Jökull - 01.12.1973, Síða 71
angrinum þó ekki lokið fyrr en tveimur vikum
síðar, þegar borbúnaðurinn og tveir snjóbílar
voru sóttir á Bárðarbungu og fluttir í bæinn.
Með þessu verkefni hefur sannazt enn einu
SInni, að Jöklarannsóknafélag íslands, getur
leyst stór og erfið verkefni. Félagið hefur á að
skipa stórum og vel skipulögðum hóp manna,
sem gjörþekkja sitt verk og leysa fljótt og vel
hvern vanda, sem að steðjar. Öll var þessi vinna
lögð fram án þess að nokkur greiðsla kæmi
íyrir, en nálægt tveir þriðju hlutar allrar vinn-
unnar í sambandi við þennan leiðangur voru
lagðir fram af þessum sjálfboðaliðum.
I september 1972 hófst hin vísindalega rann-
sokn á ískjarnanum. Vil ég gera hér stutta
grem fyrir, hvernig þessar rannsóknir standa í
árslok 1973.
Fyrsta skrefið var að koma upp sæmilegri
vinnuaðstöðu við að saga kjarnann niður, gera
nákvæma lýsingu af honum og til annarra at-
hugana á sjálfum ísnum. Sérstök iskista var
smíðuð á Raunvísindastofnun Háskólans og
verk þetta síðan unnið þar af Helga Björns-
syni.
Unnið er samfellt að því að mæla tvívetnis-
styrk íssins á vegum Braga Árnasonar, en mæl-
ingar þessar eru mjög tímafrekar. Gert er ráð
ynr að þessum mælingum ljúki að mestu á
næsta ári. Þá verður hlutfall súrefnissamsæt-
anna einnig mælt í allmörgum sýnunum, en
þessar mælingar verða gerðar í Kaupmanna-
öfn hjá prófessor Dansgárd.
Mælingar á þrívetnisstyrk efstu 100 metra
jarnans annast Páll Theódórsson og er gert
táð fyrir að þeim ljúki á árinu 1974.
Um 30 öskulög fundust í kjarnanum. Síðast-
1 in tvö ár hefur Sigurður Steinþórsson unnið
„ Þv* aS mæla innihald ýmissa steinefna í
os u frá allmörgum gosstöðvum hér á landi.
.'ðurstöður mælinganna benda til að í flestum
1 vikum megi með efnagreiningu rekja upp-
runa óþekktra öskulaga. Nú þegar þessar megin-
ntðurstöður hafa verið fengnar, verður ráðizt í
a efnagreina þau öskulög, sem fundust í kjarn-
anum. Gert er ráð fyrir að þessum rannsóknum
*iuki á árinu 1974.
Styrkur ýmissa sporefna í ísnum getur veitt
nokkurn fróðleik um vatnsrennsli í jöklinum
, ' t>v' er nú unnið að mælingum á styrk
no kurra slíkra efna. Mælingar sem þessar geta
tl v'^ einnig veitt okkur mikilvæga vitneskju
Mynd 3. Öskulög í ískjarnanum eru áhugavert
rannsóknarverkefni fyrir jarðfræðinga, en alls
fundust liðlega 30 öskulög þar. Á myndinni
sést eitt hið þykkasta.
um, hvernig loftmengunin hefur vaxið á síð-
ustu áratugum og öldum í kjölfar vaxandi iðn-
væðingar.
Forsenda þessa mikla verks er sjálf borunin.
Þrátt fyrir allmikla erfiðleika og að ekki tækist
að ná botni jökulsins verður að teljast að árang-
ur starfsins hafi orðið mjög góður. Að lokum
tókst að sigrast á öllum tæknilegum erfiðleik-
um við borunina nema veikleika kapalsins.
Hinn bandaríski lánskapall var hins vegar al-
gjörlega laus við þennan veikleika, enda var
gerð stálkápunnar, sem gefur kaplinum styrk
sinn, allfrábrugðin. Framleiðandi hins upphaf-
lega kapals hefur fallizt á að framleiða, Raun-
vísindastofnun Háskólans að kostnaðarlausu,
nýjan kapal með sömu gerð stálkápu og er á
hinum bandaríska kapli.
Fyrir verkefni á komandi árum er því til
reyndur bor og 700 metra langur, ný kapall
væntanlegur, sem full ástæða er til að vænta
að muni leysa verkefni sitt vel af hendi. Bor-
búnaður þessi verður væntanlega notaður eftir
1—2 ár til að bora í gegnum íshellu Gríms-
vatna og í gegnum ísþekjuna, þar sem vatnið
rennur í hlaupum úr Grímsvötnum. Og loks
verður að teljast líklegt að borað verði í gegn-
um íshellu Bárðarbungu áður en þessi áratugur
er allur.
JÖKULL 23. ÁR 69