Jökull - 01.12.1968, Síða 17
Þegar slíkt grunnvatn leitar að nýju upp á
yfirborð jarðar eftir visst árabil, mætti finna
ferðatíma grunnvatnsins með því að mæla, hve
mikið geislunin hefur dofnað, alveg á hliðstæð-
an hátt og mælingar á styrk geislakolsins í
gömlum plöntuleifum gefa aldur þeirra.
Vart hafði Libby sannprófað möguleikana á
að mæla þannig geymslutíma grunnvatns, er
þessi möguleiki virtist eyðilagður. Sumarið 1952
sprengdu Bandaríkjamenn fyrstu vetnissprengju
sína. Við þessa sprengju myndaðist svo mikið
þrívetni, að styrkur þess í andrúmsloftinu marg-
faldaðist. Eftir þetta virtist í flestum tilfelium
ógerlegt að vita, hvort þrívetni, sem fannst í
grunnvatni, hefði myndazt fyrir áhrif geim-
geisla eða við tilraun með vetnissprengju. Hin-
ar tíðu tilraunir stórveldanna næstu tíu árin
með kjarnorkuvopn meira en hundraðfölduðu
þrívetnisstyrk andrúmsloftsins á norðurhveli
jarðar. Um hríð virtist vonlítið að ætla að nota
þrívetnið til mælinga á aldri grunnvatns, en
að nokkrum tíma liðnum tóku menn að at-
liuga, hvort ekki mætti með mælingum finna,
hvernig hinar miklu sveiflur í þrívetni úrkorn-
unnar endurspegluðust í grunnvatni, og reyna
á þann hátt að ráða nokkuð í rennsli jtess neð-
anjarðar. Það bætti og nokkuð úr skák, að
þessar mælingar voru nú mun auðveldari en
áður, því að sýnin voru nú að jafnaði svo
miklu sterkari en þegar Libby hóf Jtrívetnis-
mælingar sínar.
UNDIRBÚNINGUR ÞRÍVETNIS-
MÆLINGA Á ÍSLANDI
Skömmu eftir að mælingar á Jrrívetni í nátt-
úrlegu vatni hófust, benti dr. Gunnar Böðvars-
son á, að þess mætti vænta, að unnt vrði að
mæla aldur hveravatnsins með þessari aðferð,
en vitneskja urn aldurinn gæti hjálpað verulega
við að finna réttu skýringu á eðli jarðhitans.
Meðal þeirra sýna, sem dr. Libby mældi fyrstu
ár Jtrívetnismælinganna, var sýni úr heitri bor-
holu í Reykjavík.
Að frumkvæði dr. Gunnars Böðvarssonar og
próf. Þorbjörns Sigurgeirssonar var unnið að
Jrví, að þrívetnismælingar yrðu teknar upp hér
á landi, en möguleikar til slíkra mælinga mynd-
uðust, er Eðlisfræðistofnun Háskólans tók til
starfa 1958. Undirbúningur Jressara mælinga
hófst síðari hluta árs 1960, en reglubundnar
mælingar hófust þó ekki fyrr en í ársbyrjun
1963.
Til þess að unnt sé að túlka niðurstöður Jrrí-
vetnismælinganna, þarf oftast að fylgjast með
Jrrívetnisstyrk grunnvatnsins í lengri tíma.
Vatnssýnum hefur því verið safnað reglulega úr
allmörgum lindum (heitum og köldum) og bor-
holum. Þessi sýni eru tekin á þriggja mánaða
fresti.
Þá hafa einnig verið tekin mánaðarleg úr-
komusýni á Rjúpnahæð frá byrjun árs 1958,
og nokkuð hefur einnig fengizt af úrkomusýn-
um frá öðrum stöðum.
NIÐURSTÖÐUR
ÞRÍVETNISMÆLINGA
ÁÚRKOMU
Niðurstöður mælinga á mánaðarlegum úr-
komusýnum frá Rjúpnahæð eru sýndar á
Mynd 1. Meirihluti hinna geislavirku efna frá
hinum öflugu vetnissprengjum nær hátt upp í
heiðloftið. Þaðan eiga þau ekki greiða Ieið
niður í lægri loftlög. Á vorin og fyrri hluta
sumars ár hvert er Jtó töluverð loftblöndun
milli heiðhvolfsins og veðrahvolfsins, og kom-
ast geislavirku efnin þá niður í lægri loft-
lög og berast síðan á nokkrum vikum niður
á yfirborð jarðar með úrkomu. Hinn mikli þrí-
vetnisstyrkur í úrkomu sumarið 1963 stafar
þannig frá risavetnissprengjunum, sem sprengd-
ar voru í Sovétrikjunum haustið 1962, m. a. frá
hinni margumtöluðu 65 megatonna sprengju.
Hluti af regnvatni þessara ára hefur leitað
djúpt undir yfirborð jarðar og blandast þar
grunnvatni og kemur síðan, oft mörgum árunt
síðar, sem grunnvatn upp í lindum. Sveiflurn-
ar í þrívetnisstyrk úrkomunnar endurspeglast
í grunnvatninu, en það fer allt eftir eðli grunn-
vatnsrásarinnar, hvernig þessi endurspeglun
verður. Með því að fylgjast með þrívetni í ein-
hverri lind, hver eða borholu má því væntan-
lega fá, eins og þegar hefur verið sagt, mjög
gagnlegar upplýsingar um viðkomandi grunn-
vatnskerfi.
Áður en tilraunir með vetnissprengjur hóf-
ust árið 1952, hefur Jtrívetnisstyrkur úrkomunn-
ar liér á landi verið einhvers staðar milli 1—5
þrívetniseiningar. Á þessu varð þó sennilega
skjót. breyting þegar árið 1952. Af þrívetnis-
mælingum okkar á úrkomu frá Rjúpnahæð og
JÖKULL 18. ÁR 351