Málfregnir - 01.12.2001, Side 31

Málfregnir - 01.12.2001, Side 31
SIGRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR OG JOAN MALING Ný setningafræðileg breyting? Um hina svokölluðu „nýju þolmyndu í íslensku 1. Inngangur A þeim 1100 árum sem liðin eru frá land- námi Islands hefur íslensk tunga tekið til- tölulega litlum breytingum. Flestar breyting- ar hafa orðið á hljóðkerfi málsins og þó þorri þeirra sé sérstakur fyrir íslensku eiga sumar sér hliðstæður í öðrum norrænum málum. Sem dæmi má nefna að hljóðdvalarbreyt- ingin hefur orðið með svipuðu móti í öllum norrænu málunum nema dönsku og hv- varð að kv- í vesturnorskum mállýskum og fær- eysku rétt eins og í máli flestra íslendinga (sbr. Stefán Karlsson 1989). Beygingarkerfi íslenskunnar og setningagerð hafa hins veg- ar breyst minna en hljóðkerfið. Þannig varð- veitir íslenska að mestu enn sameiginlegt fomnorrænt beygingarkerfi þó ýmsar minni háttar breytingar hafi orðið á beygingu ein- stakra orða og beygingarflokka. Setninga- gerð málsins hefur einnig breyst tiltölulega lítið en erfiðara er að fá yfirlit yfir breytingar á þessu sviði málsins þar sem því er yfirleitt sleppt þegar fjallað er um íslenskar mál- breytingar í málsögubókum (sjá t.d. Stefán Karlsson 1989). Setningagerð íslenskunnar hefur þó tekið breytingum í aldanna rás rétt eins og önnur svið málsins. Sem dæmi má nefna að orðaröð innan sagnliðar virðist hafa verið frjálsari í fomíslensku en í nútímamáli og reglur um afturbeygingu virðast hafa ver- ið talsvert aðrar í fornu máli en í nútímamáli (sbr. Eirík Rögnvaldsson 1995). Þá má nefna að orðaforði málsins hefur breyst mikið frá landnámi, sérstaklega á tuttugustu öldinni þegar gerbreyting varð á íslensku samfélagi. Öll helstu svið málsins hafa því tekið breytingum, mismiklum þó. Islenskt mál heldur áfram að breytast og margir telja að erlend áhrif, fjölmiðlabylt- ingin og aðrar breytingar á lífsháttum okkar á upplýsingaöld stuðli að örari breytingum á tungunni en verið hefur. Þar sem málbreyt- ingar gerast ekki í einni svipan heldur eru oft nokkra mannsaldra að ganga yfir getur verið erfitt að átta sig á þeim breytingum sem eru að verða á tungunni. Það gildir það sama um málbreytingar og aðrar breytingar að þeim er auðveldara að lýsa eftir að þeim er lokið en á meðan þær eru að ganga yfir. í þessari grein verður fjallað um málbreytingu sem virðist vera að eiga sér stað í íslensku og lýsir sér þannig að yngri málnotendur geta sagt setningamar í (1) og (2) en eldri mál- notendur geta aðeins sagt setningarnar í (2): (1) Yngri málnotendur a. Það var beðið mig að vaska upp í gær („Nýja þolmyndirí') I gær var beðið mig að vaska upp b. Það var hrint mér fyrir framan blokkina Fyrir framan blokkina var hrint mér (2) Eldri og yngri málnotendur a. Eg var beðin að vaska upp í gær (Hefðbundin þolmynd) b. Mér var hrint fyrir framan blokkina 31

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.