Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 14
SKAGFIRÐINGABÓK
að hann hefði „steypt klukku" á sléttum velli. Samkvæmt lýsingu
Símonar er enginn efi á, að þar var um leik að ræða, sem nú
gengur undir heitinu „heljarstökk". Frábær frækni hefur verið
ættarfylgja afkomenda Pálma í Vallholti. Má í því efni minna
á þá Péturssyni frá Valadal, bræður Jóns á Nautabúi, þau Nauta-
bússystkin og þá Hjaltastaðabræður í Blönduhlíð, sem voru af-
komendur Herdísar, sysmr Péturs í Valadal. En því má ekki
gleyma, að meðal ættmenna Jórunnar í Valadal voru og afreks-
menn að hreysti, enda af ætt Hrólfs sterka á Alfgeirsvöllum. Hef-
ur þeim ættboga löngum fylgt hugrekki og hreysti. Þótt Jón á
Nautabúi stæði ekki bræðrum sínum að fullu á sporði að hreysti,
var hann þó hraustmenni að burðum og manna mýkstur í hreyf-
ingum.
Jón ólst upp á heimili foreldra sinna í Valadal og síðar á Alf-
geirsvöllum fram yfir fermingu og reyndist bráðgjör. Ungur
hleypti hann heimdraga og gerðist kaupamaður, a. m. k. tvö sum-
ur milli tektar og tvímgs, norður í Kelduhverfi og Axarfirði, enda
mun Pétur faðir hans hafa þá verið farinn að draga sín segl sam-
an til muna. A árunum fyrir og um tvítugt stundaði hann sjó af
Suðurnesjum a. m. k. tvær vertíðir.
Jón var manna hagastur í höndum og réðst því til náms í gull-
og rennismíði hjá Jóni Leví, gullsmið í Oxl í Þingi, og lauk því
með lofsorði. Tvenna af smíðisgripum Jóns frá námsárinu skal
hér minnzt á, sem frægir voru um nágrennið fyrir hagleikssakir.
Hið fyrra var hesputré alrennt og forkunnarvandað smíði. Mun
það enn í vörzlum afkomenda hans. Hitt var manntafl úr málmi,
rennt og listasmíð. Það mun hafa borizt til Vesturheims, og er
óvíst, hvar það er niður komið.
Smíðanámið varð Jóni lítt til framdráttar, því gullsmíði smnd-
aði hann aldrei. En hagleikur fylgdi honum til leiðarloka. Lék
hvert verk í höndum hans og vakti margt daglegra starfa, sem
hann snerti á, athygli fyrir fagurt handbragð. En smíðar yfirleitt
stundaði hann lítt, nema hestajárn og beizlisstengur og það í smá-
um stíl nema fyrir sjálfan sig.
12