Jökull - 01.12.1961, Síða 19
5. mynd. Jökull 2. hefur fest sig í Tungná. Gunnar Guðmundsson stjórnar björgunaraðgerðum. —
A wiesel has got stuck in the river Tungná at Jökulheimar. — Ljósm.: V. Schytt 9. sept. 1961.
haustlagi. Ferðin sóttist þó hægt, því beltin á
Kugg voru í ólagi. Kl. 1 um nóttina var tjöld-
um slegið þar nærri, sem við hugðum járn-
mastrið vera. Var þá stillt veður og bjart í
lofti.
11. sept. — Á fætur kl. 7. Sást þá járnmastr-
ið skammt undan og stóð 259 cm upp úr hjarn-
inu, en 86 cm þ 12. júní, nettó leysing 12. júní—
11. sept. 173 cm, en af snjólaginu frá 6. okt.
1960 voru eftir 204 cm, vatnsgildi um 1200
mm. Mastrið var hækkað svo að það stóð
584 cm upp úr snjó (miðstöngin 254 cm upp
fyrir efsta hring, þaðan að næsta hring 127
cm, og þaðan að snjó 203 cm). Kl. 10 var aftur
lialdið af stað í björtu veðri og vorum við
komnir í Grímsvatnaskála kl. 14. Skruppum
strax austur að járnmastrinu og stóð það nú
242 cm upp úr hjarninu, en 173 cm þ. 16.
júní, nettólækkun því aðeins 69 cm. Samdæg-
urs var haldið inn í Grímsvötn og snið mæld
að venju frá Gríðarhorni að Depli og Mósurn.
Náðum rétt áður en myrkur skall á að mæla
hækkun vatnsborðs við Litla Mósa. Var koll-
ur hans nú 35 m yfir vatnsborði og hækkun
síðan 17. júní því aðeins 2 m. Jökull II bil-
aði og varð að skilja hann eftir norðan undir
Gríðarhorni. Var það eitthvað stykki í kveikj-
unni, sem ekki var hægt að losa, og þótti við-
búið, að ekki væri hægt að ná því úr nema
með því að taka allan mótorinn upp. Komum
á Grímsfjall kl. 23 í þoku.
12. sept. — Kl. 10 héldum við niður að Svía-
hnúk, sumir til gryfjugraftar, en Gunnar og
Þórður til að gera við Jökul II. Hann virtist
ekki hafa haft gott af baðinu í Tungná, því
síðan hefur liann verið mesti vandræðagripur
og alltaf verið að bila. Hefur það komið sér
vel að Þórður er gamall bílaviðgerðarmaður,
sem hefur ekki aðeins ráð undri rifi hverju,
helclur einnig hina ótrúlegustu varahluti í fór-
um sínum, og eru margir þeirra þegar kornnir
í Jökul II. Gunnar og Þórður hafa nú gert sér
rafsegul með því að sívefja vír um skrúfjárn
mikið og hyggjast setja á þetta 12 volta straum
17