Jökull


Jökull - 01.12.1978, Page 73

Jökull - 01.12.1978, Page 73
sem í því var lauslegt fara forgörðum. Við slökktum í snatri á vélinni og fórum að láta allt niður, en þá slotaði veðrinu, svo að kl. 2 gátum við aftur kveikt á vélinni og mötuðumst síðan. Að vísu vorum við nú ekki hræddir um tjaldið, en þó var ekkert viðlit að leggja af stað út í iðulausa stórhríð. Við tókum því til spil- anna, fórum í bridge og skemmtum okkur prýðilega. Kl. 7 um kvöldið skall aftur á afspyrnurok, sem við vorum alveg vissir um að mundi svipta upp tjaldinu. Við létum því allt niður aftur, og varð ekki meira úr borðhaldi þann daginn. Við tíndum á okkur hverja spjör, sem við höfðum meðferðis, því að nú leit út fyrir, að við myndum ekkert hafa yfir höfuðið um nóttina. Þarna sátum við nú uppi á millum jökla, 2800 f. yfir sjávarfleti, í -H 10°C kulda og 100 km frá næstu byggðum. Sumum mundi nú ef til vill ekki hafa litist á blikuna, en þó var engin ástæða til að láta sér slíkt í augum vaxa. Við höfðum bæði sleðasegl, segldúk og tvö mikil skíðasegl. Okkur hefði aldrei orðið skotaskuld úr því að grafa okkur niður í einhvern skaflinn, refta yfir með skíðunum, leggja svo seglin ofan á og moka síðan snjó yfir. Við vorum því í engri hættu staddir, en mikil tímatöf hefði okkur orðið að þessu, því að slíkan snjókofa hefðum við aldrei getað gert á skemmri stundu en 1—2 klukkutímum, en tjaldið gátum við alltaf reist á 5 mínútum. Þess vegna vorum við einráðnir í því að láta það ekki af hendi við illviðrið fyrr en í fulla hnefana. Við höfðum nú komið öllum farangri okkar fyrir í 4 kössum og sett hvern þeirra í sitt horn tjaldsins. Við fórum nú í húðfötin utan yfir hin fötin, settumst hver á sinn kassa og studd- um tjaldið með öxlunum. í þeim stellingum sátum við alla nóttina. Veðrið æddi og ólmaðist og þreif svo óþyrmilega í tjalddúk- inn, að við fleygðumst fram og aftur, eins og við værum í slæmum vagni á ósléttum vegi. Og alltaf kváðu við sömu hrinurnar og sömu orgin! Loks varð Axel leiður á gólinu og tók að syngja „Tóta litla tindilfætt“, svo sem til til- breytingar. Kl. 1 um nóttina urðum við varir við h. u. b. 5 cm rifu í tjalddúknum, og nú var öllum boðið að gæta sín sem best og bjarga öllu, sem bjargað yrði, því að nú leit út fyrir, að tjaldið væri úr sögunni. Við höfðum skiða- seglin tilbúin til þess að breiða þau yfir okkur þangað til veðrið batnaði svo, að við gætum gert okkur snjókofa. Þetta er hið einkennileg- asta og illúðlegasta óveður, sem ég man eftir. Fellibylurinn stóð venjulega af norðri, en svo gat á einni svipstundu orðið dúnalogn, sem hélst 1—2 mínútur. Þá skall hann á aftur eins og fallbyssuskot úr annari átt. Á þessum ósköpum gekk alla nóttina. Við kölluðum þennan tjaldstað Skrattabæli. Ég fann til mín af því, að hingað til hafði enginn getað bent á, að nokkurs væri vant um útbúnaðinn. En nú kastaði Sörensen fram þeirri athugasemd, að eitt hefði þó gleymst, en það væri saumavél til þess að sauma nýtt tjald á, ef þetta fyki. Ég varð að játa, að þar hefði mér yfirsést. En hins vegar höfðum við allir reynst svo saumkænir um morguninn, að ég taldi enga hættu á því, að við gætum ekki komið saman tjaldi, ef á þyrfti að halda. Mánudaginn 23. mars slotaði storminum nokkuð um morguninn kl. 6. Matreiðslu- maður tók þá þegar til starfa, svo að hafra- súpan yrði soðin áður en næsti bylurinn skylli yfir. Við hinir fórum að athuga, hvað miklu tjóni óveðrið hefði valdið. Við höfðum daginn áður fjötrað sleðana saman og bundið skíðin ofan á þá. Ennfremur höfðum við hlaðið tvö- faldan snjóvegg, h. u. b. 1 metra á hæð, kringum tjaldið. Jú, allt var með kyrrum kjörum, nema snjógirðingin hafði þyrlast burtu út í veður og vind. Rifan, sem við þótt- umst hafa séð í tjaldinu, var ekki annað en sótrák. Við athuguðum nú tjaldið vendilega, bæði utan og innan, en hvorki hafði þráður brostið í tjalddúknum né heldur losnað um lykkju eða hring. Tjaldið var alíslenskt. Kl. 8‘/2 vorum við ferðbúnir. Vindurinn var á útsunnan, kuldinn 9°C og kafaldsbylur, svo að við sáum lítt fram undan. En kl. 9l/2 slétt- lygndi og gerði glaða sólskin og var þá skíða- færi hið besta. Þá fórum við yfir lægð eina, sem líktist fljótsfarvegi, og hygg ég, að Þjórsá hafi verið þar undir, svo að ekki varð okkur torsótt yfir hana. Okkur kom nú saman um að JÖKULL 28. ÁR 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.