Málfregnir - 01.12.2001, Side 41

Málfregnir - 01.12.2001, Side 41
(Afturbeygð fomöfn) (18) Ópersónuleg þolmynd í norsku a. *Det ble hygget seg b. *Det ble lást seg (selv) inne i fabrikken c. *Det ble lyttet til hverandre pá mptet Niðurstöður rannsóknar okkar benda til að fyrsta skrefið í endurtúlkun hinnar nýju setn- ingagerðar frá þolmynd til germyndar eigi sér stað í setningum með afturbeygðum for- nöfnum. Ef svipuð breyting væri að verða í hinum norrænu málunum myndi hennar því líklega fyrst gæta í setningum eins og (18). Að lokum viljum við ítreka að við teljum niðurstöður rannsóknar okkar sýna ótvírætt að nýja þolmyndin er málbreyting en ekki aðeins tískubóla í máli bama og unglinga. Elstu dæmi, sem við höfum um þessa nýju setningagerð, eru frá því um 1968 og eru þau öll utan af landi. Niðurstöður rannsóknar okkar benda einmitt til að þessi breyting hafi hafist úti á landi og sé lengra komin þar en í Reykjavík. Lengi vel virðist lítið hafa verið amast við þessari nýju setningagerð, líklega þar sem hún hefur verið stimpluð sem bama- og unglingamál sem kennarar og aðrir upp- alendur hafa talið að myndi eldast af börn- unum. En hver verða viðbrögðin nú þegar færð hafa verið rök fyrir því að hér sé á ferð- inni ný setningafræðileg breyting í íslensku? Það verður framtíðin að leiða í ljós en rétt er að hafa í huga að þó við viljum öll efla og varðveita íslenska tungu þá þarf að huga að ýmsum atriðum áður en ráðist er gegn nýj- ungum í máli. Nýja setningagerðin er t.d. háð félagslegum þáttum eins og menntun eða skólagöngu foreldra og e.t.v. náms- árangri nemenda. Það er því vandmeðfarið að ráðast gegn þessari málbreytingu þar sem mörgum finnst eflaust að um leið sé verið að ráðast gegn ákveðnum hópum fólks í sam- félaginu. Einnig er vert að hafa í huga að í dag eru aðstæður allt aðrar í þjóðfélaginu en t.d. á fimmta áratug 20. aldar þegar hið svo- kallaða flámæli var svo gott sem kveðið niður. Það er því ólíklegt að herferð gegn nýju setningagerðinni bæri þann árangur sem til væri ætlast. Þó er eðlilegt að benda fólki á að hér er um nýjung í málinu að ræða sem samkvæmt íslenskri málstefnu flokkast sem rangt mál. Nýju setningagerðarinnar virðist enn sem komið er aðallega gæta í talmáli yngra fólks en hún er orðin algeng um allt land og hefur breiðst út til mismun- andi setningagerða málsins. Hver sem fram- tíð þessarar nýju setningagerðar verður er rétt að hafa í huga að þó að málbreytingar geti vissulega ógnað stöðugleika málsins sýna þær um leið að málið er lifandi. Þakkarorð Rannsóknin var fjármögnuð af Vísindasjóði Rannsóknarráðs íslands (RANNÍS), Rann- sóknarsjóði Háskóla íslands, Lýðveldissjóði og að hluta til af NSF-styrk: DBS-9223725. Við þökkum aðstoðarmönnum okkar, Aðal- heiði Þorsteinsdóttur, Halldóru Björt Ewen, Herdísi Sigurðardóttur og Laufeyju Leifs- dóttur, vel unnin störf. Þær lögðu prófblaðið fyrir nemendur um allt land og unnu úr gögnunum. Eiríkur Rögnvaldsson á sérstak- ar þakkir skildar fyrir ráðleggingar og hjálp við að koma gögnunum á tölvutækt form. Honum, Jóhannesi Gísla Jónssyni, Þóru Björk Hjartardóttur og fleirum þökkum við einnig athugasemdir við fyrri gerðir þessarar greinar. Við þökkum einnig Jongsup Jun fyrir að aðstoða okkur við að reikna út töl- fræðilega marktækni, Beata Weiss fyrir að veita okkur upplýsingar um pólsku og 0ystein Vangsnes fyrir að hjálpa okkur með norsku dæmin. Að lokum þökkum við nem- endum í 10. bekk veturinn 1999-2000, full- orðnum málhöfum, kennurum, skólastjórum og öðrunt þeim sem tóku þátt í rannsókninni kærlega fyrir þátttökuna. 41

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.