Skagfirðingabók - 01.01.1975, Page 207
HÉRAÐSSKJALASAFN SKAGFIRÐINGA
manni safnsins, auk formanna héraðsskjalasafnsnefndar, fyrst
Kristjáni C. Magnússyni og síðan Kára Jónssyni, núverandi for-
manni. Nefndin hefur og beitt sér fyrir innköllun útskrifaðra
hreppsbóka og annarra hreppsgagna, en tiltölulega slæmar heimt-
ur höfðu orðið á þeim, þrátt fyrir eftirrekstur. I þessu skyni var
sýslunefnd Skagafjarðarsýslu ritað bréf og beðið liðsinnis. Hún
brást vel við og samþykkti áskorun til allra embættismanna í
umdæmi sínu að skila því, sem þeir hefðu undir höndum. Sendi
stjórn héraðsskjalasafnsins jafnframt bréf í alla hreppana, þar sem
minnt var á áskorunina og óskað eftir skilum sem fyrst. Var þessi
áskorun endurtekin ári síðar, en hafði sáralítil áhrif. Þá kom fram
sú hugmynd að senda mann með opinberu umboði til að ná sam-
an gögnum þessum, og varð til þess fyrrverandi oddviti, Björn
Egilsson á Sveinsstöðum í Lýtingsstaðahreppi, er mjög góð skil
hafði gert til safnsins. Hefur hann síðan ferðazt skipulega um
flesta hreppa sýslunnar og bókstaflega rakað saman ýmsum hrepps-
bókum, skjölum og fleiri handritum í þeim mæli, að enginn hefði
trúað að óreyndu, að svo mikið leyndist þar. A síðari árum hafa
safninu einnig borizt margar almennar handritagjafir. Má þar
nefna handrit Þorsteins Jónssonar eða Þóris Bergssonar rithöfund-
ar, er hann ánafnaði safninu eftir sinn dag; personaliur séra Helga
Konráðssonar og Jóns Sigurðssonar á Reynistað, miklar að vöxt-
um; syrpur Hannesar Hannessonar á Melbreið; sitthvað úr fórum
Eggerts Briems sýslumanns, er gefið var af Magnúsi Gíslasyni á
Frostastöðum; og eins hefur Arni Blöndal bóksali á Sauðárkróki
gefið mjög merk gögn varðandi ættfólk sitt. Enn fremur hafa
fjölmörg félög og samtök í héraðinu afhent gerðabækur sínar til
varðveizlu á safninu.
Innan héraðsskjalasafnsins er að auki allgott ljósmyndasafn,
einkum mannamyndir, sem bæði hefur komið að góðu haldi og
aukist við útgáfu skagfirzkra fræða, einkum æviskráa. Það jókst
mjög við dánargjöf Kristjáns C. Magnússonar, en hann hafði frá
unga aldri safnað myndum og póstkortum. Einnig ánafnaði Krist-
ján safninu hljómplötur sínar, sem flestar eru frá gamalli tíð,
meðal annars með fágætum upptökum íslenzkra söngvara.
205