Jökull - 01.12.1978, Blaðsíða 96
árinu og var árgangur 1976 sá síðasti er
Sveinbjörn Björnsson sér um að sinni. Hafi
hann hugheila þökk fyrir ágætt starf. Næsta
hefti er nú í bígerð. Samkvæmt áður gerðu
samkomulagi standa nú bæði Jarðfræðifélagið
og Jöklarannsóknafélagið að Jökli og er Ingvar
Birgir Friðleifsson, jarðfræðingur, ritstjóri af
hálfu jarðfræðinga, en Helgi Björnsson af
hálfu jöklamanna, ég sem formaður og svo
hefur Magnús Hallgrímsson, verkfræðingur,
góðfúslega tekið að sér að verða einskonar rit-
stjóri íslensks efnis, sem yrði sér á parti aftast í
ritinu ásamt frásögnum af málum beggja fé-
laganna. Þarna verður um að ræða ýmsan
fróðleik, sem ekki á beint erindi á erlend mál,
frásagnir af ferðalögum á jöklum o. fl.
SAMKOMUR
Að lokum skulu nefndar samkomur félags-
ins. Fræðslufundur var aðeins einn á starfsár-
inu, 12. maí, en fjölsóttur að vanda. Þar fjöll-
uðu þeir Helgi Björnsson og Magnús Hall-
grímsson um sína miklu ferð um Bandaríkin
til að kynna sér snjó- og snjóflóðarannsóknir.
Snjóleysi var þar einkum til baga. En þetta var
mjög gagnleg ferð þeim báðum og hafa þeir
samið um hana sérlega greinargóða skýrslu,
sem hægt er að fá hjá þeim til lesturs, ef ein-
hverjir hafa sérstakan áhuga á. Formaður tel-
ur sér til hróss, að hafa átt nokkurn þátt í því
að úr þessari ferð varð.
Árshátíð félagsins, sem haldin var í Snorra-
búð 19. nóv., var með sérstökum ágætum og
hefur aldrei verið fjölsóttari. Ræðumaður
kvöldsins var ekki af verra taginu, Eysteinn
Jónsson. Nýr kór lét í sér heyra. Hafi Bára og
aðrar konur skemmtinefndarinnar mikla þökk
fyrir ágætt starf.
AFKOMA
Afkoma félagsins má heita furðu góð á
þessum síðustu og verstu tímum. Félögum
hefur fjölgað á árinu um nær 80 og eru nú
587. Nokkum þátt í þessari fjölgun á sýning-
arbás sá, sem Jöklarannsóknafélagið útbjó í
Norræna húsinu sem hluta af hálfrar aldar
afmælissýningu Ferðafélags Islands. Áskrif-
endalisti lá þarna frammi. Sýningin var fé-
laginu til sóma og vil ég nefna meðal þeirra,
sem þar áttu þátt í, Stefán Bjarnason, Val
Jóhannesson, Rögnu Karlsdóttur og Ævar
Jóhannesson.
Sæluhús J.Ö.R.F.I. í Esjufjöllum og Kverkfjöllum
Húsin eru 15 m2 að flatarmáli hvort um sig.
I þeim eru kojur með svampdýnum fyrir 12
manns og ef þörf krefur geta 4 sofið á gólfi.
Lítið anddyri er til geymslu bakpoka og yfir-
hafna. I svefnskála er borð, tveir kollar og
bekkur. Ekkert eldstæði er í húsunum, því
ætlast er til að ferðalangar hafi með sér hit-
unartæki.
Við Esjufjallahúsið er gott vatnsból í gili
skammt suðvestan hússins en bræða verður
snjó i Kverkfjöllum. I húsunum er fúavarin
furugrind, klædd með vatnsheldum; plast-
húðuðum birkikrossviði, sem er skrúfaður á
grindina. Yfir skrúfuraðirnar voru síðan
negldir listar með þéttikýtti undir. Að innan
eru húsin einangruð með plasteinangrun og
klædd lökkuðum grenikrossviði. Tvöfalt gler
er í öllum gluggum og hlerar fyrir þeim að
utan. Ytri hurð er tvískipt og við hana ofan-
verða fest skófla.
Esjufjallahúsinu er fest niður á þann hátt að
fylltir voru með grjóti, 4 möskva kassar úr
plasthúðuðum, galvaniseruðum vír. I gegnum
þá eru boltar, sem festa niður tveim langtrjám,
sem aftur eru fest í hvern gólfbita með tveimur
girðum. I kringum húsið var síðan hlaðinn
grjótkampur. Var lauslega áætlað að um 14
tonn af grjóti hafi farið í þennan frágang.
I Kverkfjöllum er festingin að því leiti frá-
brugðin, að þar var borað ofan í móbergið
fyrir 2 tommu galvaniseruðum vatnsrörum,
sem rekin voru um 60 cm niður. Síðan voru
settir flangsar á rörendana og langtrén boltuð
á þá. Að öðru leyti var gengið eins frá báðum
húsunum.
Jón E. ísdal.
94 JÖKULL 28. ÁR