekki annað en að það mál, sem það heyrir, sé allt góð og gild íslenska jafn- vel þótt hinir fullorðnu viti hvað er íslenska og hvað slangur eða vont mál. Þetta ber að hafa í huga við máluppeldi. Þar sem mál er svona tengt sjálfsmynd er því oft þörf á nærgætni þegar að því kemur að dæma um málfar bama og annarra eða segja þeim til. Stundum vill brenna við að tillitssemi sé af skomum skammti. Þótt mikilvægt sé að huga að hagsmunum einstaklinga og hafa beri í huga að of ströng umvöndun um mál getur verið meiðandi má eigi að síður færa fyrir því rök að lífsnauð- synlegt sé, eins og lagt er til í áðurnefndu áliti, að halda hinu innra samhengi mál- staðalsins sem byggir á sögunni og viðhalda formgerð hans. Málið með öllunt sínum af- brigðum og notkunarsviðum á að vera skilj- anlegt sem flestum málnotendum, ungum og öldnum til sjávar og sveita og nokkum veginn eins skipulegt eða reglulegt og unnt er að búast við af tungumáli. Mikilvægt er að ekki sé aukið á óreiðuna og undantekn- ingamar af mannavöldum frá því sem nú er undir yfirskini umburðarlyndis. Það er sem sé ástæða til að taka undir það sjónarmið sem fram kemur í skýrslunni frá 1986 að viðhalda beri eftir föngum innra samhengi tungumálsins á öllum sviðum: setningaskipan, orðmyndun, stafsetningu og framburði. Málræktarstarf hér á landi á 19. og 20. öld hefur að mestu snúist um það að efla ís- lenskuna og gera hana færa um að takast á við nútfmann og framtíðina. Hér hefur verið unnið frábært starf sem margir af nágrönn- um okkar öfundast út af og vildu gjama vera í okkar sporum í málræktarefnum. Og ósk- andi er að rifrildi um tittlingaskít verði ekki ofan á þegar að því kemur að leysa þau raunverulegu vandamál sem blasa við ís- lenskri málrækt um þessar mundir. Umdæmisvandinn Ari Páll Kristinsson, forstöðumaður ís- lenskrar málstöðvar, hefur nýlega unnið 5

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.