Skagfirðingabók - 01.01.1975, Page 66
VÍSINDAMAÐUR í SVEIT 1932—1937
eftir s. L. TUXEN
S. L. Tuxen fæddist í Kaupmannahöfn 8. ágúst 1908. Foreldr-
ar hans voru dr. phil. Poul Tuxen prófessor við Hafnarháskóla
(d. 1955) og kona hans Anne Margrethe Mollerup (d. 1928).
Kona Tuxens er Jytte, f. Ahlmann-Lorentzen, kennari í hús-
stjórnarfræðum.
Tuxen lauk magistersprófi í dýrafræði 1933 og hefur síðan
starfað við Dýrasafnið (Zooligisk Museum). Sérgrein hans er
skordýrafræði, og doktorsritgerð hans fjallaði um dýralífið í ís-
lenzkum laugum og hverum og nálægt þeim (The hot springs
of Iceland, 1944).
Dr. Tuxen er meðal færustu manna í sérgrein sinni. Fulltrúi
var hann í fastanefnd alþjóðasamtaka skordýrafræðinga 1951—
1972, forseti þeirra frá 1964, síðan heiðursfélagi. Hann hefur
unnið að rannsóknum um allar jarðir, aðallega þó á Islandi
(fimm sinnum) og svo í Brasilíu (sjá bókina „Et sted ved
Amazonas", 1972). Gistiprófessor var hann við University of
California 1966—67 og fyrirlesari við háskóla í mörgum
löndum. Hann er heiðursfélagi ýmissa stofnana og félaga víða
um heim, svo sem Academia Brasileira de Ciencias; Academia
Italiana di Entomologia, sams konar stofnunar í Moskvu og
víðar.
Hann hefur gefið út fjölda vísindarita auk bóka sagnfræði-
legs efnis, er varða fræðigrein hans, og ritstýrt tímaritum, þ. á
m. hinu mikla riti um dýrafræði íslands: The Zoology of Ice-
land, síðan 1937.
Tuxen tók ungur sérstöku ástfóstri við íslenzka menningu,
eins og eftirfarandi grein hans er til vitnis um, og ævistarf
64