Málfregnir - 01.12.2001, Side 17

Málfregnir - 01.12.2001, Side 17
AUÐUR HAUKSDÓTTIR Að tala tungum Eftirfarandi erindi varflutt á málrœktarþingi í Hafnaifirði 17. nóvember 2001. AukAuðar töluðu þar Kristján Arnason, Ari Arnalds, Karl Blöndal og Egill Helgason. -Ritstj. Það hefur lengi verið viðtekin skoðun á íslandi að kunnátta í erlendum tungumálum sé mikilvæg fyrir einstaklinga og þjóð- félagið í heild. Erlend tungumál hafa skipað hærri sess í íslenskum skólum en víða ann- ars staðar og almenn sátt hefur ríkt um að íslensk ungmenni læri 3-4 tungumál auk móðurmálsins. Þetta jákvæða viðhorf til tungumálanáms er dýrmætt. Allt frá upphafi Islands byggðar hafa landsmenn átt samskipti við aðrar þjóðir en aldrei hafa þau verið eins mikil og margþætt og nú. Aukið alþjóðlegt samneyti á öllum sviðum gerir annars vegar kröfu um kunn- áttu í fleiri málum en fyrr og hins vegar um betri málakunnáttu en stundum var hægt að komast af með áður fyrr. Þörfin fyrir tungu- málakunnáttu ræðst af því hvaða mark- miðum á að ná hverju sinni. Miklir hags- munir geta verið í húfi fyrir einstaklinga, fyrirtæki og þjóðfélagið í heild og allt getur oltið á að þeir sem viðskipti stunda eða sem falið er að gæta hagsmuna Islands á alþjóðavettvangi búi yfir góðri tungumála- kunnáttu. Löng hefð er fyrir því að íslendingar stundi nám erlendis og í því sambandi gegn- ir tungumálakunnátta lykilhlutverki. Þýð- ingar á íslensku hafa auðgað menningu okk- ar á öllum sviðum og með þýðingum af íslensku á erlend mál hefur rödd Islands borist út yfir Atlantsála og eflt áhuga og skilning á menningu okkar og tungu. Góð þýðing getur snortið hugi manna og hrundið af stað atburðarás sem ella hefði ekki átt sér stað. Georgíumaðurinn Grigol Matsjavari- ani lýsti þannig fyrstu kynnum sínum af íslenskum bókmenntum: Einu sinni sem bam sá ég bók á borði afa míns. Þetta var Islandsklukkan. Þegar ég heyrði nafnið Laxness fannst mér það mjög hljómfagurt, eins og tónlist, og ég ákvað að lesa bókina. Því miður skildi ég ekki mikið í yrkisefninu, vegna þess að ég var bara lítill strákur, en mér fannst öll nöfnin í bókinni, eins og Snæfríður og Jón Hreggviðsson, vera svo hljómfögur. Eftir þetta fór ég að lesa allt sem gefið hafði verið út í fyrrum Sovétríkjunum eftir Laxness. (Grigol Matsjavariani 1992) íslendingar hafa alltaf verið háðir við- skiptum við erlendar þjóðir og svo er enn. Þegar viðskipti eru annars vegar getur skipt sköpum hvort tilgangurinn er að kaupa eða selja. Oft virðist hægt að komast af með til- tölulega litla tungumálakunnáttu þegar kaup fara fram en hins vegar er allt annað upp á teningnum þegar tilgangurinn er að koma hugviti eða framleiðslu í verð. Oftar en ekki ræðst árangurinn af því hvort næg tungu- málakunnátta er til staðar og hvort hlutað- eigandi aðilar búi yfir nægilegri þekkingu á samskiptahefðum, siðum og menningu við- skiptavinanna. A undanfömum áratugum hefur við- skiptalöndum okkar fjölgað umtalsvert. Þó mikil viðskipti eigi sér stað í Evrópu, t.d. við Norðurlönd og Þýskaland, og í Ame- ríku, þá eru viðskiptin ekki lengur bundin við þessar tvær heimsálfur. Ekki er ofmælt 17

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.