Skagfirðingabók - 01.01.1975, Qupperneq 88
SKAGFIRÐINGABÓK
að ég var í töðugjöldunum, enda höfðum við Kristmundur keyrt
síðustu töðunni í hús. Töðugjöldin voru mikil veizla, allt fólkið
var komið saman í stofunni og ósköpin öll af góðum mat. Þau
voru haldin þann 6. ágúst þetta ár.
Eldiviðargerð kynntist ég einnig. Eyrst var stungið út, því næst
var taðið látið þorna með því að breiða það á jörðina líkt og mýra-
torf hjá okkur Dönum; seinna var það stakkað (hreykt) og síðan
notað í eldavélina. Ekki veit ég, hvort tað þekkist ennþá sem
eldsmatur, en taðhrauk sá ég við Saurbæ fremra í sumar. Tað var
einnig notað í túnáburð, ekið í hlöss og hreytt úr sem kallað var
eða malað í taðvél, og slóðadregið, ef þurfa þótti. Það, sem ekki
skolaðist niður með regni, var notað sem eldsmatur, rakað saman
og kallað afrak.
Víða sá ég fólk að þessum störfum í sveitinni, enda kom ég á
29 bæi, gisti í átta og alloft á mörgum, ekki hvað sízt á Nautabúi.
Við Sigurður höfðum margt að tala um, og þar að kom, að hann
eignaðist píanó. Hann lék sjálfur vel á það, og þegar mig langaði
í hljómlist, fór ég í Nautabú, og alltaf var mér velkomið að leika
á hljóðfærið. Oft var það líka, að fólkið tók lagið, þegar ég spilaði.
Séra Tryggvi tók stundum þátt í söngnum, hann hafði fallega
rödd. Mér eru þessar söngstundir minnisstæðar. Sigurður var ákaf-
lega duglegur maður, hann kunni allt, sem að smíðum laut, jafnvel
að stinga í málm; hann gróf nafn í svipuna mína. Hann var fyrst-
ur í sveitinni til að koma upp heimilisrafstöð, og íbúðarhúsið á
Nautabúi var prýðilegt. Það var engin furða, þótt hann yrði síðar
kaupfélagsstjóri og alþingismaður.
Tengslin milli alþingis og Nautabús urðu með dálítið sérstök-
um hætti. Arið 1937 fór fram kosning til aiþingis, og séra Sigfús
Jónsson, tengdafaðir Sigurðar á Nautabúi, var í framboði og var
í júníbyrjun á Nautabúi. Þann 4. júní kom gamall Skagfirðingur,
Pálmi rektor Hannesson, í skólaferð að Nautabúí, og þar veiktist
skólastelpa, sem Rósa hét, af botnlangabólgu. Því varð Pálmi eftir
á Nautabúi, en um sama leyti veiktist séra Sigfús og dó 8. júní.
Pálmi fór þá í framboð í hans stað og var kosinn alþingismaður
þann 20. júní. Svona geta litlir atburðir stundum dregið eftir sér
86