Jökull - 01.12.1978, Side 98
Um starfsemi Jarðfræðafélags
íslands apríl 1977 — maí 1978
Karl Grönvold,
Norrænu eldfjallastöðinni
Ráðstefna um íslenska jarðfræði var haldin
að Hótel Loftleiðum 24. og 25. nóvember
1977. Var ráðstefnan tileinkuð prófessor
Trausta Einarssyni á sjötugsafmæli hans, sem
var 14. nóvember. Ráðstefnan var með nokk-
uð öðru sniði en fyrri ráðstefnur og tími fyrir
hvern fyrirlestur og umræður um hann var
einungis 20 mínútur. Vegna mikillar þátttöku
varð að byrja snemma og var verið að til
kvölds og voru um fimmtíu erindi flutt. Fjall-
að var um flest svið íslenskra jarðfræðirann-
sókna og gaf ráðstefnan því gott yfirlit um þær
rannsóknir sem nú eru stundaðar. Útdrættir
ú.r erindunum voru fjölritaðir fyrir ráðstefn-
una en voru síðan þýddir á ensku og eru
prentaðir í þessu hefti Jökuls.
Á þessu tímabili voru tiltölulega fáir fundir
með hefðbundnu sniði. Ráðstefnan í nóvem-
ber 1977 hafði vafalaust áhrif á framboð af
erindum, sem annars hefðu verið flutt með
hefðbundnum hætti á síðdegisfundum.
Sömuleiðis var nokkur áhugi hjá stjórn fé-
lagsins að reyna nýjar leiðir, m. a. með því að
taka fyrir eitt efni, en fá fleiri frummælendur.
Eftirfarandi erindi voru flutt á síðdegisfund-
um:
ABSTRACTS FROM A CONFERENCE
DEDICATED TO PROFESSOR
TRAUSTI EINARSSON
The Geoscience Society of Iceland held a
conference on the various aspects of Icelandic
geology on November 24th and 25th 1977 at
Hotel Loftleidir, Reykjavík. Fifty papers were
presented each with a 15 minute presentation
and a 5 minute discussion. All the proceedings
Sigurður Þórarinsson: Katla og Kötlugos á
fjórtándu öld.
Bragi Guðmundsson: Um Landn,ælingar
íslands og nýjungar í landmælingum og
kortagerð.
Ingvar Birgir Friðleifsson: Myndun súrs
móbergs á íslandi.
Einn fundur var haldinn um Sigöldu. Þar
fjölluðu sérfræðingar Orkustofnunar um jarð-
fræði, jarðvatns- og lekarannsóknir í sam-
bandi við hönnun og byggingu Sigölduvirkj-
unar og áfyllingu lónsins. Var þar gefið yfirlit
yfir hina jarðfræðilegu hlið Sigölduvirkjunar
og gafst þá betri tími en á ráðstefnunni til
umræðna.
Þá var í apríl 1977 haldinn umræðufundur
undir titlinum: Jarðvísindin og þjóðfélagið —
ástand og horfur. Þar voru frummælendur
Guðmundur Pálmason og Þorleifur Einars-
son, en á þann fund var einnig boðið nokkrum
stjórnmálamönnum og fulltrúum fyrirtækja,
sem annast verkefni sem snerta jarðfræðileg
viðfangsefni. Voru umræður á þessum fundi
líflegar og lærdómsríkar, en ekki verður sagt
að nein endanleg niðurstaða hafi fengist.
were in Icelandic and abstracts for all the lec-
tures were presented before the meeting.
These were translated into English to be in-
cluded in Jökull.
The meeting was dedicated to Prof. Trausti
Einarsson on the occasion of his 70th birthday.
Trausti has worked and still works on many
aspects of Icelandic geology and was professor
at the Department of Engineering at the Uni-
96 JÖKULL 28. ÁR