Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2006, Page 66
svar sitt svo: „Ef ég er lengi í tölvunni. Ef ég er að reyna aðgera eitthvað í tölv-
unni, ogþað gengur ekki og ég er marga tíma að laga það. “ Önnur stúlka úr
Reykjavík fer illa með tímann þegar hún: „ situr bara heima oggerir ekki
neitt.“ Sum tengja þetta við skólann. Tvær stelpur eru ósáttar við að þurfa
sífellt að bíða, bæði í skólanum og heima, og telja að það sé tímaeyðsla.
Stúlka úr Reykjavík er ósátt: „Þegar krakkarnir eru aðgaspra eitthvað í tím-
anum, eru að tala en ekki að lœra, við eigum að vera að læra. “ Síðan nefna
þau að illa sé farið með tímann þegar þau slæpast eða hangsa og gera ekki
neitt. Það er athyglisvert að þau eru vel meðvituð um það þegar þau fara
illa með tímann. Hvað framtíðina varðar velta þau flest mikið fyrir sér hvað
þau ætli að gera, menntast eða vinna við í framtíðinni. Þó sést dæmi um
tilvistarpælingar hjá stúlku úr Reykjavík þegar hún veltir fyrir sér hvað hún
ætlar að gera við líf sitt. Síðan eru það nokkur sem segjast hugsa lítið um
framtíðina og virðast ekki mjög upptekin af henni.
Hér vekur ýmislegt athygli, t.d. það að unglingarnir eru almennt séð
ekki neikvæðir út í skólann þótt sjá megi dæmi um slik viðhorf hjá drengj-
unum. Þess má geta að viðtölin við unglingana voru tekin í skólunum. Ekki
er auðvelt að slá því föstu hvort það hafi haft einhver áhrif á svör þeirra, t.d.
í þá veru að sýna skólanum einhvers konar hollustu. Það má svo sem líka
velta því fyrir sér hvort áhrifin hefðu ekki getað verið á hinn veginn, þ.e. að
ýta undir neikvæðni. Flestir unglinganna eru þeirra skoðunar að skólinn
búi þau almennt vel undir lífið en athygli vekur að samtímis eiga þau erfitt
með að tilgreina með hvaða hætti það sé. Það vekur líka athygli hvernig þau
tjá sig um hvernig farið er með tímann og hvað þau eru meðvituð um hve-
nær þeim finnst þau vera að sóa honum. í vangaveltum unglinganna um
framtíðina er lítið komið inn á tilvistarspurningar heldur beinist athyglin
aðallega að því hvað þau ætli að fást við í framtíðinni, svo sem menntun,
vinnu og stofnun fjölskyldu.
64
J