Jökull - 01.12.1961, Side 15
ustu og úrræðabeztu jöklamonnum okkar.
Einnig var með í för til aðstoðar við gryfju-
gröft og mælingar Halldór Ólafsson. Saman-
lagt voru það því 11, sem á jökulinn fóru að
þessu sinni.
Hcr fer á eftir útdráttur úr daglrók ferðar-
innar:
10. júní, laugardagur. — Farið var úr Reykja-
vík kl. 14.30 á þrem bílum. Bílstjórar voru
Þórður Sigurðsson (R 1069), og var kona hans
með í för, Guðjón Jónsson (R 2756) sem flutti
Jökul I, og Gunnar Guðmundsson, er stýrði
Dodge Weapon Jöklarannsóknafélagsins. Feng-
um gott þurrviðri alla leiðina. Staldrað var við
í Rangárbotnum og skoðuð gryfja, sem þar hef-
ur verið grafin. Sést þar, að ljósa öskulagið H3,
sem er um 2700 ára gamalt, hefur lagst utan
um birkitré, sem hefur verið meir en 4 m hátt
og ærið gilt. Hallar holunum eftir greinarnar
eðlilega upp á við, svo að um litla samþjöppun
vikursins heíur verið að ræða eftir að hann
féll, en lagið er um 5 m þykkt.
í Jökulheima var komið kl. 2.30 aðfaranótt
þess 11. Var þá bjart til jökulsins að sjá.
11. júní. — Steingrímur og félagar hans mældu
þennan dag snið á Tungnárjökli. Sjálfur mældi
ég grasreiti Sturlu Friðrikssonar austan lækjar,
sem höfðu staðið vel af sér veturinn og var
ekkert kal í þeim. Jökull II var sóttur niður
að Hraunsvötnum. Búnir til ferðar frá Jökul-
heimum kl. 17.40. Tungná liefur breytt sér
nokkuð og vatnið lagst aðallega í vestustu
kvíslina. Lögðum á jökul kl. 19.50. Höfðum
þyngsla farangur meðferðis, m. a. sex bensín-
tunnur, enda fór svo að sleðinn með „eldhús-
inu“, sem var aftan í „Kugg“ (Jökli I) sligað-
ist sundur og tók langan tíma að tjasla honum
saman. Var klukkan nær 22.00 er þessu var
lokið.
12. júní. — Áfram var haklið alla aðfaranótt
þ. 12. júní, nema þegar stanzað var vegna
þyngdarmælinga við hvern 600 feta hæðarmis-
mun. Við kornum beint að járnmastri því, sem
Sigurjón Rist og félagar hans höfðu reist aust-
an við línuna Pálsfjall-Kerlingar þ. 6. okt. 1960.
Stóð það þá 463 cm upp úr snjó en nú 86 cm,
nettó ákoma því 377 cm, sem mun samsvara um
1900 mm vatns. Haldið var frá mastrinu kl. 08
í bjartviðri og hélzt það veður þar til við kom-
um á Svíahnúk vestri á 12. tímanum. Var þar
sett upp mælingarstöng, en á meðan skall yfir
niðdimm þoka og hélzt þann dag allan. Var
1. rnynd. Steingrímur, Pétur Jökull og Sigmund-
ur að mælingum á Svíahnúk eystri. — The geo-
decist group at work on Sviahnúkur eystri. —
Ljósm. S. Þórarinsson 13. júní 1961.
því seinfarið milli hnúkanna. Að skála kom-
um við kl. 14.00 eftir rösklega 16 tíma ferð frá
jökulrönd. Hiti kl. 18.00 2° C, kl. 23.00 -í- 3°
C. Eftir snæðing var gengið til náða.
13. júní. - Veður kl. 09.00 SSA 2, -t- 2° C,
léttskýjað; kl. 12.00 SSA 3, 0° C, þoka að leggj-
ast yfir; kl. 18.00 SA 4, ~ 10 C, hríðarhragl-
andi, skyggni 40 m. Flestir sváfu fram undir
hádegi. Eftir snæðing var reynt að komast nið-
ur i Grímsvötn, en snúa varð við er þoka skall
yfir. Hellar skoðaðir síðar um daginn. Virtist
sem vottur af kolsýru væri í botni stærsta hell-
isins. Síðan hófst frímerkjasleiking.
14. júní. - Veður kl. 12.00 SA 5, 0° C, úr-
komulaust, en dimm þoka. Kl. 18.00 SSA 6,
~ 1° C, skyggni 40 m. Ekkert aðhafst þenna
dag nema éta, sofa og sleikja frímerki.
15. júní. — Veður kl. 9.00 SSA 3, 1° C, skyggni
50 m; kl. 12.00 SSA 3, 1.5° C, skyggni 40 m,
slydda; kl. 18.00 SA 3, -h 1° C, hríð.
Eftir hádegi var gerð tilraun til að komast
niður í viitn, en þokan var dimmri en uppi er
niður fyrir brekkuna kom, og varð enn við að
snúa. Frímerkjasleikingum var því haldið áfram
og lokið að mestu. Um þær var kveðið: 111 var
koma í auman rann, illa við mig hér ég kann,
illt er nautna allra bann, illt er að sleikja
forsetann. Haukur, Magnús og Örn voru lengi
dags að gera við startara í öðrum víslinum.
Síðar um kvöldið skemmti Magnús með mergj-
uðum sögum af sjálfum sér á uppvaxtarárum.
16. júní. — Veður kl. 9.00 A 7, -t- 1° C, hríð-
arkóf; kl. 12.00 SA 7-8, 0° C, hríð; kl. 18.00
SA 3-4, h- 1° C, þoka.
13