Jökull - 01.12.1961, Qupperneq 5
area. for a rnore accurate assessment of the melt-
water quantity.
SNOW STAKES. In tlxe October 1960 ex-
pedition two snow stakes icere erected at Vatna-
jökull, location 64° 26' 06" N, 17° 09' 23" W
and 64° 20,3' N, 17° 47,8' W. These snow
stakes xaere made of 2" waterpipes, a new con-
struction as sliown in Fia 5.
Til glöggvunar má skipta rannsóknum á
Vatnajökli í tvennt:
A) Rannsóknir við jökuljaðar. Þær eru kerfis-
bundnar og endurteknar ár eftir ár. Staða
jökuljaðars er mæld á hverju hausti og mið-
uð við föst merki, svo að Ijóst verði, hvort
jaðar hefur gengið fram, lialdizt óbreyttur
eða hörfað til baka. Skal þeim ekki lýst hér
frekar, enda eru niðurstöður þeirra mælinga
birtar annars staðar í ritinu.
B) Rannsóknir á hájökli. Verkefnin eru mis-
munandi frá ári til árs, liáð fjárhagsgetu,
mannafla og öðrum slíkum aðstæðum. Sum-
um rannsóknunum er hægt að ljúka í eitt
skipti fyrir öll, t. d. þykktarmælingum, en
aðrar þurfa að ná yfir langt og samfellt
tímabil og vera kerfisbundnar, t. d. snjó-
mælingar.
Jöklarannsóknafélagið fól mér að annast
rannsóknir á hájökli árið 1960. Unnu margir
að lausn viðfangsefnanna, eins og getið verður
í sambandi við hvern einstakan rannsóknarlið.
Verkefnin voru þessi:
1. Kanna hitastig jökulsins: Fá úr því skorið,
hvort vetrarfrostið héldist í jöklinum allt
árið (arktiskur jökull) eða hvort sumarhit-
inn næði að eyða frostbylgju vetrarins og
færa jökulísinn í 0 °C (tempraður jökull).
Verkefnið skiptist í tvo áfanga:
a) Bora 30 m djúpar holur niður í jökulinn.
b) Mæla hitann í borholunum á ýmsum tím-
um.
2. Snjómœlingar:
a) Kanna vetrarsnjólagið 1959/60.
b) Gera tilraun með snjómöstur, sem stæð-
ust veðraham vetrarins.
3. Þyngdarmcelingar:
a) Þyngdarmælingar í Grímsvötnum og leita
að farvegi lilaupvatns austan þeirra.
b) Tengja þyngdarmælingar á jöklinum við
þyngdarmælistöðina í Háskóla Islands.
4. Landmœling:
a) Gera landabréf af Grímsvatnasvæðinu.
b) Finna rúmtak Grímsvatnakvosarinnar, þ.
e. a. s. rúmtak ofan vatnsborðs.
Fyrsta ferðin á Vatnajökul árið 1960 var 3.—
17. júní. Við mælingamenn notuðum skriðbíl
félagsins, Jökul 2. Þá höfðum við að nokkru
samflot við ferðafólk, sem var á jöklinum á
sama tíma. Það var undir fararstjórn Magnús-
ar Jóhannssonar og hafði hann tvo snjóbíla til
umráða. I þessum ferðamannahópi voru þaul-
vanir jöklamenn, og veittu þeir okkur aðstoð
við snjógryfjugröft, borun og landmælingu.
HITASTIG JÖKULSINS KANNAÐ.
Boraðar voru tvær holur, 27 og 30 metra
djúpar. Önnur 6 km norðaustur af Grímsvötn-
um í hæðinni 1614 m y. s. og 64° 26' 06" n.b.
og 17° 09' 23" v.I., skv. nýja kortinu, sem unn-
ið var að á sama tíma. Hin var uppi á Háu-
bungu 1730 m y. s. 64° 20' 46" n.b. og 17° 24'
12" v.l.
Borað var með 31/2 hestafla snúningsbor,
Temperature °C
Hiti °C
21 /2 days offer drilling of the hole
Hole depth 30m
Mynd 2.
Flitamælingar í borholum á Vatnajökli.
Temperature in boreholes on Vatnajökull.
3