Málfregnir - 01.12.2001, Page 36
(11) Hlutfall jákvœðra svara í hverjum landshluta fyrir nýju setningagerðina með
[+ lifandij andlagi
Andlag í þolfalli Andlag í þágufalli
Landshluti Unglingar Fullorðnir Unglingar Fullorðnir
Vesturland 68%
Vestfirðir 62%
Norðurland 55%
Austurland 51%
Vestmannaeyjar 64%
Suðurland 60%
Suðumes 68%
Úthverfi Reykjavíkur 53%
Reykjavík vestan Elliðaáa 28%
marktækur. Hvað sem því líður er ljóst að
greinilegur munur er á því hvernig unglingar,
sem ganga í skóla í Reykjavík á svæðinu sem
afmarkast af Elliðaám og Fossvogi, dæma
þessar setningar og hvemig unglingar annars
staðar á landinu dæma þessar sömu setningar.
Þessi munur er tölfræðilega marktækur og
kemur fram í öllum setningum með hinni
nýju setningagerð á prófinu en hins vegar
kemur enginn munur fram á milli landsvæða
þegar viðmiðunarsetningamar eru athugaðar
eins og sýnt verður hér á eftir. Þetta er ástæð-
an fyrir því að við höfum skipt Reykjavík og
nágrannasveitarfélögum í tvo flokka sem við
köllum annars vegar úthverfi Reykjavíkur og
hins vegar Reykjavík vestan Elliðaáa. Þessari
skiptingu er sem sagt ætlað að gera þennan
mun í niðurstöðum okkar sýnilegan.
Sem dæmi má nefna að þegar t-prófi er
beitt á niðurstöður okkar fyrir hina nýju
setningagerð með þf.-andlagi, annars vegar
fyrir úthverfi Reykjavíkur (meðaltal (m)=
0,52; staðalfrávik (sf)=0,32) og hins vegar
fyrir Reykjavíkursvæðið vestan Elliðaáa (m=
0,28; sf=0,27), kemur í ljós að það eru töl-
fræðilega marktæk tengsl á milli landsvæðis
og hlutfalls jákvæðra svara, t(520,641)
=9,636; p<0,001. Unglingar í úthverfum
Reykjavíkur eru næstum því tvisvar sinnum
líklegri til að samþykkja setningar með hinni
nýju setningagerð en unglingar sem ganga í
3% 73% 6%
3% 68% 7%
3% 60% 7%
4% 57% 6%
5% 71% 4%
1% 68% 9%
7% 75% 3%
1% 60% 35% 3%
skóla vestan Elliðaáa. Þessi munur er mjög
marktækur. Það sama á við um setningar
með þgf.-andlagi (m=0,35; sf=0,34 fyrir
Reykjavík vestan Elliðaáa og m=0,60;
sf=0,37 fyrir úthverfi Reykjavíkur; t(581)=
8,119; p<0,001). Hins vegar er ekki mark-
tækur munur á jákvæðum svörum unglinga
sem ganga í skóla í úthverfum Reykjavíkur
og úti á landi, hvorki fyrir setningar með
þolfallsandlagi, (m=0,52; sf=0,32 fyrir út-
hverfi Reykjavíkur og m=0,51; sf=0,35 fyrir
aðra landshluta en Reykjavík; t(616,842)=
-0,394; p=0,694), né þágufallsandlagi
(m=0,60; sf=0,37 fyrir úthverfi Reykjavíkur
og m=0,57; sf=0,39 fyrir aðra landshluta en
Reykjavík; t(607,914)=-l,018; p=0,309).
4.1 Geta unglingar dæmt setningar?
Einhverjir velta því eflaust fyrir sér hvort við
getum virkilega treyst niðurstöðum eins og
þessum frá fimmtán til sextán ára ungling-
um, þ.e. er hægt að ætlast til þess að fimmtán
til sextán ára unglingar geti dæmt setningar?
Niðurstöður okkar benda til að unglingunum
í þessari rannsókn hafi verið treystandi.
Þannig eru niðurstöður úr prófinu mjög
kerfisbundnar og við sjáum yfirleitt svipað-
an breytileika í svörum unglinganna og í
svörum fullorðinna. Þannig bendir allt til
þess að þeir 1695 unglingar, sem við byggj-
um niðurstöður okkar á, hafi verið með hug-
36