Jökull - 01.12.1973, Blaðsíða 20
Rannsókn á framhíaupi jökla
Það er vel þekkt staðreynd, að sumir jöklar
hlaupa skyndilega fram. Sú hreyfing er talin í
eðli sínu gerólík venjulegu skriði og gangi jökla.
Enn hefur engin skýring fundizt á framhlaup-
um, og mikið hefur vantað á, að mælingar á
jöklum, sem hlaupa, hafi verið nægilega skipu-
legar. A komandi árum verður því Jöklarann-
sóknafélagið að sinna þessu verkefni meir en
verið hefur. Hér mun því verkefnið kynnt
nokkuð.
Af frásögnum, sem til eru um framhlaup, má
draga fram eftirfarandi atburðarás, sem er þeim
sameiginleg. f nokkra áratugi er jökultungan
nær hreyfingarlaus, en ákomusvæði jökuls rís,
og langsnið upp hann verður stöðugt brattara.
Fyrstu merki framhlaups eru sprungur þar, sem
halli yfirborðs er mestur. Þær myndast á fáein-
um dögum, oft með miklum brestum, og geta
orðið allt að 100 m djúpar. Samtímis vex aur-
burður og rennsli jökulárinnar. Sprungusvæðið
breiðist upp jökul, en skríður síðan niður að
isstíflunni við jökultunguna og hleypir henni
fram. Skriðhraði hins sprungna yfirborðslags
nær hámarki nokkrum vikum eftir að hlaup
hefst. Framhlaup stendur venjulega í nokkra
mánuði, stundum 1 til 2 ár. Jökulsporðurinn
hefur þá færzt fram allt að 10 km, og risið, sem
nemur ísmagni, er fallið hefur niður á efri hluta
hlaupsvæðis.
Af þessari lýsingu er ljóst, að milli hlaupa
vex mótstaða gegn rennsli hlaupjökuls og hraði
hans minnkar og verður of lítill til þess að við-
halda jöfnu ísstreymi. ísmassi hleðst upp ofan
við stíflu, eö þegar mótstaðan nær vissu marki,
virðist viðstaðan við botn jökulsins minnka
skyndilega. Jökullinn fer úr jafnvægi og rennsl-
ishraði hans vex hratt. Langsnið upp hlaup-
jökul getur ekki haldizt stöðugt til langframa.
Ástæður fyrir þessari breytingu á núningsmót-
stöðu við botn sumra jökla eru ókunnar. Sú til-
gáta hefur komið fram, að hækkun hitastigs við
botn gaddjökla upp að frostmarki geti aukið
rennsli jökuls, svo að hann hlaupi. Ennfremur,
að vatnslag geti lyft þíðjökli yfir ójöfnur á
botni og aukið rennsli hans. Hvorug tilgátan
er þó talin geta skýrt, hvað kemur hlaupum af
18 JÖKULL 23. ÁR
stað, valdið hinum mikla skriðhraða og geti
haldið honum við, þótt þykkt jökuls og halli
yfirborðs minnki. Aukin þekking á vatnsrennsli,
ísgerð og hitastigi við botn hlaupjökla virðist
því vera skilyrði fyrir lausn þessarar gátu jökla-
fræðinnar.
Við rannsóknir á framhlaupum gæti Jökla-
rannsóknafélagið unnið gagnlegt starf að mæl-
ingum á framvindu hlaupa, sem enn hefur ein-
ungis reynzt unnt að lýsa i almennum orðum.
Hér munu því kynnt drög að áætlun um æski-
legar rannsóknir á Tungnaárjökli fyrir hugsan-
legt hlaup, meðan á því stendur og eftir það.
Fyrir hlaup þarf að fá mynd af stöðu og lögun
jökuls, afkomu, hreyfingu, hitaástandi og vatns-
rennsli. Gera þarf kort af yfirborði jökuls með
hjálp loftmynda og gervitunglamynda. Með end-
urteknum mælingum á milli stika á langsniði
upp jökul má fylgjast með afkomu, streitu og
yfirborðshraða og fylgjast þarf með breytingum
á sprungumynstri. Kanna þarf botn jökulsins
með jarðsveiflumælingum eða þyngdarmæling-
um og borunum. Með borun fæst vitneskja um
Isgerð við botn og breytingar á efnasamsetningu
með dýpi í borkjarna úr jökli gætu e. t. v. skýrt,
hver röskun ísmassans er við hlaup. í borholu
má einnig fylgjast með rennslishraða jökuls við
botn, hraða formbreytingar íss með dýpi og
breytingum á hitaástandi og vatnsþrýstingi við
botn. Loks má nefna könnun á hrjúfleik lands,
sem er nýlega komið undan jökli (fyrrverandi
jökulbotni).
Meðan hlaup varir, þarf að fá sem bezta mynd
af hreyfingu jökulsins og vatnsrennsli frá hon-
um. Æskilegt væri að teikna með mánaðar milli-
bili kort af jöklinum með hjálp loftmynda,
gervitunglamynda og skámynda úr flugvélum.
Með því má fylgjast með massaflutningi niður
jökul, breytingum á sprungumynstri, kanna
hvort sprungulagið skríður sem ein blokk eða
hreyfing þess er breytileg frá einum stað til
annars; eins gæti sést, hvort lóðrétt blöndun á
sér stað, er ísinn skríður fram. Við jökultung-
una má athuga á ýmsan hátt, hvernig jökullinn
skríður fram, kanna ísgerð hans og frárennsli.
Helgi Björnsson.